Orkuspár fara eftir framtíð stóriðjunnar

Miklu munar á þörf fyrir aukna orku­fram­leiðslu hér­lendis á næstu árum eftir því hvort orku­frekar útflutn­ings­greinar halda áfram að vaxa eða ekki, en nauð­syn­leg aukn­ing gæti verið þriðj­ungi minni ef fram­leiðsla þeirra héld­ist óbreytt.

Búrfellsvirkjun
Búr­fells­virkjun Mynd: Landsvirkjun

Auka þyrfti orku­fram­leiðslu inn­an­lands um 124 pró­sent ef rík­is­stjórnin vill fram­fylgja settum mark­miðum um orku­skipti og ef orku­notkun stór­iðj­unnar og ann­arra orku­frekra útflutn­ings­greina heldur áfram að aukast. Hins vegar gæti aukn­ingin verið þriðj­ungi minni ef grein­arnar auka ekki fram­leiðslu sína á tíma­bil­inu. Þetta kemur fram í nýút­gef­inni skýrslu frá starfs­hópi á vegum ráðu­neyt­is­ins um stöðu og áskor­anir í orku­málum.

Í skýrsl­unni er fram­tíð­ar­orku­þörf metin sam­kvæmt fimm sviðs­myndum, eftir því hvernig orku­skiptum vindur fram hér­lendis og hvaða for­sendur væru gefnar um fram­leiðslu inn­an­lands. Allar sviðs­myndir gera ráð fyrir að orku­þörfin auk­ist á næstu árum, jafn­vel þótt orku­skiptin muni ekki nást nema að litlum hluta.

Samkvæmt sviðs­mynd­unum sem gera ráð fyrir að rík­is­stjórnin nái öllum settum mark­miðum sínum um full orku­skipti á landi, sjó og í lofti fyrir árið 2040 mun við­bót­ar­orku­þörfin á næstu 18 árum nema að minnsta kosti 15,6 terawattsstundum. Þetta jafn­gildir um 82 pró­senta aukn­ingu miðað við núver­andi orku­þörf.

„Skýr skilaboð“

Starfs­hóp­ur­inn bætir þó við annarri sviðs­mynd, þar sem gert er ráð fyrir áfram­hald­andi vexti í fram­leiðslu stórnot­enda raf­orkunnar. Samkvæmt hópnum er þessi vöxtur tal­inn með í grunnorku­þörf sam­fé­lags­ins þar sem stórnot­end­urnir, sem er að uppi­stöðu stór­iðjan, hafa staðið undir stórum hluta útflutn­ings­tekna Íslands.

Ef gert er ráð fyrir þá sviðs­mynd myndi orku­þörfin aukast um tæpar 24 terawattsstundir, eða um 124 pró­sent, á næstu árum. Hópurinn segir þetta jafn­gilda um 100MW í auk­inni raf­orku­fram­leiðslu á ári, sem gefi „skýr skila­boð“.

Þessi sviðs­mynd, sem sýnir mesta vöxt­inn í raf­orku­þörf­inni, var unnin út frá nið­ur­stöðum grein­inga hjá sér­fræð­ingum frá Samorku, RARIK, Orku­veitu Reykja­víkur, Lands­virkjun, Lands­neti og verk­fræði­stof­unni Eflu. Starfs­hóp­inn sem skrif­aði skýrsl­una skip­uðu Vil­hjálmur Egilsson, fyrrum fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, Sigríður Mogensen, sviðs­stjóri hug­verka­sviðs Samtaka iðn­að­ar­ins, og Ari Trausti Guð­munds­son, fyrrum þing­maður VG.

Í kynn­ingu á skýrsl­unni í dag sagði Ari Trausti að hóp­ur­inn tæki ekki afstöðu til þess hvaða leið væri farin, það væri sam­fé­lags­ins að meta það. Í skýrsl­unni er það einnig tekið fram að almenn sam­staða sé ekki fyrir hendi um helstu áherslur í nátt­úru­vernd og aðra umhverfistengda þætti þegar kemur að orku­fram­kvæmdum, en þar sagði starfs­hóp­ur­inn að mik­il­vægt væri að ná sem mestri sátt um raf­orku­kerfið og orku­þörf sam­fé­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár