Óttast „verulegan ófrið“ verði kísilver Arion banka ræst að nýju

„Íbúar í Reykja­nesbæ munu aldrei sætt­ast á að rekstur þess­arar verk­smiðju fari í gang aftur og ég ótt­ast að veru­legur ófriður verði nái þetta fram að ganga,“ segir for­seti bæj­ar­stjórnar Reykja­nes­bæjar um áform Arion banka að end­ur­ræsa kís­il­verið.

Guðbrandur Einarsson er forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
Guð­brandur Ein­ars­son er for­seti bæj­ar­stjórnar Reykja­nes­bæjar. Mynd: Aðsend

„Ég er að sjálf­sögðu mjög von­svik­inn yfir þessu áliti. Enn og aftur telur Skipu­lags­stofnun að það sé í lagi að gerðar séu til­raunir á íbúum Reykja­nes­bæjar sem margir hverjir upp­lifðu tals­verð veik­indi á meðan þessi rekstur var í gangi. Breyting á bygg­ingu mun að mínu mati ekki breyta neinu þar um nema þá helst að dreifa meng­un­inni yfir fleiri íbúa.“

[links]Þannig kemst Guð­brandur Ein­ars­son, for­seti bæj­ar­stjórnar Reykja­nes­bæjar, að orði inntur eftir við­brögðum við áliti Skipu­lags­stofn­unar á mats­skýrslu Stakks­bergs á fyr­ir­hug­uðum end­ur­bótum, end­ur­ræs­ingu og stækkun kís­il­verk­smiðj­unnar í Helguvík. Stakks­berg, sem í eigu Arion banka, eign­að­ist verk­smiðj­una og allt sem henni fylgir er Sameinað Sílikon ehf. varð gjald­þrota árið 2018. Verk­smiðjan hafði aðeins verið rekin um tíu mán­aða skeið á árunum 2016-2017. Ítrek­aðar bil­anir höfðu komið upp og ljós­boga­ofn­inn því oft keyrður á litlu afli með þeim afleið­ingum að íbúar í nágrenni vers­ins fundu oft fyrir heilsu­fars­legum óþæg­indum. Umhverf­is­stofnun stöðv­aði rekst­ur­inn í sept­em­ber árið 2017. Arion banki hefur frá upp­hafi stefnt að því að selja kís­il­verið og þegar árið 2019 lagði hann fram mats­á­ætlun um end­ur­bætur vers­ins og stækkun. Mati á umhverf­is­á­hrifum þeirra fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmda eru nú lokið.

Skipulagsstofnun býður í óvissuferð

Fyr­ir­hug­aðar end­ur­bætur Stakks­bergs ehf. á kís­il­verk­smiðj­unni í Helguvík eru að mati Skipu­lags­stofn­unar lík­legar til að fækka til­vikum sem ljós­boga­ofn er stöðv­aður og stytta tíma sem hann keyrir á skertu afli. Þá eru áform um að losa útblástur um skor­steina en ekki um rjáfur síu­húss, sem bætt var við vegna aðfinnslu Umhverf­is­stofn­unar, lík­leg til að leiða til mun betri dreif­ingar útblást­ursefna, stöðugri rekst­urs verk­smiðj­unnar og stuðla að bættum loft­gæðum frá því sem áður var. Engu að síður er það álit stofn­un­ar­innar að áhrif við rekstur 1. áfanga, þ.e. eins ljós­boga­ofns, verði nokkuð nei­kvæð og áhrif fullrar fram­leiðslu fjög­urra ofna tals­vert nei­kvæð.

„Ég var að sjálf­sögðu að von­ast til þess að Skipu­lags­stofnun tæki af öll tví­mæli í þessu máli,“ segir Guð­brandur enn­fremur um nið­ur­stöðu Skipu­lags­stofn­unar. Þó nefni stofn­unin nokkur atriði sem hún telji vera nei­kvæð og upp í veru­lega nei­kvæð. „Engu að síður telja emb­ætt­is­menn Skipu­lags­stofn­unar rétt að bjóða íbúum Reykja­nes­bæjar upp á óvissu­ferð sem hún hefði aldrei átt að heim­ila í byrjun.“

Guð­brandur segir að íbúar Reykja­nes­bæjar muni „aldrei sætt­ast á að rekstur þess­arar verk­smiðju fari í gang aftur og ég ótt­ast að veru­legur ófriður muni verða nái þetta fram að ganga“.

Segir túlkun Stakksbergs ranga

Hönnun verk­smiðj­unnar hefur verið breytt frá því að Stakks­berg lagði fram frum­mats­skýrslu árið 2020 og rúm­ast nú allar nýjar bygg­ingar innan heim­ilda gild­andi deiliskipu­lags að mati félags­ins. Þetta þýði að ekki þurfi að gera nýtt deiliskipu­lag – aðeins breyta því í sam­ræmi við þær bygg­ingar sem fyrir eru og voru ekki í takti við fyr­ir­liggj­andi leyfi á sínum tíma.

Guð­brandur mót­mælir þess­ari túlkun Stakks­bergs og segir það rangt að bygg­ing­ar­innar rúmist innan núgild­andi deiliskipu­lags og „að ein­ungis þurfi að þurfi að sam­ræma deiliskipu­lagið núver­andi mann­virkjum sem reist voru á grund­velli bygg­ing­ar­leyfa útgefnum af Reykja­nesbæ.

Því er til að svara að bygg­ing­ar­leyfið var gefið út í góðri trú á grund­velli rangra teikn­inga sem lagðar voru fram af hálfu United Silicon. Því má velta því fyrir sér hver eigi að bera ábyrgð á þessum ólög­legu teikn­ingum.“

[adspot]

Bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar hefur ítrekað lýst yfir and­stöðu sinni við að kís­il­verið í Helguvík verði end­ur­ræst. Spurður hvort að bæj­ar­yf­ir­völd geti hindrað end­ur­ræs­ingu miðað við þá stöðu sem nú er komin upp segir Guð­brandur að það verði að sjálf­sögðu skoðað.

„En mér finnst þetta ekki bara vera mál Reykja­nes­bæjar, heldur líka rík­is­ins sem ber ábyrgð á þeim stofn­unum sem veittu heim­ild fyrir þessum rekstri í byrjun. Það getur engan veg­inn þjónað hags­munum okkar að brenna þús­undum tonna af kolum á hverju ári í bak­garð­inum hjá okkur fyrir utan aðra mengun sem af þessu hlýst.“

Guð­brandur seg­ist einnig vilja beina ábyrgð­inni á Arion banka sem geti ekki „bara falið sig á bak við eitt­hvert dótt­ur­fé­lag. Hvar eru hin grænu gildi Arion banka? Eru þau bara til að skreyta sig með?“

Álit Skipu­lags­stofn­unar verður fljót­lega sett á dag­skrá bæj­ar­stjórnar Reykja­nes­bæjar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stakksberg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár