Forstjóri OR: Ill meðferð á fé og landi að virkja fyrir fiskimjölsverksmiðjur

Að halda því fram að „virkja þurfi ósköpin öll og virkja strax til að við eigum raf­magn á bíl­ana okkar“ var jafn rangt á meðan þreng­ingar voru í efna­hags­líf­inu vegna heims­far­ald­urs og það er nú, segir for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur.

BJarni Bjarnason er forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
BJarni Bjarna­son er for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur. Mynd: Kjarninn.

„Ekki er nóg að byggja nýja vatns­afls­virkjun eða reisa vind­myllur til að koma í veg fyrir skerð­ingu á raf­magni eða að olía sé notuð í fiski­mjöls­verk­smiðjum. Raf­magns­vinnsla úr vatni eða vindi er sveiflu­kennd. Meðan við stýrum ekki veðr­inu verða sveiflur í afköstum vatns­afls­virkj­ana og vind­myllna.“

Þetta skrifar Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur, í aðsendri grein sem birt­ist á Vísi í morgun. Tilefni grein­ar­innar er mikil umræða um orku­málin síð­ustu daga í kjöl­far þess að Lands­virkjun greip til þess að skerða afhend­ingu raf­magns til fiski­mjöls­verk­smiðja og fleiri stórnot­enda í sam­ræmi við skerð­an­lega samn­inga fyr­ir­tækj­anna.

[adspot]

Bjarni bendir í grein sinni á að það verði „góð ár með mik­illi raf­orku­vinnslu og svo meg­urri ár þegar ofs­arok eða stafalogn halda aftur af vind­myllum og minna er um vatn“. Nú sé einmitt slíkt ár en vatns­rennsli til virkj­ana er nú minna en verið hefur um ára­tuga­skeið.

„Er raf­magns­skortur á Íslandi?“ er fyr­ir­sögn greinar Bjarna og svarar hann svo spurn­ing­unni í upp­hafi hennar. „Stutta svarið er já.“ Annars þyrfti ekki að skerða afhend­ingu á raf­magni til stórnot­enda. „Ástæðan er ekki sú að það vanti fleiri og stærri virkj­anir heldur fyrst og fremst skortur á vatni til að keyra þær.“

80 prósent orkunnar til stóriðju

Íslenska raf­orku­kerfið bygg­ist á vatns­afli að 70 pró­sentum en jarð­varm­inn sér okkur fyrir 30 pró­sentum. „Við fram­leiðum mun meira raf­magn en nokkur önnur þjóð miðað við höfða­tölu,“ skrifar Bjarni og það sé „gæfa okkar að geta það án þess að menga and­rúms­loftið“.

Af því raf­magni sem við fram­leiðum fara 80 pró­sent til stór­iðju en ein­ungis 20 pró­sent til allra ann­arra þarfa sam­fé­lags­ins en þar með eru talin öll heim­ili í land­inu, allur léttur iðn­aður, fisk­iðn­aður og land­bún­aður, og nú einnig og í vax­andi mæli, raf­bíl­arnir okkar, skrifar Bjarni.

„Það hefur verið vitað frá því að fyrsta vatns­afls­virkj­unin var byggð að vatnsár eru mis­góð og sum ár eru svo léleg að við getum ekki full­nýtt virkj­an­irnar okkar,“ bendir hann enn­fremur á. Við þær aðstæður þurfi að skerða afhend­ingu á raf­magni til kaup­enda. Af þess­ari ástæðu eru heim­ildir til skerð­ingar á raf­magni í öllum raf­magns­sölu­samn­ingum við stór­iðju. „Stór­iðjan veit að hún getur ekki fram­leitt á fullum afköstum þegar lítið rennsli er til vatns­afls­virkj­ana enda fær hún raf­magnið á lægra verði en ella vegna þessa. Við færum illa með fé og illa með land og nátt­úru ef við virkj­uðum stór­fellt til þess að stór­iðjan þyrfti ekki að sæta skerð­ingu, sem hún hefur vel að merkja sjálf samið um af fúsum og frjálsum vilja við raf­orku­fram­leið­endur.“

Að auki bendir Bjarni á tak­mark­aða flutn­ings­getu raf­magns milli lands­hluta sem ekki bæti úr skák.

Bræðslur semja um ótryggt rafmagn

Fiski­mjöls­verk­smiðj­urnar eru í nokkuð annarri stöðu, heldur hann áfram. Þær hafi samið ein af annarri um kaup á svo köll­uðu ótryggu raf­magni eða afgangs­raf­magni til þess að knýja ofna sína í stað þess að brenna olíu. Verðið á ótryggðu raf­magni hafi til skamms tíma verið afar lágt, meðal ann­ars vegna þess að það er skerð­an­legt að fullu. „Nú stendur svo á að fiski­mjöls­verk­smiðjur verða senni­lega að brenna olíu á þeirri loðnu­ver­tíð sem framundan er og það er mjög baga­legt.“

Svo skrifar Bjarni: „Að sama skapi og ég nefndi áður með stór­iðj­una mætti vænt­an­lega kalla það illa með­ferð á fé og illa með­ferð á landi og nátt­úru ef við virkj­uðum enn frekar svo aldrei þyrfti að skerða afgangs­raf­magn til fiski­mjöls­verk­smiðja sem nýttar eru skamman tíma á ári, þau ár sem bræðslu­fiskur veiðist yfir höfuð. Að þurfa að brenna olíu þegar raf­magnið þrýtur er afar slæmt og betri lausn er verð­ugt að finna.“

Vinnslu­geta raf­magns á Íslandi í fyrra var um 21 TWstund sam­kvæmt upp­lýs­ingum Orku­stofn­unar og er þá miðað við með­al­vatnsár. Raf­magns­sala á því sama ári nam hins vegar 19,1 TWstund. „Raf­magnið í land­inu var því alls ekki upp­selt í fyrra,“ skrifar Bjarni en að síðan hafi eft­ir­spurn auk­ist, senni­lega um 1 TWst. Heild­ar­notkun á raf­magni árið 2021, ef ekki þyrfti að skerða afhend­ingu, væri því um 20,1 TWstund, sem færi að nálg­ast vinnslu­get­una. Það sem á vantar að vinnslu­get­unni sé náð væru þá um 0,9 TWstundir. „Það raf­magn eitt og sér myndi duga til að knýja svo til allan fólks­bíla­flota lands­manna en gert er ráð fyrir að hann verði kom­inn að fullu á raf­magn árið 2040.“

Bjarni bendir svo á, líkt og getið er í upp­hafi þessar fréttar, að ekki sé nóg að byggja nýjar virkj­anir og að á meðan við stýrum ekki veðr­inu verði sveiflur í afköstum vatns­afls­virkj­ana og vind­mylla.

Þjóðin ráði för

Vegna heims­far­ald­urs­ins leit á tíma­bili leit út fyrir að eitt álver­anna kynni að hætta starf­semi því samn­ingar náð­ust ekki um raf­orku­verð milli kaup­anda og selj­anda. „Samn­ingar tók­ust bless­un­ar­lega“, skrifar Bjarni, og álverið er nú í fullum rekstri. Af kís­il­ver­unum tveimur var annað lokað og hitt í erf­ið­leikum. „Staðan er önnur og betri í dag en að halda því fram að virkja þurfi ósköpin öll og virkja strax til að við eigum raf­magn á bíl­ana okkar var jafn rangt þá og það er nú.“

Bjarni seg­ist telja rétt að þjóðin fari sér að engu óðs­lega í orku­málum. Mik­il­vægt sé að auka verð­mæti þeirrar raf­orku sem fram­leidd er hér nú þegar. „Það verða byggðar fleiri virkj­anir á Íslandi en það er mik­il­vægt að hvat­inn til bygg­ingar þeirra sé skýr og gegn­sær og að umræða sé tekin um orku­kost­ina á þeim grunni,“ skrifar Bjarni.

„Þjóðin á að ráða hversu langt við göngum og hve hratt í að virkja þær orku­lindir sem nú eru óbeisl­aðar. Ramma­á­ætlun hefur ekki dugað sem verk­færi til að leiða okkur á rétta slóð. Þar megum við gera betur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár