Arion útilokar ekki aðra nýtingu innviðanna í Helguvík

Arion banki stefnir enn á að selja kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík og segir meg­in­mark­miðið að hún verði áfram starf­rækt þar en úti­lokar ekki aðra nýt­ingu inn­við­anna. Áreið­an­leika­könnun vegna mögu­legra kaupa PCC stendur nú yfir.

Kísilverið í Helguvík hefur ekki verið starfrækt frá haustinu 2017.
Kís­il­verið í Helguvík hefur ekki verið starf­rækt frá haustinu 2017. Mynd: Af vef Reykjanesbæjar

Áreið­an­leika­könnun vegna mögu­legra kaupa rekstr­ar­að­ila kís­il­vers­ins á Bakka á kís­il­verk­smiðj­unni í Helguvík stendur yfir og á henni að vera lokið á þriðja árs­fjórð­ungi, þ.e. á tíma­bil­inu júlí-sept­em­ber. Þetta kemur fram í nýjum árs­hluta­reikn­ingi Arion banka sem á kís­il­verið og allt sem því fylgir eftir gjald­þrot United Silicon árið 2018. Hinn áhuga­sami kaup­andi er meiri­hluta­eig­andi kís­il­vers PCC á Bakka í nágrenni Húsa­víkur líkt og Kjarninn greindi frá fyrr á árinu. Arion banki og PCC skrif­uðu undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um mögu­leg kaup í jan­úar.

Í grund­vall­ar­at­riðum er til­gangur áreið­an­leika­könn­unar að sam­ræma vit­neskju og upp­lýs­ingar kaup­anda og selj­anda á félag­inu sem um ræðir, í þessu til­viki Stakks­bergi, dótt­ur­fé­lagi Arion sem heldur utan um eign­irnar í Helguvík.

[adspot]

Í árs­hluta­reikn­ingi Arion segir að mark­mið bank­ans sé að kanna þá mögu­leika að selja kís­il­verið á grund­velli þeirrar vinnu sem farið hafi fram „en einnig að kanna sölu á innviðum til ann­arrar starf­semi“.

Vinnan sem farið hefur fram er m.a. umhverf­is­mat á end­ur­ræs­ingu og stækkun kís­ils­vers­ins sem lauk með áliti Skipu­lags­stofn­unar um ára­mótin. Þá hafa raf­orku­samn­ingar verið end­ur­nýj­aðir, starfs­leyfi er enn í gildi og verk­smiðjan verið end­ur­hönnuð með til­liti til þeirra úrbóta sem gera þarf eigi að ræsa hana að nýju.

[links]Grund­vall­ar­mark­miðið, eins og það er orðað í árs­hluta­reikn­ingi Arion, er að hámarka not eign­anna og að finna kaup­anda sem sér tæki­færi og hefur reynslu og sér­fræði­þekk­ingu til að halda rekstri kís­il­vers­ins áfram „í sátt við nær­sam­fé­lagið“.

Kís­il­verið í Helguvík hefur ekki starfað í um fjögur og hálft ár eftir að Umhverf­is­stofnun stöðv­aði starf­sem­ina eftir fjölda kvart­ana íbúa og ítrek­aðra mis­taka í rekstr­inum sem ekki tókst að bæta úr. Allir ell­efu full­trúar í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar sam­þykktu í jan­úar bókun þar sem skorað var á Arion banka að falla frá áformum um end­ur­ræs­ingu hennar.

Enginn odd­viti þeirra flokka sem nú eru í fram­boði í Reykja­nesbæ vill að verið verði end­ur­ræst og kann­anir hafa sýnt að íbúar eru á sama máli. „Við erum í því liði að við teljum þetta kís­il­ver full­reynt og von­umst til að það opni ekki aftur,“ sagði Margrét Sanders, bæj­ar­full­trúi og fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­nesbæ í leið­togaum­ræðum á RÚV nýverið. „Það er bara búið,“ sagði Friðjón Ein­ars­son, bæj­ar­full­trúi og fram­bjóð­andi Sam­fylk­ingar og óháðra og benti á að full­trúar allra flokka hefðu sam­þykkt að setja í aðal­skipu­lag nýja stefnu fyrir Helguvík – að þar verði ekki meng­andi iðn­aður í fram­tíð­inni.

Val­gerður Björk Páls­dóttir, fram­bjóð­andi Beinnar leiðar, sagði Helguvík kjör­inn stað fyrir nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki og Ragn­hildur Guð­munds­dóttir, odd­viti Pírata og óháðra sagði: „Við viljum ekki meng­andi stór­iðju í Helguvík.“

Bæj­ar­yf­ir­völd fara með skipu­lags­valdið en Stakks­berg á lóð­ina, er með starfs­leyfi og í gildi er deiliskipu­lag sem Arion banki segir rúma allar nýjar bygg­ingar sem fyr­ir­hug­aðar eru til stækk­unar verk­smiðj­unnar. Bankinn sagði í umhverf­is­mats­skýrslu sinni að ekki þurfi að gera nýtt deiliskipu­lag, aðeins breyta gild­andi skipu­lagi í sam­ræmi við þær bygg­ingar sem fyrir eru og voru ekki í takti við fyr­ir­liggj­andi leyfi á sínum tíma.

„Og þá skulum við vera alveg skýr með það: Það verður bar­átta,“ sagði Margrét Sanders, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í kosn­inga­þætti RÚV, um þá afstöðu bæj­ar­yf­ir­valda að úti­loka kís­il­verið. „Arion banki heldur á þessu fyr­ir­tæki,“ sagði hún. „Við verðum að fara í sam­ræður og við­ræður við Arion banka um að þeir standi við sína sjálf­bærni stefnu.“

Í sam­eig­in­legri bókun bæj­ar­full­trúa Reykja­nes­bæjar í jan­úar ítrek­aði bæj­ar­stjórn vilja sinn til sam­ráðs við Arion banka um aðrar leiðir og ann­ars konar starf­semi í Helguvík. Nýtt mat á umhverf­is­á­hrifum, sem gefið var út um ára­mótin, gerði lítið til að breyta skoðun bæj­ar­yf­ir­valda og íbúa sveit­ar­fé­lags­ins.

„Það er því ljóst að framundan gætu verið harðar langvar­andi deilur milli aðila, verði áfram haldið með þessi áform, sem gera ekk­ert annað en að valda öllum aðilum veru­legum skaða.“

[adspot]

Full­trúar Arion banka sögðu á fundi umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis í byrjun febr­úar að það að flytja kís­il­verið úr Helguvík yrði „svo óskap­legt“ að það væri „raun­veru­lega ekki efna­hags­lega boð­legur kostur“. Ólafur Hrafn Hösk­ulds­son, fjár­mála­stjóri Arion banka og stjórn­ar­for­maður Stakks­bergs sagði að um 15-20 millj­arða króna fjár­fest­ingu væri að ræða í innviðum til kís­ilfram­leiðslu. „Það er ljóst að þrátt fyrir það að búið sé að færa þessar eignir að mestu niður í bókum bank­ans þá felst ábyrgð í því að halda á þess­ari 15-20 millj­arða fjár­fest­ingu og það er þessi ábyrgð sem hefur verið okkar leið­ar­ljós í verk­efn­inu. Þegar maður talar um þessa ábyrgð þá felst vissu­lega ábyrgð í því að skoða gang­setn­ingu á verk­smiðj­unni en það felst að sama skapi mikil ábyrgð og sóun í því að rífa niður þessa 15-20 millj­arða og ekki kanna til hlítar hvort að hægt sé að gang­setja þarna verk­smiðju sem hægt er að reka í eins góðri sátt við sam­fé­lagið og hægt er og í takti við kröfur eft­ir­lits­að­ila.“

Bókfært virði Stakks­bergs var tæp­lega 1,4 millj­arðar króna í lok mars og hafði þar með lækkað um 177 millj­ónir frá því í lok síð­asta árs.

Í árs­skýrslu Lands­virkj­unar kom fram að hækkun á verði kís­il­málms milli 2020 og 2021 hafi numið um 450 pró­sentum. Þar af hækk­aði það yfir 200 pró­sent á ein­ungis tveimur mán­uðum, frá sept­em­ber og út októ­ber 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stakksberg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár