Taconic Capital keypti fimm prósenta hlut í Arion banka

Banda­ríski vog­un­ar­sjóð­ur­inn Taconic Capital keypti í gær tæp­lega fimm pró­senta hlut í Arion banka fyrir lið­lega 6,5 millj­arða króna. Seljandi hluta­bréf­anna var eign­ar­halds­fé­lagið Kaupþing, stærsti hlut­hafi bank­ans.

Banda­ríski vog­un­ar­sjóð­ur­inn Taconic Capital keypti í gær tæp­lega fimm pró­senta hlut í Arion banka fyrir lið­lega 6,5 millj­arða króna. Seljandi hluta­bréf­anna var eign­ar­halds­fé­lagið Kaupþing, stærsti hlut­hafi bank­ans. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Taconic Capital átti fyrir kaupin 9,99 pró­senta hlut í Arion banka. Í gær keypti sjóð­ur­inn síðan sam­an­lagt 90,7 millj­ónir hluta í bank­anum sem jafn­gildir tæp­lega fimm pró­senta hlut miðað við útistand­andi hlutafé bank­ans. Samkvæmt Frétta­blað­inu voru kaupin gerð á geng­inu 72 krónur á hlut og var kaup­verðið því ríf­lega 6,5 millj­arðar króna. Eftir lokun mark­aða í gær stóð gegni hluta­bréfa í bank­anum í 77,4 krónum á hlut.

[links]Greint var frá því í síð­ustu viku að stærsti eig­andi Arion banka, Kaup­þing ehf., hafi selt tíu pró­senta hlut í bank­anum. Virði hlut­ar­ins miðað við skráð gengi Arion banka þegar hann var seldur var um 15 millj­arðar króna. Ekki var til­greint hver kaup­and­inn er en Kjarninn greindi frá því á mánu­dag að Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins og Íslands­banki, sem er að öllu leyti í eigu rík­is­ins, væru komin inn á hlut­haf­alista yfir stærstu eig­endur Arion banka. LSR á 1,1 pró­sent hlut í bank­anum og Kjarninn fékk það stað­fest að hann hefði keypt þann hlut af Kaup­þingi í vik­unni á undan. Miðað við gengi bréfa í Arion banka í byrjun síð­ustu viku hefur kaup­verðið verið rúm­lega 1,6 millj­arðar króna.

Þá keypti fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Stoðir keypti einnig stóran hluta þeirra tíu pró­senta sem Kaupþing seldi í síð­ustu viku. Í kjöl­far kaupanna er fjár­fest­inga­fé­lagið orðið stærsti íslenski einka­fjár­festir­inn í hlut­hafa­hópi Arion banka með um 4,22 pró­senta hlut í Arion banka.

Trygg­inga­fé­lagið TM, sem er líka á meðal eig­enda Stoða, bætti einnig við sig hlut í útboði Kaup­þings. Það gerði Vogun, félag að stærstum hluta í eigu Krist­jáns Lofts­sonar og fjöl­skyldu hans, sem seldu hlut sinn í HB Granda í fyrra, líka. Jafn­framt á Sigurður Bollason, sem er líka fjórði stærsti hlut­hafi Kviku banka með 6,17 pró­sent eign­ar­hlut, og félög tengd honum nú um tveggja pró­senta hlut í Arion banka. Hluti þeirrar eignar er í gegnum fram­virka samn­inga hjá Íslands­bank

Íslands­banki var skráður með 2,84 pró­sent hlut í Arion banka síð­asta mánu­dag en sá hlutur hefur nú minnkað niður í 2,54 pró­sent. Tals­maður Íslands­banka vildi ekki upp­lýsa um hvort bank­inn hefði verið að kaupa fyrir eigin bók eða fyrir hönd við­skipta­vina þegar Kjarninn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um það á mánu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Arionbanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár