Kísilverið „timburmenn sem þarf að hrista úr kerfinu“

Stór­iðju­draumar síð­ustu ára í Helguvík hafa kostað Reykja­nesbæ um 10 millj­arða. Allir hafa þeir runnið út í sand­inn. „Og sam­fé­lag­inu blæðir,“ segir for­maður bæj­ar­ráðs. Þing­maður Pírata segir kís­il­ver í Helguvík „dreggjar“ stór­iðju­stefn­unnar.

Kísilverið í Helguvík er í eigu Stakksbergs, dótturfélags Arion banka.
Kís­il­verið í Helguvík er í eigu Stakks­bergs, dótt­ur­fé­lags Arion banka. Mynd: Úr frumatsskýrslu

„Afleið­ingar stór­iðju­stefn­unnar, sem ríkið er fyrst og fremst upp­hafs­að­ili á, hafa kostað okkur á síð­ustu árum, því miður,“ sagði Friðjón Ein­ars­son, for­maður bæj­ar­ráðs Reykja­nes­bæjar, á fundi umhverfis- og sam­göngu­nefndar þings­ins í morgun. Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata óskaði eftir fund­inum þar sem mál­efni kís­il­vers­ins í Helguvík voru rædd.

Andrés Ingi sagði í upp­hafi fundar að kís­il­verið í Helguvík væru dreggjarnar af stór­iðju­stefn­unni sem rekin var af stjórn­völdum á árum áður, „eða kannski er frekar hægt að kalla þetta timb­ur­menn sem þarf að hrista úr kerf­inu“.

[adspot]

Einar Már Atlason, for­maður íbúa­sam­tak­anna And­stæð­ingar stór­iðju í Helguvík, sagði það íbúum enn í mjög fersku minni hvernig rekstur kís­il­vers­ins var á sínum tíma. United Silicon rak verk­smiðj­una í innan við ár eða þar til Umhverf­is­stofnun stöðv­aði starf­sem­ina. „Við erum með ótal sögur frá fólki, meðal ann­ars börnum, sem fundu fyrir áhrifum meng­un­ar­innar,“ sagði Einar Már. „Þannig að mér finnst að núna séum við að ferð­ast aftur í tím­ann með þeirri veg­ferð sem allt í einu er komin af stað aftur.“

Á sama tíma og umræða um að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hafi aldrei verið hávær­ari og á stefnu­skrá stjórn­valda sé „verið að tala um það að bæta við ein­hverju skrímsli sem eigi að brenna um 500 þús­und tonnum af kolum og við­arkurli á ári“.

Arion banki var stærsti fjár­mögn­un­ar­að­ili United Silicon og eign­að­ist verk­smiðj­una er félagið varð gjald­þrota árið 2018. Um eign­ina var stofnað dótt­ur­fé­lagið Stakks­berg og stendur vilji bank­ans til þess að selja hana og hefur vilja­yf­ir­lýs­ing um mögu­leg kaup verið und­ir­rituð við eig­endur kís­il­vers­ins á Bakka. Að end­ur­ræsa kís­il­verið yrði þó þvert á vilja bæði bæj­ar­yf­ir­valda í Reykja­nesbæ og íbúa sveit­ar­fé­lags­ins sem að sögn Andrésar Inga upp­lifa sig „vald­lítil“ and­spænis áformunum.

Einar Már sagði Arion banka stæra sig af grænni stefnu en að hann geti ekki „fríað sig ábyrgð á því að hann er að troða meng­andi stór­iðju ofan í kokið á okkur íbúum á Suð­ur­nesjum“.

Saga mistaka og brotinna loforða

Friðjón for­maður bæj­ar­ráðs Reykja­nes­bæjar sagði að þrjá­tíu ára saga stór­iðju í Helguvík væri „stór saga mis­taka og brot­inna lof­orða“. Afleið­ing­arnar væru m.a. þær að Reykja­nes­bær hefði tapað 10 millj­örðum króna. Í fyrstu var áformað að reisa stál­grinda­verk­smiðju, þá nokkru síðar álver og svo tvö kís­il­ver á síð­ustu árum. Eina verk­smiðjan sem var ræst var kís­il­ver United Silicon og reynslan af rekstri þess var skelfi­leg.

„Okkur finnst tími til kom­inn að henda þess­ari stefnu og byrja að hugsa upp á nýtt. [...] Núna eru allir ell­efu bæj­ar­full­trúar Reykja­nes­bæjar sam­mála um að þessi verk­smiðja fari ekki aftur í gang. Við höfum komið þeirri skoðun á fram­færi við Arion banka, óskað eftir sam­starfi um atvinnu­mál og atvinnu­þróun í Helguvík en á öðrum for­sendum en með kís­il­veri. Því miður hefur það ekki gengið eftir.“

Hann telur engan mögu­leika á því að ná sátt um end­ur­ræs­ingu kís­il­vers­ins í sam­fé­lag­inu. „Arion banki hlýtur að sjá það.“

Þyrnum stráð upphaf kísilversins á Bakka

Kristján Þór Magn­ús­son, sveit­ar­stjóri Norð­ur­þings, var einnig gestur fund­ar­ins en í sveit­ar­fé­lag­inu er að finna kís­il­ver PCC á Bakka. Starf­semin hófst fyrir fjórum árum og við­ur­kenndi Kristján Þór að tíma­bilið hefði verið „dálítið þyrnum stráð“. Fyrst í stað hafi rekst­ur­inn gengið nokkuð brös­ug­lega og „af og til“ hafi íbúar orðið varir við „reyk og lykt“ inni í bænum, þ.e. á Húsavík. „En ég hef ekki heyrt neinn lýsa neinu sam­bæri­legu og íbúar Reykja­nes­bæjar upp­lifðu.“

Hann telur að þær stofn­anir sem komu að veit­ingu leyfa fyrir starf­sem­ina á Bakka hafi lært af reynsl­unni frá Helguvík. Starf­semin lagð­ist tíma­bundið af í miðjum far­aldr­inum en hófst aftur síð­asta sumar og hefur gengið „glimr­andi vel“ síðan og „ekk­ert komið upp á“. Hann sagð­ist fyr­ir­fram hafa heyrt erlendis frá að það gæti tekið 2-4 ár að ná jafn­vægi í rekstri kís­il­vera.

Vil­hjálmur Árnason, for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar, spurði Friðjón hvort að hann teldi að and­staða yrði áfram við áform um end­ur­ræs­ingu í Helguvík ef allir ferlar og kröfur væru upp­fylltar en Skipu­lags­stofnun gaf nýverið út álit sitt á umhverf­is­mats­skýrslu Stakks­bergs. Var það m.a. nið­ur­staðan að hætta loft­mengun yrði mun minni miðað við áformin og þær end­ur­gætur sem ráð­ist yrði í.

[adspot]

„Í okkar huga snýst þetta um heilsu­far fyrst og fremst,“ svar­aði Friðjón. And­staðan snú­ist ekki um stór­iðju sem slíka en áhugi væri á umhverf­is­vænni starf­semi. „Við höfum núna reynsl­una af því þegar rekstur mis­tekst hrapa­lega í nálægð við byggð sem gerði það að verkum að fólk veikt­ist allt í kringum okkur. Það er óum­deilt að þetta hafði virki­lega áhrif á heilsu­far íbúa í sveit­ar­fé­lag­inu. Svo má bæta við að öll þessi verk­efni hafa kostað okkur fleiri millj­arða, það er hin hliðin og við höfum setið upp ein með allan skað­ann og sam­fé­lagið blæðir.“

Margir aðrir möguleikar

Bæj­ar­stjórnin hafi verið í við­ræðum við Arion banka um ann­ars konar rekstur á lóð­inni í Helguvík, grænni starf­semi, en nið­ur­staðan af þeim var engin. Hann benti svo á sem dæmi um fram­haldið að ekki væri t.d. hægt að fara í mat­væla­iðnað á svæð­inu því eng­inn hafi áhuga á að reka slíkt í námunda við kís­il­ver.

„Við höfum trú á því að það séu margir aðrir mögu­leikar fyrir okkur að vaxa og dafna án þess að leggja pen­ing­inn okkar í eina stóra hug­mynd eins og gert hefur verið dálítið mikið und­an­farin þrjá­tíu ár,“ sagði Friðjón. Hann sagð­ist ekki treysta þeim stofn­unum og þeim fyr­ir­tækjum sem kæmu að end­ur­reisn kís­il­vers­ins. „Ég óska þeim til ham­ingju í Norð­ur­þingi að þar hafi gengið vel. En það er ekki þannig hérna, því miður.“

Full­trúar Arion banka mættu einnig á fund umhverfis- og sam­göngu­nefndar og hér má lesa grein Kjarnans um afstöðu þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stakksberg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár