Vilja „skýra framtíðarsýn“ um framtíð orkufreks iðnaðar

Starfs­hópur á vegum umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins kallar eftir „skýrri póli­tískri sýn“ á fram­tíð orku­freks iðn­aðar á Íslandi. Samkvæmt honum gæti verið að fram­boð á raf­orku muni ekki geta mætt vax­andi eft­ir­spurn á næstu árum.

Vilhjálmur Egilsson, Sigríður Mogensen og Ari Trausti Guðmundsson.
Vil­hjálmur Egilsson, Sigríður Mogensen og Ari Trausti Guð­munds­son. Mynd: Samsett

Stjórn­völd þurfa að móta skýra póli­tíska sýn á hvernig orku­frekum iðn­aði verði háttað hér­lendis á næsta árum, sam­kvæmt nýrri skýrslu frá starfs­hópi á vegum umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­is­ins.

Kjarninn hefur áður fjallað um skýrsl­una, en hún snýr að stöðu og áskor­anir í orku­málum. Höfundar hennar voru Vil­hjálmur Egilsson, fyrrum fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, Sigríður Mogensen, sviðs­stjóri hug­verka­sviðs Samtaka iðn­að­ar­ins, og Ari Trausti Guð­munds­son, fyrrum þing­maður VG.

Í skýrsl­unni er farið yfir gjald­eyr­is­tekj­urnar sem orku­frekur iðn­aður, þar á meðal álver, kís­il­ver og gagna­ver, hefur skapað á síð­ustu árum, en sam­kvæmt höf­und­unum hefur fjórð­ungur af gjald­eyr­is­tekjum þjóð­ar­innar komið þaðan.

Höf­und­arnir hafa einnig eftir Lands­virkjun og Lands­neti að flestir við­skipta­vinir fyr­ir­tækj­anna hyggj­ast starfa áfram á Íslandi og að áform séu til vaxtar hjá mörgum þeirra. Einnig greinir Landsnet frá því að fjöl­breyttur iðn­aður, meðal ann­ars í mat­væla­fram­leiðslu, líf­tækni og fisk­eldi, hafi leitað til fyr­ir­tæk­is­ins varð­andi teng­ingu við flutn­ings­kerfið á síð­ustu miss­erum.

Þá nefna þeir einnig fram­leið­endur vetnis og raf­elds­neytis sem mögu­lega stórnot­endur fram­tíðar, en þau bæta einnig við að Landsnet hafi þurft að hafna mörgum verk­efnum á síð­ustu miss­erum vegna stöðu flutn­ings­kerf­is­ins og/eða skorts á fram­boði á raf­orku. Þessi verk­efni kalla höf­und­arnir „töpuð tæki­færi,“ sem þeir meta að séu jafn­mikil að umfangi og heild­ar­um­svif gagna­vera hér­lendis og hefðu getað keypt orku fyrir 4-6 millj­arða króna.

Samkvæmt starfs­hópnum er nauð­syn­legt að fyr­ir­tæki og sveit­ar­fé­lög fái skýr skila­boð frá stjórn­völdum, orku­fram­leið­endum, Lands­neti og dreifi­veitum um á hvaða fram­tíð­ar­vænt­ingum um orku­fram­boð og flutn­ing megi byggja.

Líkt og Kjarninn hefur áður minnst á mun orku­þörfin hér­lendis aukast tölu­vert ef rík­is­stjórnin á að ná settum mark­miðum um orku­skipti á vegum, sjó og í lofti fyrir árið 2040. Aukn­ingin verður svo enn meiri ef gert er ráð fyrir að orku­frekur iðn­aður muni halda áfram að vaxa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár