Ekki réttlætanlegt að virkja meira á þessu stigi

„Ætlum við að ráð­ast inn á óvirkjuð svæði, bæði háhita­svæði og önnur, svo ég tali nú ekki um vind­inn, þar sem aðal­lega Norðmenn vilja reisa vind­orku­ver á hverjum hóli?“ spyr Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veit­unnar.

BJarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, á ársfundinum í síðustu viku.
BJarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veit­unnar, á árs­fund­inum í síð­ustu viku. Mynd: Skjáskot

„Það er mik­ill þrýst­ingur núna á að virkja meira. Það finnst mér ekki rétt­læt­an­legt á þessu stigi. Við verðum að horfa til þess að vatns­árið í ár var óvenju slæmt. Í venju­legu vatns­ári væri eng­inn raf­magns­skortur.“

Þetta sagði Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur, á árs­fundi fyr­ir­tæk­is­ins í lok síð­ustu viku. Bjarni sker sig nokkuð úr hvað þetta varðar miðað við for­stjóra ann­arra íslenskra orku­fyr­ir­tækja. Hann hefur til að mynda sagt að ekki þurfi að virkja sér­stak­lega til raf­bíla­væð­ingar.

[adspot]

Á fund­inum, sem var hald­inn í gömlu raf­stöð­inni í Elliða­ár­dal, sagð­ist hann vilja horfa til allra átta. „Ísland býr við hlunn­indi af þrennum toga, ef við getum sagt sem svo, frá nátt­úr­unnar hendi,“ útskýrði hann. „Það er fisk­ur­inn í sjónum, og hann er eign þjóð­ar­innar þó að arð­ur­inn renni kannski í örfáa vasa, en það er annað mál. Síðan er það orka lands­ins, það eru fall­vötnin, það er jarð­hit­inn. Og núna vind­ur­inn. Síðan er það landið sjálft, nátt­úran og ásýnd.“

Benti hann svo á að fyrir heims­far­ald­ur­inn hafi komið meiri erlendar tekjur af því að sýna útlend­ingum landið heldur en af nokkrum öðrum atvinnu­vegi. „Og ætlum við að ráð­ast inn á óvirkjuð svæði, bæði háhita­svæði og önnur, svo ég tali nú ekki um vind­inn, þar sem aðal­lega Norðmenn vilja reisa vind­orku­ver á hverjum hóli? Ætlum við að gera það og höggva þá fót­inn undan okkur hvað varðar nátt­úr­una og ásýnd­ina sem við erum að selja?“

Mik­il­vægt væri að finna jafn­vægi milli þess­ara þátta.

Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri sagði að í auð­linda­nýt­ingu þyrfti alltaf að horfa á hóf­semi og fram­sýni. Að reyna að horfa á að fá sem mest fyrir sem minnst. „Og í orku­geir­anum erum við auð­vitað að vinna innan auð­linda­um­hverfis,“ sagði hún. „Við erum með nátt­úr­una sem skiptir miklu máli varð­andi lofts­lags­málin. Hún vex í virði á tímum lofts­lags­mála. Síðan erum við með orku­málin og þar er heldur betur líka vöxtur í virði.“ Ná þurfi sem mestum árangri hvað báðar þessar auð­lindir varðar.

Orku­skipti, sem stjórn­völd hafa sett á odd­inn sem lausn til að draga úr losun og vinna gegn hinum mann­gerða lofts­lags­vanda, eru talin þurfa á bil­inu 4-24 TWst af orku á ári, allt að 124 pró­sent meiri en nú er hér fram­leidd, allt eftir því hversu mikið inn­lent raf­elds­neyti verður fram­leitt hér á landi, hversu langt verður gengið í orku­skiptum í öllum sam­göngum og hversu miklum hag­vexti er reiknað með. Þetta er nið­ur­staða skýrsl­unnar Staða og áskor­anir í orku­málum sem unnin var af starfs­hópi er Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra skip­aði í byrjun árs.

Langt frá markmiðum

Fram­reikn­ingar Umhverf­is­stofn­unar á þróun í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda fram til árs­ins 2040 gefa til kynna að losun á beinni ábyrgð Íslands muni drag­ast saman um 28 pró­sent fram til árs­ins 2030 miðað við 2005. Það væri ansi fjarri mark­miði rík­is­stjórn­ar­innar, sem setti sér í stjórn­ar­sátt­mála sjálf­stætt mark­mið um að losun á ábyrgð Íslands drag­ist saman um 55 pró­sent fram til árs­ins 2030 miðað við 2005.

Næsti áfangi

„Nið­ur­stöð­urnar segja okkur að við þurfum að herða okkur í lofts­lag­málum ef við ætlum að standa við lofts­lags­mark­miðin,“ sagði Guð­laugur Þór í gær, er þessir útreikn­ingar voru kynntir. Hann sagði Ísland á eftir mörgum þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. „Við þurfum að vinna hratt og við þurfum að vinna saman til að ná betri árangri. Það er alveg ljóst að nú er komið að næsta áfanga í veg­ferð­inni og þar þarf íslenskt atvinnu­líf og sveit­ar­fé­lög að stíga inn í aðgerð­ar­á­ætl­un­ina af fullum þunga, setja sér mark­mið og útbúa áætl­anir til að mark­mið okkar náist.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár