Eigandinn segir mikinn kaupáhuga á kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík

Í febr­úar sagði banka­stjóri Arion banka að litlar vonir væru um að kís­il­verk­smiðja United Silicon í Helguvík myndi starfa aftur. Nú segir bank­inn að mik­ill áhugi sé á henni vegna breyttra mark­aðs­að­stæðna og að við­ræður standi yfir við áhuga­sama kaup­endur.

Skólfustungur var tekin af kísilverksmiðjunni í ágúst 2014. Á meðal þeirra sem tóku hana voru þáverandi forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, og þáverandi iðnaðarráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir.
Skólf­ustungur var tekin af kís­il­verk­smiðj­unni í ágúst 2014. Á meðal þeirra sem tóku hana voru þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, og þáver­andi iðn­að­ar­ráð­herra, Ragn­heiður Elín Árna­dóttir. Mynd: stjornarrad.is

Stjórn­endur Arion banka segja að jákvæðar breyt­ingar á mark­aði fyrir kísil hafi leitt til þess að mik­ill áhugi hafi skap­ast á eign dótt­ur­fé­lags bank­ans, Stakks­bergs, en þar er um að ræða verk­smiðju í Helguvík á Suð­ur­nesjum sem áður var kennd við fyr­ir­tækið United Silicon. Á kynn­ingu sem fór fram á mark­aðs­degi bank­ans á mið­viku­dag segir að við­ræður við áhuga­sama aðila standi yfir.

Bókfært virði Stakks­bergs í bókum Arion banka var tæp­lega 1,7 millj­arður króna í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins.

Í síð­asta birta árs­hluta­reikn­ingi Arion banka sagði að félagið væri á loka­metr­unum með nýtt umhverf­is­mat á kís­il­verk­smiðj­unni. Áætlaður kostn­aður við þær úrbætur sem átti að ráð­ast í á verk­smiðj­unni sam­kvæmt úrbóta­á­ætlun Stakks­bergs er um 4,5 millj­arðar króna. Áætlanir um breyt­ingar á verk­smiðj­unni eru sagðar vera á loka­stigi sam­þykktar.

Sagði litlar vonir um að kveikt yrði aftur á verksmiðjunni

Þetta er tölu­verður við­snún­ingur frá því sem fram kom á upp­gjörs­fundi Arion banka sem fram fór í febr­úar síð­ast­liðnum. Þar sagði Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, að þar sem bank­inn bók­færði aðeins hrakvirði á verk­smiðj­una væri það „vís­bend­ing um að litl­ar vonir séu um að verk­smiðjan muni starfa aft­ur, á­huga­vert væri að sjá aðra og grænni starf­semi eiga sér stað þar í fram­tíð­inn­i.”

[adspot]Bók­fært virði félags­ins, sem er það sama og nú, end­ur­spegl­aði „einkum verð­mæti lóðar og end­ur­sölu­virði tækja­bún­að­ar.“

Arion banki var stærsti kröf­u­hafi verk­efn­is­ins og tók yfir verk­smiðj­una. Til­­­gang­­ur­inn átti að vera sá að greiða úr þeim vand­­kvæðum sem voru til staðar við rekstur henn­­ar, upp­­­fylla þau leyfi sem þurfti til og selja hana síðan þegar verk­­smiðjan væri orðin starf­hæf að nýju.

Bank­inn segir í árs­reikn­ingi sínum að Stakks­berg sé nú á loka­stigi vinnu við gerð nýs umhverf­is­mats fyrir verk­smiðj­una. „Mark­mið bank­ans er að selja rekstur Stakks­bergs á grund­velli þeirrar vinnu sem unnin hefur verið í þessu skyn­i.“

Mikil and­staða íbúa við end­ur­ræs­ingu

Erfitt er þó að sjá að kís­il­málm­verk­smiðjan verði end­ur­ræst, að minnsta kosti í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð. Þar ræður miklu gríð­ar­lega and­staða íbúa sem búa í nágrenni við verk­smiðj­una sem hafa kvartað mjög undan mengun sem frá henni kom á meðan að verk­smiðjan var starf­rækt.

Nýtt deiliskipu­lag er for­senda þess að end­ur­upp­bygg­ing verk­smiðj­unnar í geti átt sér stað og bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar hefur vald til að hafna eða sam­þykkja til­lögu að deiliskipu­lagi. Ákvörðun um hvort kís­il­málm­verið hefur starf­semi á ný er því póli­tísk og ræðst í atkvæða­greiðslu kjör­inna full­trúa. [links]

Kjarn­inn greindi frá því í sept­em­ber í fyrra að miðað við þau svör sem bár­ust frá bæj­ar­full­trúum í Reykja­nesbæ um afstöðu þeirra til máls­ins sé ljóst að meiri­hluti núver­andi bæj­ar­stjórnar mun ekki gefa grænt ljós á það að kís­il­málm­verk­smiðjan í Helgu­vík verði end­ur­bætt, ræst að nýju og stækkuð líkt og Stakks­berg fyr­ir­hug­ar.

Frum­mats­skýrsla Stakks­bergs um end­ur­bætur og stækkun kís­il­vers­ins í Helgu­vík var aug­lýst í byrjun maí í fyrra. Í 1. áfanga er m.a. ráð­gert að reisa einn 52 metra háan skor­stein og nýta einn ljós­boga­ofn, líkt og United Silicon gerði, til fram­leiðsl­unn­ar. Að loknum 4. áfanga yrði verk­smiðjan full­byggð með fjórum ljós­boga­ofnum og tveimur 52 metra háum skor­stein­um.

Umhverf­is­stofnun sagði í umsögn sinni um frum­mats­skýrsl­una að áhrifin af starf­sem­inni yrðu á heild­ina litið tals­vert nei­kvæð. Áhrif á loft­gæði yrðu sömu­leiðis tals­vert nei­kvæð og mögu­lega veru­lega nei­kvæð. Einnig yrðu áhrif á lykta­meng­un, á vatnafar og ásýnd tals­vert nei­kvæð.

Tugir íbúa Reykja­nes­bæjar skil­uðu athuga­semdum við skýrsl­una. Í þeim var farið yfir þau nei­kvæðu heilsu­fars­legu áhrif sem verk­smiðjan hafði á starfs­tíma sínum og allir löggð­ust þeir gegn því að verk­smiðjan verði end­ur­ræst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár