„Við munum berjast til síðasta blóðdropa“

Formaður bæj­ar­ráðs Reykja­nes­bæjar segir allt verða reynt til að stöðva end­ur­ræs­ingu kís­il­vers­ins í Helguvík. Hann hefur tjáð PCC á Bakka, sem vill kaupa verk­smiðj­una, að áhugi bæj­ar­ins á starf­sem­inni sé eng­inn.

Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, hefur tjáð stjórnendum PCC á Bakka að áhugi bæjaryfirvalda á því að endurræsa kísilverið í Helguvík sé enginn.
Friðjón Ein­ars­son, for­maður bæj­ar­ráðs Reykja­nes­bæjar, hefur tjáð stjórn­endum PCC á Bakka að áhugi bæj­ar­yf­ir­valda á því að end­ur­ræsa kís­il­verið í Helguvík sé eng­inn. Mynd: Samsett mynd

„Bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar hefur ítrekað komið skoð­unum sínum á fram­færi við Arion banka varð­andi rekstur kís­il­vers­ins,“ segir Friðjón Ein­ars­son, full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í bæj­ar­stjórn­inni og for­maður bæj­ar­ráðs. Hann segir enn mikla and­stöðu við hug­myndir bank­ans um að end­ur­ræsa starf­sem­ina bæði meðal bæj­ar­full­trúa og íbúa. „Við höfum óskað form­lega eftir sam­starfi við bank­ann um að rífa verk­smiðj­una og hefja sam­starf um atvinnu­þróun í Helguvík. Því miður hefur það ekki gengið eftir.“

[links]Mati á umhverf­is­á­hrifum á þeim áformum Stakks­bergs, sem er í eigu Arion banka, að end­ur­bæta, end­ur­ræsa og stækka kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík lauk með áliti Skipu­lags­stofn­unar sem gefið var út á gaml­árs­dag. Friðjón segir hljóðið í bæj­ar­búum „mjög dap­urt“. Afstaða til verk­smiðj­unnar hafi verið könnuð reglu­lega und­an­farin ár og hefur alltaf verið á sama veg: Íbúarnir eru alfarið á móti end­ur­ræs­ingu kís­il­vers­ins.

Fyr­ir­hug­aðar end­ur­bætur Arion banka á kís­il­verk­smiðj­unni eru að mati Skipu­lags­stofn­unar lík­legar til að fækka til­vikum sem ljós­boga­ofn er stöðv­aður og stytta tíma sem hann keyrir á skertu afli. Þá segir hún áform um að losa útblástur um skor­steina en ekki um rjáfur síu­húss, sem bætt var við vegna aðfinnslu Umhverf­is­stofn­unar, lík­leg til að leiða til mun betri dreif­ingar útblást­ursefna, stöðugri rekst­urs verk­smiðj­unnar og stuðla að bættum loft­gæðum frá því sem áður var. Engu að síður er það álit stofn­un­ar­innar að áhrif við rekstur 1. áfanga verði nokkuð nei­kvæð og áhrif fullrar fram­leiðslu fjög­urra ofna tals­vert nei­kvæð.

[adspot]

Bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar hefur ekki enn fengið ósk Arion banka um breyt­ingu á deiliskipu­lagi né aðrar óskir bank­ans um form­lega afstöðu, segir Friðjón. Slíkra umsókna er nú beðið. „Við erum í flók­inni stöðu þar sem vald sveit­ar­fé­lags­ins liggur fyrst og fremst í skipu­lagi lóða,“ segir hann spurður um hvernig bæj­ar­yf­ir­völd geti stigið inn í málið á þessu stigi. Hann bendir á að engir samn­ingar séu í gildi í dag, hvorki við höfn­ina né sveit­ar­fé­lagið.

„Við munum reyna allt sem við getum til að stöðva end­ur­ræs­ingu og munum áfram biðla til bank­ans að hætta við hana,“ segir Friðjón. „Að mínu mati á bank­inn engan rétt í þessu máli og fárán­legt í raun að bank­inn hlusti ekki á íbúa svæð­is­ins.“

Hann minnir á að það hafi verið Arion banki sem fjár­magn­aði rekstur verk­smiðju United Silicon á sínum tíma „verk­efni sem mistókst hrapa­lega og ber sem slíkur mikla ábyrgð hvernig fór. Ég trúi ekki að fjár­festar komi að verk­efn­inu vit­andi að sveit­ar­fé­lagið og íbúar flestir eru alfarið á móti rekstri þess í tún­fæt­inum.“

Bæj­ar­yf­ir­völd Í Reykja­nesbæ hafa að sögn Friðjóns heyrt af áhuga erlendra aðila sem vilja kaupa verk­smiðj­una og flytja úr landi. „Sveit­ar­fé­lagið hefur lýst yfir áhuga á að fylgja því máli eftir en bank­inn dregur fæt­urna.“

[adspot]

Kjarninn greindi frá því í morgun að PCC SE, meiri­hluta­eig­andi PCC BakkiSilicon hf., kís­il­vers­ins á Húsavík, hefur áhuga á að kaupa kís­il­málm­verk­smiðj­una í Helguvík. Friðjón sagð­ist í sam­tali við Kjarnann í gær hafa heyrt af þeim áformum og hafa tjáð for­svars­mönnum PCC „að áhugi sveit­ar­fé­lags­ins er eng­inn né heldur íbúa. Við munum berj­ast til síð­asta blóð­dropa“.

Hann segir það hlut­verk yfir­valda að gæta að heilsu íbúa og það hlut­verk taki bæj­ar­stjórnin alvar­lega. „Bæj­ar­yf­ir­völd munu skoða sína stöðu og beita öllum leiðum til að stöðva end­ur­ræs­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stakksberg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár