Bæjarstjórnin skorar á Arion banka að hætta við áform um endurræsingu kísilversins

Bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar skorar á Arion banka að falla frá áformum um end­ur­ræs­ingu kís­il­vers­ins í Helguvík og hefja við­ræður við sveit­ar­fé­lagið um aðrar og grænni leiðir.

Engin starfsemi hefur verið í kísilverksmiðjunni í Helguvík í rúmlega fjögur ár.
Engin starf­semi hefur verið í kís­il­verk­smiðj­unni í Helguvík í rúm­lega fjögur ár. Mynd: iav.is

Allir ell­efu bæj­ar­full­trúar í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar sam­þykktu á fundi í gær bókun þar sem skorað er á Arion banka, eig­anda kís­il­verk­smiðj­unnar í Helguvík, að falla frá áformum um end­ur­ræs­ingu hennar.

[adspot]

Í bók­un­inni er fjallað um frétt Kjarnans frá því í síð­ustu viku þar sem upp­lýst var um að Arion banki og PCC SE, meiri­hluta­eig­andi kís­il­vers­ins PCC BakkiSilicon hf. á Húsavík, hafi und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu varð­andi mögu­leg kaup á kís­il­verk­smiðj­unni í Helguvík. Um síð­ustu ára­mót lauk mati á umhverf­is­á­hrifum á end­ur­bótum, end­ur­ræs­ingu og stækkun verk­smiðj­unnar með áliti Skipu­lags­stofn­unar.

[links]„Bæj­ar­yf­ir­völd hafa áður lýst nei­kvæðri afstöðu sinni til end­ur­ræs­ingar og vilja til sam­starfs um aðrar leiðir,“ segir í bók­un­inni. „Þá liggur það einnig fyrir að stærstur hluti íbúa er því algjör­lega mót­fall­inn að verk­smiðjan verði end­ur­ræst.“

Bæj­ar­stjórnin telur að nýtt mat á umhverf­is­á­hrifum gerir lítið til þess að breyta skoðun bæj­ar­yf­ir­valda og íbúa sveit­ar­fé­lags­ins. „Það er því ljóst að framundan gætu verið harðar langvar­andi deilur milli aðila, verði áfram haldið með þessi áform, sem gera ekk­ert annað en að valda öllum aðilum veru­legum skaða.“

Bæj­ar­stjórn ítrekar því vilja sinn til sam­ráðs um aðrar leiðir og ann­ars konar starf­semi í Helguvík.

Bæj­ar­full­trú­arnir sem sam­þykktu bók­un­ina eru: Anna Sigríður Jóhann­es­dóttir (D), Baldur Þ. Guð­munds­son (D), Díana Hilm­ars­dóttir (B), Friðjón Ein­ars­son (S), Guð­brandur Ein­ars­son (Y), Guðný Birna Guð­munds­dóttir (S), Gunnar Þór­ar­ins­son (Á), Halldóra Fríða Þor­valds­dóttir (B), Margrét A. Sanders (D), Margrét Þór­ar­ins­dóttir (M) og Styrmir Gauti Fjeld­sted (S).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stakksberg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár