Ekki í samræmi við viðhorf í loftslagsmálum „að fara að brenna kolum í Helguvík“

Reykja­nes­bær hefur ítrekað komið þeim sjón­ar­miðum auk­ins meiri­hluta bæj­ar­stjórnar á fram­færi við Arion banka að það sé eng­inn vilji fyrir end­ur­ræs­ingu kís­il­verk­smiðj­unnar í Helguvík. Bankinn á nú engu að síður í við­ræðum við áhuga­sama kaup­endur.

Hvorki íbúar í Reykjanesbæ né meirihluti bæjarstjórnar vill að kísilverið í Helguvík verði ræst að nýju.
Hvorki íbúar í Reykja­nesbæ né meiri­hluti bæj­ar­stjórnar vill að kís­il­verið í Helguvík verði ræst að nýju. Mynd: United Silicon

„Ég hef verið á móti kís­il­veri í Helguvík og sú afstaða hefur ekk­ert breyst,“ segir Guð­brandur Ein­ars­son, for­seti bæj­ar­stjórnar Reykja­nes­bæjar, um þau tíð­indi frá eig­anda verk­smiðj­unnar, Arion banka, að við­ræður við áhuga­sama kaup­endur standi yfir. „Það getur varla verið í sam­ræmi við núver­andi við­horf í lofts­lags­málum að fara að brenna kolum í Helguvík,“ segir Guð­brandur við Kjarnann og minnir á að íbúar í Reykja­nesbæ séu einnig mót­fallnir end­ur­ræs­ingu verk­smiðj­unnar. Um 350 athuga­semdir frá ein­stak­lingum bár­ust Skipu­lags­stofnun vegna frum­mats­skýrslu Stakks­bergs í fyrra um fyr­ir­hug­aðar end­ur­bæt­ur, end­ur­ræs­ingu og marg­falda stækkun kís­il­verk­smiðj­unnar í Helgu­vík. Allar voru þær frá fólki, flestu úr Reykja­nesbæ, sem lagð­ist gegn því að kís­il­verið yrði end­ur­ræst.

Frið­jón Ein­ars­son, full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í bæj­ar­stjórn og for­maður bæj­ar­ráðs, tekur undir með Guð­brandi og segir við Kjarnann að meiri­hluti bæj­ar­stjórnar sé „alfarið á móti end­ur­ræs­ingu verk­smiðj­unnar. Öllum ætti að vera ljóst að okkar skoðun hefur ekk­ert breyst varð­andi rekstur verk­smiðj­unnar“.

[adspot]

Líkt og Kjarninn greindi nýlega frá segja stjórn­endur Arion banka jákvæðar breyt­ingar á mark­aði fyrir kísil hafa leitt til þess að mik­ill áhugi hafi vaknað á eign á dótt­ur­fé­lagi bank­ans, Stakks­bergi, en þar er um að ræða kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík sem áður var í eigu United Silicon.

Áfalla­saga kís­il­vers­ins í Helgu­vík hófst löngu áður en kynt var upp í ljós­boga­ofn­inum Ísa­bellu í fyrsta skipti. Ísa­bella var óstöðug allt frá upp­hafi og átti ítrekað eftir að hiksta og hósta með til­heyr­andi mengun þar til yfir lauk. Það kom alvar­lega niður á fólki sem bjó í nágrenn­inu sem og bæj­ar­fé­lag­inu er stólað hafði á tekjur frá fyr­ir­tæki sem var orðið gjald­þrota rúmu ári eftir að fyrstu neist­arnir voru bornir að Ísa­bellu.

[links]Helsti lán­ar­drott­inn fyr­ir­tæk­is­ins, Arion banki, fékk svo að finna fyrir því og end­aði að lokum með verk­smiðj­una í fang­in­u. ­

Rúm­lega 10.500 tonn af kolum og tæp­lega 3.000 tonn af við­ar­kolum voru notuð á þeim tæp­lega tíu mán­uðum sem kís­il­verk­smiðja United Silicon í Helgu­vík starf­aði með hléum á árunum 2016-2017. Þá voru 97,5 tonn af dísilolíu og bens­íni not­uð. Á þessum tíma var losun koltví­sýr­ings frá jarð­efna­elds­neyti 31.410 tonn og frá lífmassa 33.847 tonn – sam­tals um 65.257 tonn. Losuð voru 115 tonn af brenni­steins­dí­oxíði út í and­rúms­loftið en vegna „tækni­legra örð­ug­leika“ voru gögn úr mæli­bún­aði fyrir svifryk ekki talin áreið­an­leg.

Brenna þarf þúsundum tonna af kolum

Samkvæmt fyr­ir­ætl­unum Arion banka sem settar voru fram í frum­mats­skýrslu, á að bæta við þremur ljós­boga­ofnum og fram­leiða 100 þús­und tonn af kísli á ári. Til þess þarf 80.000 tonn af kol­um, 8.000 tonn af við­ar­kolum og 90 þús­und tonn af við­ar­flís ásamt þús­undum kílóa af fleiri hrá­efn­um.

Í síð­asta birta árs­hluta­reikn­ingi Arion banka sagði að félagið væri á loka­metr­unum með nýtt umhverf­is­mat á kís­il­verk­smiðj­unni. Áætl­aður kostn­aður við þær úrbætur sem átti að ráð­ast í á verk­smiðj­unni sam­kvæmt úrbóta­á­ætlun Stakks­bergs er um 4,5 millj­arðar króna. ­Á­ætl­anir um breyt­ingar á verk­smiðj­unni eru sagðar vera á loka­stigi sam­þykkt­ar.

Þetta er tölu­verður við­snún­ingur frá því sem fram kom á upp­gjörs­fundi Arion banka sem fram fór í febr­úar síð­ast­liðn­um. Þar sagði Bene­dikt Gísla­son, banka­stjóri Arion banka, að þar sem bank­inn bók­­færði aðeins hrakvirði á verk­smiðj­una væri það „vís­bend­ing um að litl­ar vonir séu um að verk­­smiðjan muni starfa aft­­ur, á­huga­vert væri að sjá aðra og grænni starf­­semi eiga sér stað þar í fram­­tíð­inn­i.”

Nýtt deiliskipu­lag er for­­senda þess að end­­ur­­upp­­­bygg­ing verk­smiðj­unnar geti átt sér stað og bæj­­­ar­­stjórn Reykja­­nes­bæjar hefur vald til að hafna eða sam­­þykkja til­­lögu að deiliskipu­lagi. Ákvörðun um hvort kís­­il­­málm­­verið hefur starf­­semi á ný er því póli­­tísk og ræðst í atkvæða­greiðslu kjör­inna full­­trúa.

Kjarn­inn greindi frá því í sept­­em­ber í fyrra að miðað við þau svör sem bár­ust frá bæj­­­ar­­full­­trúum í Reykja­­nesbæ um afstöðu þeirra til máls­ins sé ljóst að meiri­hluti núver­andi bæj­­­ar­­stjórnar mun ekki gefa grænt ljós á það að kís­­il­­málm­­verk­­smiðjan í Helg­u­vík verði end­­ur­bætt, ræst að nýju og stækkuð líkt og Stakks­berg fyr­ir­hug­­ar.

Vilja að verksmiðjan verði rifin eða starfsemi breytt

Forseti bæj­ar­stjórnar segir við Kjarnann nú, í til­efni fregna af áhuga á kaupum á verk­smiðj­unni, að Reykja­nes­bær hafi ítrekað komið þeim sjón­ar­miðum auk­ins meiri­hluta bæj­ar­stjórnar á fram­færi við Arion banka að það sé eng­inn vilji fyrir end­ur­ræs­ingu kís­il­verk­smiðj­unnar í Helguvík. Stjórn­völd hafi einnig átt sam­ráð við bank­ann um mögu­leika á ann­ars konar nýt­ingu mann­virkja. „Það hefur hins vegar ekki skilað neinni nið­ur­stöðu enn sem komið er,“ segir Guð­brandur.

Um þetta atriði segir Friðjón for­maður bæj­ar­ráðs að fram hafi farið óform­legar við­ræður við áhuga­sama aðila um nið­ur­rif verk­smiðj­unnar og einnig við eig­endur hennar. „Ekkert er ákveðið í þeim efnum að okkur vit­andi en væntum við­bragða frá eig­endum fljót­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Arionbanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár