Eigendur kísilversins á Bakka vilja kaupa verksmiðjuna í Helguvík

PCC SE, meiri­hluta­eig­andi PCC BakkiSilicon hf., kís­il­vers­ins á Húsavík, hefur áhuga á að kaupa kís­il­málm­verk­smiðj­una í Helguvík. Þetta stað­festir Rúnar Sig­ur­páls­son, for­stjóri PCC á Bakka, við Kjarnann.

Kísilverið á Bakka.
Kís­il­verið á Bakka. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Arion banki og PCC SE, meiri­hluta­eig­andi kís­il­vers­ins PCC BakkiSilicon hf. á Húsavík, hafa und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu varð­andi mögu­leg kaup á kís­il­verk­smiðj­unni í Helguvík. Þetta stað­festir Rúnar Sig­ur­páls­son, for­stjóri PCC á Bakka, við Kjarnann. „Hvort það leiði til kaupa PCC á verk­smiðj­unni verður tím­inn að leiða í ljós,“ segir hann.

[links]Arion banki er eig­andi kís­il­vers­ins í Helguvík í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt, Stakks­berg. Verk­smiðjan hefur ekki verið í rekstri frá hausti 2017. Félagið Sameinað Sílikon (United Silicon) átti verk­smiðj­una en rekstur hennar, sem hófst í nóv­em­ber 2016, gekk brös­ug­lega frá upp­hafi og stóð aðeins í tíu mán­uði eða þar til Umhverf­is­stofnun stöðv­aði starf­sem­ina vegna ítrek­aðra bil­ana og kvart­ana íbúa í nágrenni hennar um heilsu­fars­leg óþæg­indi. Sameinað Sílikon var tekið til gjald­þrota­skipta í upp­hafi árs 2018 og eign­að­ist Arion banki eignir þrota­bús­ins í kjöl­farið.

Síðan þá hefur verið stefnt að því að selja verk­smiðj­una. Árið 2019 hófst mat á umhverf­is­á­hrifum þeirra áforma bank­ans að gera end­ur­bætur á henni, end­ur­ræsa hana og stækka með því að bæta þremur ljós­boga­ofnum við þann eina sem fyrir er. Matinu lauk með áliti Skipu­lags­stofn­unar á gaml­árs­dag.

Að mati stofn­un­ar­innar eru fyr­ir­hug­aðar end­ur­bætur lík­legar til að fækka til­vikum sem ljós­boga­ofn er stöðv­aður og stytta tíma sem hann keyrir á skertu afli. Þá eru áform um að losa útblástur um skor­steina en ekki um rjáfur síu­húss, sem bætt var við vegna aðfinnslu Umhverf­is­stofn­unar, lík­leg til að leiða til betri dreif­ingar útblást­ursefna, stöðugri rekst­urs verk­smiðj­unnar og stuðla að bættum loft­gæðum frá því sem áður var. Engu að síður er það álit stofn­un­ar­innar að áhrif við rekstur 1. áfanga verði nokkuð nei­kvæð og áhrif fullrar fram­leiðslu fjög­urra ofna tals­vert nei­kvæð.

Bæj­ar­yf­ir­völd í Reykja­nesbæ eru mót­fallin því að verk­smiðjan verði end­ur­ræst og rímar það við skoðun íbúa sem í tuga­tali sendu inn athuga­semdir við fyr­ir­ætl­an­irnar í umhverf­is­mats­ferl­inu.

Eini valmöguleikinn að rífa verksmiðjuna

„NEI NEI NEI. Í mínum huga er það alveg ljóst að eini val­mögu­leik­inn i þessu máli er að rífa verk­smiðj­una,“ skrif­aði Friðjón Ein­ars­son, full­trúi Sam­fylk­ingar í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar og for­maður bæj­ar­ráðs, á Facebook-síðu sína eftir að nið­ur­staða Skipu­lags­stofn­unar lá fyrir. Guð­brandur Ein­ars­son, for­seti bæj­ar­stjórnar, sagði í sam­tali við Kjarnann í upp­hafi vik­unnar að íbúar bæj­ar­fé­lags­ins myndu aldrei sætt­ast á að rekstur kís­il­vers­ins færi aftur af stað „og ég ótt­ast að veru­legur ófriður verði nái þetta fram að ganga“.

Í sam­tali við Kjarnann í gær sagð­ist Friðjón hafa heyrt af áhuga PCC á því að kaupa verk­smiðj­una í Helguvík „og ég hef tjáð for­svars­mönnum PCC að áhugi sveit­ar­fé­lags­ins er eng­inn né heldur íbúa“.

PCC tapaði sjö milljörðum 2020

Þýska félagið PCC SE átti í haust 86,5 pró­sent hlut í kís­il­ver­inu á Bakka á móti 13,5 pró­sent hlut Bakka­stakks, fjár­fest­ing­ar­fé­lags Íslands­banka og íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Í frétt Við­skipta­blaðs­ins í byrjun sept­em­ber sagði að Bakka­stakkur hefði afskrifað stærstan hluta af fjár­fest­ingu sinni í verk­efn­inu. Þar kom enn­fremur fram að eigið fé PCC á Bakka hafi verið nei­kvætt um þrjá millj­arða króna í lok árs­ins 2020 í kjöl­far ríf­lega sjö millj­arða króna taps. Ríflega millj­arðs króna tap varð var á rekstr­inum árið 2019. Í haust var unnið að fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins í annað sinn á tæpum tveimur árum.

Um mitt árið 2020 var rekstur kís­il­vers­ins á Bakka stöðv­aður og um 80 starfs­mönnum sagt upp störfum. Ástæð­urnar voru sagðar erf­iðar mark­aðs­á­stæður. Í frétt Við­skipta­blaðs­ins er rifjað upp að bil­anir og rekstr­ar­erf­ið­leikar hafi sett svip á rekst­ur­inn frá gang­setn­ingu í apríl árið 2018. Síðasta vor hófst svo rekst­ur­inn að nýju. Kís­il­verð líkt og verð ann­arra hrá­vara hækk­aði tölu­vert á síð­asta ári eftir nið­ur­sveiflu í upp­hafi heims­far­ald­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stakksberg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár