87 prósent orkunnar seld til stórnotenda

Verð á kís­il­málmi hækk­aði um 450 pró­sent í fyrra miðað við árið 2020. Álverð hækk­aði líka eftir að það versta í heims­far­aldr­inum var yfir­staðið. Þetta er m.a. ástæða fyrir því að stór­iðjan á Íslandi varð orku­frek­ari í fyrra.

Kárahnjúkavirkjun er langstærsta virkjun á Íslandi.
Kára­hnjúka­virkjun er langstærsta virkjun á Íslandi. Mynd: east.is

Nýir raf­orku­samn­ingar, hækkun á afurða­verði og aukin eft­ir­spurn á mörk­uðum gerðu það að verkum að orku­sala hjá Lands­virkjun jókst í fyrra miðað við árið 2020. Á síð­asta ári var salan um 14 terawattstundir, og þar af keyptu við­skipta­vinir á stórnot­enda­mark­aði, málm­bræðslur og gagna­ver, um 87 pró­sent eða um 12,2 terawattstundir. Stærsti hluti orku­sölu var til við­skipta­vina í áliðn­aði.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í árs­skýrslu Lands­virkj­unar sem kom út í lok síð­ustu viku. Um 1.750 megawött (MW) þarf til að fram­leiða 14 TWst af raf­orku á ári. Um það bil 1.525 MW þarf því til að fram­leiða þá orku sem stórnot­endur keyptu af Lands­virkjun í fyrra.

Kára­hnjúka­virkjun, langstærsta virkjun lands­ins, er 690 MW að upp­settu afli og getur unnið um 4,8 TWst á ári. Til að setja þetta í sam­hengi þá þurfti að nýta því sem nemur öllu upp­settu afli Kára­hnjúka­virkj­unar, Blöndu­virkj­unar, Búð­ar­háls­virkj­unar, Búr­fells­virkj­unar, Búrfells II og Hraun­eyja­foss­virkj­unar til að anna orku­kaupum stórnot­enda Lands­virkj­unar í fyrra.

[adspot]

Heild­ar­fram­leiðsla raf­orku allra afl­stöðva orku­fyr­ir­tækj­anna á Íslandi hefur und­an­farið verið um 20 TWst á ári. Um 2.500 MW vél­ar­afl er nýtt til fram­leiðsl­unnar. Íslenski raf­orku­mark­að­ur­inn skipt­ist í tvo aðskilda und­ir­mark­aði – almennan markað og stórnot­enda­markað. Stórnot­endur nota um 80 pró­sent af raf­orkunni á Íslandi, önnur fyr­ir­tæki um 15 pró­sent og heim­ili um 5 pró­sent.

Árið 2020 var mjög sér­stakt að mörgu leyti í efna­hags­legu til­liti. Faraldur COVID-19 lit­aði alla anga sam­fé­lags­ins, eft­ir­spurn eftir þjón­ustu jókst en minnk­aði eftir vörum. En í fyrra breytt­ist allt og það nokkuð hratt. Við­snún­ingur varð á erlendum mörk­uðum og ál- og kís­il­verð hækk­aði skarpt eftir að hafa náð sögu­legu lág­marki árið 2020. Margir sam­verk­andi þættir höfðu áhrif á hækk­andi orku- og afurða­verð, segir í árs­skýrslu Lands­virkj­unar. Efna­hags­lífið tók við sér, eft­ir­spurn jókst hratt og neyt­endur færðu sig fljótt yfir í kaup á vörum í stað þjón­ustu.

Framboð á áli og kís­il­málmi var minna í fyrra en vænta mátti, af ýmsum orsökum. „Þar má fyrst nefna áhrif Kína, en stefna Kínverja í umhverf­is­málum felur í sér að draga bæði úr raf­orku­notkun og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda,“ segir í skýrslu Lands­virkj­unar. Settar voru tak­mark­anir á raf­orku­notkun og bæði ál- og kís­ilfram­leið­endur fengu fyr­ir­mæli um að draga úr fram­leiðslu.

Kísilverð hækkaði um 200 prósent á tveimur mánuðum

Munur á lægsta álverði 2020 og hæsta verði 2021 var um 120 pró­sent, en með­al­talið var 43 pró­sent hærra. Í lok árs­ins var álverð í kringum 2.600 doll­arar á tonnið. Til sam­an­burðar er með­al­verð síð­ustu tíu ára um 1.900 doll­arar á tonnið. Hækkun á verði kís­il­málms milli ára nemur að sögn Lands­virkj­unar um 450 pró­sentum og þar af hækk­aði það yfir 200 pró­sent á ein­ungis tveimur mán­uðum, frá sept­em­ber og út októ­ber 2021.

Lands­virkjun segir raf­orku­verð til stórnot­enda á Íslandi aldrei hafa verið hærra sem rekja má til hækk­andi afurða­verðs stórnot­enda og hækk­andi verðs á nor­ræna raf­orku­mark­aðnum Nord Pool. Árið 2020 var með­al­verð Lands­virkj­unar 21 doll­ari á mega­vatt­stund en 32,7 doll­arar á mega­vatt­stund fyrir árið 2021, sem gerir um 56 pró­sent hækkun milli ára.

Raforkukerfið „því sem næst fullselt“

„Verðmæti end­ur­nýj­an­legrar orku er að aukast og hefur þrýst­ingur frá allri virð­is­keðj­unni um lágt kolefn­is­spor mikil áhrif þar um. Einnig skiptir þetta sköpum í bar­átt­unni við lofts­lags­breyt­ingar,“ segir Lands­virkjun og að þessi þróun sé stað­fest með auk­inni eft­ir­spurn. Íslenska raf­orku­kerfið sé nú „því sem næst fullselt“ og núver­andi við­skipta­vinir í ýmsum iðn­greinum vilji auka raf­orku­kaup sín. Einnig vilji nýjar teg­undir við­skipta­vina koma til Íslands, t.d. fram­leið­endur raf­elds­neytis eða ann­ars græns iðn­aðar.

Fleiri tugir virkjanahugmynda

Orku­skipti, sem stjórn­völd hafa sett á odd­inn sem lausn til að draga úr losun og vinna gegn hinum mann­gerða lofts­lags­vanda, eru talin þurfa á bil­inu 4-24 TWst af orku á ári, eftir því hversu mikið inn­lent raf­elds­neyti verður fram­leitt hér á landi, hversu langt verður gengið í orku­skiptum í öllum sam­göngum og hversu miklum hag­vexti er reiknað með. Þetta er nið­ur­staða skýrsl­unnar Staða og áskor­anir í orku­málum sem unnin var af starfs­hópi er Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra skip­aði í byrjun árs.

En hvaðan ætti öll þessi orka að koma?

[links]Í núgild­andi ramma­á­ætlun, sem sam­þykkt var á þingi 2013 og við­bætur gerðar á árið 2015, eru virkj­un­ar­kostir með sam­tals 1.151 MW að afli. Árleg orku­geta þeirra er um 9,2 TWst. Þessir kostir eru ýmist í jarð­varma eða vatns­afli og fæstir hafa nú þegar orðið að veru­leika. Má þar nefna fjölda jarð­hita­virkj­ana á Reykja­nesi og á Kröflu­svæði, vatns­afls­virkj­un­ina Hvamms­virkjun í neðri hluta Þjórsár að ógleymdri Hval­ár­virkjun í Árnes­hreppi. Orku­stofnun hefur aðeins gefið út virkj­un­ar­leyfi fyrir þrjá kosti í nýt­ing­ar­flokki gild­andi ramma­á­ætl­unar: Gráhnúka á Heng­il­svæði, Hvera­hlíð á sama svæði og Þeista­reyki. Að þeim frá­töldum eru því í nýt­ing­ar­flokki sam­tals um 764 MW af áætl­uðu afli í tíu virkj­ana­kostum.

Fyrir Alþingi liggur nú til­laga að flokkun virkj­ana­kosta á grunni 3. áfanga ramma­á­ætl­unar. Þar eru til­lögur um átta nýja virkj­ana­kosti í nýt­ing­ar­flokk sem bæt­ast við þá sem eru þar fyrir. Þessir átta virkj­ana­kostir eru sam­tals með um 657 MW upp­setts afls. Árleg orku­geta er um 4,6 TWst.

Með sam­þykkt Alþingis á 3. áfanga, eins og hann er lagður fram, yrðu sam­tals 1.421 MW í nýt­ing­ar­flokki í 18 mögu­legum virkj­ana­kostum. Um 80 virkj­un­ar­kostir til við­bótar eru í ferli verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar sem meta þarf og gera til­lögur að flokkun í nýt­ingu, bið eða vernd.

Stóriðjan þarf meira

Fjöl­margar hug­myndir að vind­orku­verum hafa svo sprottið upp síð­ustu ár. Engin slík er í gild­andi ramma­á­ætlun, einn er í nýt­ing­ar­flokki óaf­greiddu til­lög­unnar að þriðja áfanga – en margar liggja á borði verk­efn­is­stjórnar 5. áfanga ramma­á­ætl­unar. Stjórn­völd hyggj­ast setja sér­lög um með­ferð slíkra kosta.

Samkvæmt raf­orku­spá orku­spár­nefndar er gert ráð fyrir að stórnot­endur, þ.e. málm­bræðslur og gagna­ver, noti rúm­lega 16 TWst af orku á þessu ári, 8,5 pró­sentum meira en árið 2020. Samkvæmt spánni mun orku­þörf heim­ila lands­ins aukast um þrjú pró­sent.

Skiptar skoð­anir eru um hvaða leiðir eigi að fara til að minnka áhrif lofts­lags­breyt­inga. Þær eru einnig skiptar þegar kemur að aðgerð­inni „orku­skipti“. Álita­efnin varða meðal ann­ars mis­mun­andi mat á því hve mikla raf­orku þurfi til orku­skipta í sam­göngum og til fullra orku­skipta, á hvaða land­svæðum hennar skuli aflað, og hvernig miðlað, og loks með hvaða vinnslu­að­ferðum raf­orkunnar er aflað.

Engar sjálfstæðar greiningar

Land­vernd segir til að mynda að ef skýrsla starfs­hóps umhverfis- og orku­mála­ráð­herra um stöðu og horfur í orku­málum verði grund­völlur ákvarð­ana­töku rík­is­stjórn­ar­innar sé „ljóst að nátt­úra Íslands á sér engan tals­mann í rík­is­stjórn­inni“. Samtökin telja að skýrslan gefi ekki skýra mynd af því sem henni var ætlað að sýna – og að ekki hafi verið til staðar grein­ingar eða gögn sem unnin voru af hlut­lausum aðilum um vænta orku­notkun til fram­tíðar. „Starfs­hóp­ur­inn vann ekki sjálf­stæðar grein­ingar heldur tók við grein­ingum orku­geirans og gerði þær að sínum,“ sagði í til­kynn­ingu Land­verndar.

Í skýrsl­unni sé í raun ekki tekið á stærsta álita­mál­inu sem teng­ist orku­vinnslu á Íslandi, sem sé sú eyði­legg­ing íslenskrar nátt­úru sem orku­vinnsl­unni fylgir. „Náttúra lands­ins og víð­erni eru und­ir­staða stærstu útflutn­ings­greinar okkar, en er einnig gríð­ar­lega verð­mæt til úti­vistar, bættrar lýð­heilsu og auk­inna lífs­gæða. Náttúra Íslands hefur gildi í sjálfu sér og nátt­úru­vernd er einnig lofts­lags­að­gerð.“

Land­vernd segir enn­fremur að skýrslan taki ekki til margra raun­veru­lega orku­spar­andi aðgerða sem séu grund­völlur orku­skipta eins og til dæmis fjöl­breytts ferða­máta, fækk­unar flug­ferða og minnk­aðrar elds­neyt­is­notk­unar sjáv­ar­út­vegs­ins.

Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur, hefur einnig gagn­rýnt umræð­una um hina miklu orku sem þurfi til orku­skipta. Hann sagði m.a. í aðsendri grein í des­em­ber að óselt raf­magn á síð­asta ári, miðað við fulla vinnslu­getu, hafi verið nóg til að knýja alla einka­bíla í land­inu. „Þannig að það vantar ekk­ert raf­magn á raf­bíla,” sagði hann. Á árs­fundi OR sem fram fór fyrir helgi sagði hann svo að mik­ill þrýst­ingur væri nú á að virkja meira en að það þætti honum ekki rétt­læt­an­legt á þessu stigi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár