Landvernd segir „draumóra orkugeirans“ birtast í skýrslu starfshóps um orkumál

Land­vernd segir að ef skýrsla um stöðu og horfur í orku­málum, sem kynnt var í gær, verði grund­völlur ákvarð­ana­töku rík­is­stjórn­ar­innar í orku­málum næstu ára sé „ljóst að nátt­úra Íslands á sér engan tals­mann í rík­is­stjórn­inni“.

Auður Önnu Magnúsdóttir er framkvæmdastjóri Landverndar.
Auður Önnu Magn­ús­dóttir er fram­kvæmda­stjóri Land­verndar. Mynd: Bára Huld Beck

Land­vernd segir að ef skýrsla um stöðu og horfur í orku­málum, sem kynnt var í gær, verði grund­völlur ákvarð­ana­töku rík­is­stjórn­ar­innar í orku­málum næstu ára sé „ljóst að nátt­úra Íslands á sér engan tals­mann í rík­is­stjórn­inni“. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá nátt­úru­vernd­ar­sam­tök­unum í dag, þar sem skýrslan er gagn­rýnd.

Land­vernd telur að skýrsla starfs­hóps­ins gefi ekki skýra mynd af því sem henni var ætlað að sýna – og að ekki hafi verið til staðar grein­ingar eða gögn sem unnin voru af hlut­lausum aðilum um vænta orku­notkun til fram­tíðar. „Starfs­hóp­ur­inn vann ekki sjálf­stæðar grein­ingar heldur tók við grein­ingum orku­geirans og gerði þær að sínum,“ segir í til­kynn­ingu Land­verndar.[links]

Samtökin segja að í skýrsl­unni sé í raun ekki tekið á stærsta álita­mál­inu sem teng­ist orku­vinnslu á Íslandi, sem sé sú eyði­legg­ing íslenskrar nátt­úru sem orku­vinnsl­unni fylgir.

„Náttúra lands­ins og víð­erni eru und­ir­staða stærstu útflutn­ings­greinar okkar, en er einnig gríð­ar­lega verð­mæt til úti­vistar, bættrar lýð­heilsu og auk­inna lífs­gæða. Náttúra Íslands hefur gildi í sjálfu sér og nátt­úru­vernd er einnig lofts­lags­að­gerð,“ segir Land­vernd.

Í til­kynn­ingu Land­verndar er vísað til þess sem fram kemur í skýrsl­unni, að sátt verði að ríkja um orku­ver. „Það getur aldrei orðið ef ekki er hægt að treysta vinnu­brögð­unum og orku­geir­inn fær að stjórna umræð­unni, ákvarð­ana­töku og laga­setn­ingu. Þessi skýrsla er skýrt dæmi um ítök orku­geirans í þessu mik­il­væga hags­muna­máli þjóð­ar­innar, hið sama gildir um nýleg lög um mat á umhverf­is­á­hrifum og tafir á afgreiðslu ramma­á­ætl­unar. Ef þessi skýrsla verður grund­völlur ákvarð­ana­töku rík­is­stjórn­ar­innar í orku­málum næstu ára er ljóst að nátt­úra Íslands á sér engan tals­mann í rík­is­stjórn­inni,“ segir í til­kynn­ingu sam­tak­anna.

Vilja greiningu á orkuþörf án aðkomu orkugeirans

Land­vernd hvetur í til­kynn­ingu sinni Guðlaug Þór Þórð­ars­son ráð­herra umhverfis-, orku- og lofts­lags­mála til þess að að „láta gera grein­ingu á þörf fyrir frek­ari orku næstu ára með fag­leg sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi og án beinnar aðkomu orku­geirans“ og segja sam­tökin að við frek­ari orku­öflun verði að hafa í huga að nátt­úru­vernd og aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum verði að hald­ast í hendur.

[adspot]

Samtökin benda á að stór­iðja notar tæp 80 pró­sent af þeirri raf­orku sem orku­ver á Íslandi fram­leiða í dag og að Ísland er langstærsti raf­orku­fram­leið­andi heims á íbúa og fram­leiði tvö­falt meiri orku á mann en landið sem næst kemur. „Orku­notkun Íslend­inga er því yfir­þyrm­andi og græn­bók­inni sem unnin var í miklum flýti virð­ist ætlað að ýta enn frekar undir það,“ segir í til­kynn­ingu Land­verndar.

Ýmislegt sem skorti

Land­vernd segir að það skorti ýmis­legt í skýrslu starfs­hóps­ins og að hún taki ekki til „margra raun­veru­lega orku­spar­andi aðgerða sem eru grund­völlur orku­skipta eins og til dæmis fjöl­breytts ferða­máta, fækk­unar flug­ferða og minnk­aðrar elds­neyt­is­notk­unar sjáv­ar­út­vegs­ins“ né heldur for­gangs­röð­unar á orku­not­endur.

„Í skýrsl­unni er ekki með full­nægj­andi hætti fjallað um verð­mæti óspilltrar nátt­úru sem er bæði efna­hags­legt og sam­fé­lags­legt – eða um gildi hennar á heims­vísu,“ segir Land­vernd í til­kynn­ingu sinni og nefna einnig að ekk­ert sé vikið að því mik­il­væga sam­spili nátt­úru­verndar og lofts­lags­verndar sem alþjóð­legar stofn­anir og sam­tök hafi lagt æ meiri áherslu á.

Segja sam­tökin að það sem sé í húfi „ef draum­órar orku­geirans, sem birt­ast í skýrsl­unni, verða að veru­leika“ sé hægt að skoða á Nátt­úru­korti Land­verndar, vefsjá sem sýnir þá staði sem fyr­ir­hugað er að nýta til orku­fram­leiðslu eða raska á annan hátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár