Reikna með 28 prósenta samdrætti í losun til 2030 – markmið ríkisstjórnarinnar 55 prósent

Umhverf­is­stofnun hefur fram­reiknað þróun í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á beinni ábyrgð Íslands m.t.t. aðgerða­á­ætl­unar stjórn­valda í lofts­lags­málum og kemst að þeirri nið­ur­stöðu að 55 pró­senta sam­drátt­ar­mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar sé ansi langt undan.

Guðlaugur Þór Þórðarson er ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son er ráð­herra umhverfis-, orku- og lofts­lags­mála. Mynd: Bára Huld Beck

Fram­reikn­ingar Umhverf­is­stofn­unar á þróun í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda fram til árs­ins 2040 gefa til kynna að losun á beinni ábyrgð Íslands muni drag­ast saman um 28 pró­sent fram til árs­ins 2030 miðað við 2005.

Það væri ansi fjarri mark­miði rík­is­stjórn­ar­innar, sem setti sér í stjórn­ar­sátt­mála sjálf­stætt mark­mið um að losun á ábyrgð Íslands drag­ist saman um 55 pró­sent fram til árs­ins 2030 miðað við 2005.

Hins vegar væri þetta nærri því að ná þeim 29 pró­sent sam­drætti sem verið hefur hluti Íslands í sam­eig­in­legu 40 pró­senta sam­drátt­ar­mark­miði Íslands, Noregs og Evr­ópu­sam­bands­ins vegna Par­ís­ar­sátt­mál­ans.

Búið er að herða það mark­mið upp í sam­eig­in­leg 55 pró­sent fyrir all­nokkru – og enn verið að semja um hver hlutur Íslands innan sam­eig­in­lega mark­miðs­ins verður, en það verður eitt­hvað lægra en 55 pró­sent.

Framreiknaður samdráttur gæti aukist með skýrari mynd af aðgerðum

Upp­lýs­ingar um fram­reikn­ing­ana koma fram í til­kynn­ingu sem Umhverf­is­stofnun birti á vef sínum í dag, en fram­reikn­ingar má segja að séu rök­studd spá um þróun kom­andi ára, að gefnum ákveðnum for­sendum.

Fram­reikn­ing­arnir byggja meðal ann­ars á spám um þróun mann­fjölda, elds­neyt­is­notkun og verga land­fram­leiðslu og svo einnig á aðgerðum úr aðgerða­á­ætlun Íslands í lofts­lags­málum.

[adspot]

Nið­ur­stöður Umhverf­is­stofn­unar taka þó aðeins til þeirra aðgerða sem unnt var að meta, en stofn­unin segir „lík­legt“ að þegar fleiri aðgerðir taki á sig skýr­ari mynd muni þær hafa þau áhrif að fram­reikn­aður sam­dráttur auk­ist.

Einnig segir í til­kynn­ingu stofn­un­ar­innar að áfram­hald­andi þróun aðferða­fræði við útreikn­ing­ana muni leiða til minni óvissu í nið­ur­stöðum.

Þurfum að herða okkur á vegferðinni, segir ráðherra

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra telur þessar nið­ur­stöður „segja okkur að við þurfum að herða okkur í lofts­lag­málum ef við ætlum að standa við lofts­lags­mark­miðin“ sam­kvæmt því sem haft er eftir honum í frétta­til­kynn­ingu frá ráðu­neyti hans, en þar segir hann einnig að Ísland sé „á eftir mörgum þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við“ og að „við þurfum að vinna hratt og við þurfum að vinna saman til að ná betri árangri“.

„Það er alveg ljóst að nú er komið að næsta áfanga í veg­ferð­inni og þar þarf íslenskt atvinnu­líf og sveit­ar­fé­lög að stíga inn í aðgerð­ar­á­ætl­un­ina af fullum þunga, setja sér mark­mið og útbúa áætl­anir til að mark­mið okkar náist,“ er einnig haft eftir ráð­herra.

Talsverður samdráttur á milli 2019 og 2020

Nýlega er búið að taka saman los­un­ar­bók­hald Íslands fyrir árið 2020. End­an­legar nið­ur­stöður úr því eru þær að losun á beinni ábyrgð Íslands minnk­aði um rúm 5 pró­sent á milli ára og sam­drátt­ur­inn miðað við árið 2005 nam 13 pró­sentum.

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn er stærsta skýr­ingin á sam­drætt­inum, en mestu mun­aði um 13,1 pró­sent sam­drátt frá vega­sam­göngum frá fyrra ári. Vega­sam­göngur eru sem fyrr stærsti ein­staki þátt­ur­inn í þeirri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda, eða 30 pró­sent.

Umhverf­is­stofnun og fleiri stofn­anir standa fyrir ráð­stefn­unni Lofts­lags­deg­inum, sem fram fer í Hörpu á morgun, 3. maí, þar sem m.a. verður farið ítar­lega yfir tölur Umhverf­is­stofn­unar um áætl­aða losun Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár