Talsvert neikvæð áhrif myndu fylgja endurræsingu og stækkun kísilversins

Loftgæði: Talsvert nei­kvæð og mögu­lega veru­lega nei­kvæð. Lykt­ar­mengun: Talsvert nei­kvæð. Vatnafar: Talsvert nei­kvæð. Ásýnd: Talsvert nei­kvæð. Umhverf­is­stofnun hefur skilað umsögn sinni um áform­aða end­ur­ræs­ingu og stækkun kís­il­vers­ins í Helguvík.

Stakksberg áformar að ræsa ljósbogaofn kísilversins í Helguvík og stækka það.
Stakks­berg áformar að ræsa ljós­boga­ofn kís­il­vers­ins í Helguvík og stækka það. Mynd: Aðsend

Fyr­ir­huguð end­ur­ræs­ing eins ljós­boga­ofns og síðar upp­bygg­ing kís­il­verk­smiðju Stakks­bergs í Helguvík með fjórum ofnum, myndi að mati Umhverf­is­stofn­unar hafa tals­vert nei­kvæð áhrif. Hún telur enn fremur óvissu ríkja um áhrif end­ur­ræs­ingar og gæði meng­un­ar­varna án neyð­ar­skor­steins líkt og Stakks­berg áformar og hættu á rekstr­ar­ó­stöð­ug­leika af þeim sökum. „Við þær aðstæður telur stofn­unin mögu­legt að áhrif verk­smiðj­unnar á loft­gæði verði veru­lega nei­kvæð, bæði ryklos­unar og lykt­ar­meng­unar. Þá eru áhrifin ekki aðeins stað­bundin við iðn­að­ar­svæðið í Helguvík heldur einnig svæð­is­bundin með til­liti til ásýndar.“

Þetta er sam­an­dregin nið­ur­staða Umhverf­is­stofn­unar á frum­mats­skýrslu Stakks­bergs um fyr­ir­hug­aða end­ur­ræs­ingu kís­il­vers­ins í Helguvík og stækkun þess í áföngum. Stofn­unin hefur nú skilað ítar­legri umsögn sinni um skýrsl­una til Skipu­lags­stofn­unar.

[adspot]

Félagið Stakks­berg ehf., sem er alfarið í eigu Arion banka, ráð­gerir að end­ur­ræsa kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík í Reykja­nesbæ, eftir end­ur­bætur og hefja á ný fram­leiðslu á kísil. Áætluð fram­leiðslu­geta er 100.000 tonn á ári af hrákísil í allt að fjórum ljós­boga­ofnum. Á næstu árum er þó aðeins stefnt á nýt­ingu eins ljós­boga­ofns og árlegri fram­leiðslu 25.000 tonna af kís­il­vörum.

Gang­setn­ing kís­il­verk­smiðj­unnar með end­ur­bótum er kallað 1. áfangi með nýt­ingu eins ljós­boga­ofns og einum 52 metra háum skor­steini úr síu­húsi. Að loknum 4. áfanga er full­byggð kís­il­verk­smiðja með nýt­ingu alls fjög­urra ljós­boga­ofna og tveimur 52 metra háum skor­steinum. Í umsögn Umhverf­is­stofn­unar er bent á þá stað­reynd að við 4. áfanga verður fram­leiðsla og þar með losun fjórum sinnum meiri en við 1. áfanga.

Rekstrarvandi frá upphafi

Kís­il­verk­smiðja Sam­ein­aðs Sílikons var í rekstri frá nóv­em­ber 2016 til ágúst­loka 2017. Að mati Umhverf­is­stofn­unar kemur skýrt fram að rekstr­ar­örðu­leika, sem ollu því að ítrekað þurfti að stöðva ljós­boga­ofn, megi að miklu leyti rekja til slakra gæða á bún­aði og efna sem nýtt voru við fram­leiðsl­una. Varð þetta til þess að ofn­inn var oft keyrður á lágu afli annað hvort við nið­ur­keyrslu þegar slökkt var á honum eða við ræs­ingu þegar kveikt var á honum á ný.

[links]Við þessar aðstæður var lykt­ar­mengun frá starf­sem­inni hvað verst en ekki er að fullu vitað hvers vegna. Erf­ið­lega reynd­ist að halda ofn­inum stöð­ugum, ekki síst vegna lít­illa gæða í bún­aði verk­smiðj­unnar en einnig vegna skorts á þjálfun starfs­fólks.

Athuga­semdir voru gerðar í eft­ir­liti Umhverf­is­stofn­unar með starf­sem­inni allt frá útgáfu starfs­leyf­is­ins og er áréttað í umsögn­inni að „vegna umfangs­mik­illa og end­ur­tek­inna rekstr­ar­vanda­mála var umfang eft­ir­lits með verk­smiðj­unni for­dæma­laust“. Eft­ir­lits­menn Umhverf­is­stofn­unar fóru í alls 15 eft­ir­lits­ferðir milli 13. júlí 2015 og 21. júlí 2017 og voru á því tíma­bili skráð 22 frá­vik auk 16 athuga­semda.

Rekstur verk­smiðj­unnar hafði nokkra sér­stöðu hvað varðar eðli, umfang fram­leiðslu og nálægð við íbúa­byggð, segir enn fremur í umsögn­inni og að rekstur kís­il­vers­ins hafði í för með sér veru­leg óþæg­indi fyrir íbúa í nán­asta umhverfi þess. Á þeim tíma sem verk­smiðjan var virk tók stofn­unin við um 1.600 ábend­ingum. Helst var kvartað undan ólykt.

Mik­il­vægt var að mati stofn­un­ar­innar að bregð­ast við þessum mikla fjölda kvart­ana frá íbúum og því var ákveðið að stöðva rekstur þann 1. sept­em­ber 2017.

Áhrif á heilsu ekki endilega afturkræf

Í umsögn sinni fer stofn­unin ítar­lega yfir það mat á umhverf­is­á­hrifum sem Stakks­berg leggur á end­ur­ræs­ingu og stækkun verk­smiðj­unnar. Hún er ósam­mála ýmsu og öðru ekki fylli­lega sam­mála. Þannig segir hún t.d. að áhrif á loft­gæði verði tals­vert nei­kvæð en ekki „nokkuð nei­kvæð“ eins og fram­kvæmda­að­ili telur og bendir á að áhrif á heilsu séu ekki endi­lega aft­ur­kræf, líkt og segir í frum­mats­skýrslu, þó að rekstur verk­smiðj­unnar stöðv­ist. Slæm loft­gæði geti hugs­an­lega haft áhrif á heilsu fólks til lang­frama.

Að mati Umhverf­is­stofn­unar eru áhrif end­ur­ræs­ingar kís­il­verk­smiðj­unnar í Helguvík í stórum dráttum eft­ir­far­andi:

Loftgæði:

Að áhrif á loft­gæði verði tals­vert nei­kvæð og tekur því ekki undir nið­ur­stöðu frum­mats­skýrslu sem metur þau nokkuð nei­kvæð á rekstr­ar­tíma. Umhverf­is­stofnun telur að end­ur­ræs­ing og upp­bygg­ing verk­smiðj­unnar muni hafa í för með sér aukna losun meng­un­ar­efna í and­rúms­loftið. Losun ryks ætti að vera innan marka með full­nægj­andi ryk­hreinsi­virki og að styrkur ann­arra meng­un­ar­efna verði innan við­mið­un­ar­marka við kjör aðstæður. Óvissa er þó um grund­völl þeirra aðstæðna vegna áætl­ana um að hafa ekki neyð­ar­skor­stein.

Stofn­unin tekur fram að áhrif slæmra loft­gæða eru ekki endi­lega aft­ur­kræf hvað varðar heilsu fólks og að losun meng­un­ar­efna er lík­leg til að aukast ef pokasíur í síu­húsi verða fyrir skaða. Þetta er stutt með áliti Norconsult SA (2020). Umhverf­is­stofnun telur hættu á að rekstur verk­smiðj­unnar verði óstöð­ugur ef afgas er ávalt leitt í gegnum síu­virki sem getur orðið til þess að pokasíur liggja oftar undir skemmdum. Við þær aðstæður telur Umhverf­is­stofnun mögu­legt að áhrif verk­smiðj­unnar á loft­gæði verði veru­lega nei­kvæð.

Hvað varðar lykt­ar­mengun ein­ungis telur stofn­unin að áhrifin verði tals­vert nei­kvæð á íbúa Reykja­nes­bæjar sem eru í nálægð við verk­smiðj­una þar sem starf­semi kís­il­verk­smiðju fylgir óhjá­kvæmi­lega ein­hver lykt. Stofn­unin telur þó að með til­komu skor­steina, auk stöðugra rekstr­ar­um­hverfis ljós­boga­ofna, sé lík­legt að lykt­ar­mengun verði minni en áður. Búast má við mestri lykt þegar ofnar eru í upp- og nið­ur­keyrslu án neyð­ar­skor­steins eða þegar síu­bún­aður virkar ekki sem skyldi. Umhverf­is­stofnun er því ósam­mála mati frum­mats­skýrslu um að áhrif sökum lyktar sé óveru­leg.

Umhverf­is­stofnun telur allt benda til þess að að besti val­kostur með til­liti til lykt­ar­meng­unar og hag nær­liggj­andi íbúa, sé að setja upp bæði 52 metra háa skor­steina á síu­hús og neyð­ar­skor­stein/a á ofn­hús. Skor­steinar taka við afgasi og hreinsa við venju­legar rekstr­ar­að­stæður en neyð­ar­skor­stein/ar við ofn­hús taka við útblást­urs­lofti frá ofnum aðeins við upp- eða nið­ur­keyrslu ofns/ofna þegar losun ryks er lítil en losun VOC-efna er mikil.

Vatnafar:

Að áhrifin verði tals­vert nei­kvæð á grunn­vatn við full­byggða verk­smiðju þar sem sú grunn­vatns­taka sem þyrfti fyrir kæli­kerfið er yfir sjálf­bærni­mörkum og end­ur­nýj­un­ar­mörkum grunn­vatns­linsunnar. Hins vegar er hægt að nýta annað vatn til kæl­ingar og dregur það úr nei­kvæðum áhrifum á grunn­vatn. Umhverf­is­stofnun er því ekki fylli­lega sam­mála mati frum­mats­skýrslu um að áhrifin verði nokkuð nei­kvæð fyrir grunn­vatn.

Fuglar:

Að óvissa sé um áhrif end­ur­ræs­ingar á fugla þar sem vísað er í fjórtán ára gömul gögn og kann sam­setn­ing teg­unda og ástand búsvæða sjó­fugla hafa breyst. Stofn­unin getur því ekki tekið undir með frum­mats­skýrslu um að áhrifin verði óveru­leg. Stofn­unin telur ástæðu til að kanna gerð nýrrar úttektar á fugla­lífi.

Lífríki fjöru og strand­sjávar: Að óvissa sé um áhrif end­ur­ræs­ingar á líf­ríki strand­sjávar en að áhrifin séu ekki lík­leg til að vera veru­lega nei­kvæð. Í frum­mats­skýrslu eru áhrifin metin óveru­leg en stofn­unin telur að fjalla þurfi betur um áhrif frá­veitu á strand­sjó til að geta tekið undir þá afstöðu.

Ásýnd:

Að áhrifin við 1. áfanga end­ur­ræs­ingar felist aðal­lega í við­bót tveggja 52 metra háa skor­steina sem geta valdið auknum sjón­rænum áhrifum en að þau áhrif séu óveru­leg. Hins vegar er það mat Umhverf­is­stofnun að áhrif 4. áfanga full­byggðrar verk­smiðju, til við­bótar við þau áhrif sem ásýnd verk­smiðj­unnar hefur í dag, vera tals­vert nei­kvæð á ásýnd svæð­is­ins.

Stofn­unin telur ljóst að aukið magn mann­virkja við full­byggða verk­smiðju muni valda veru­legum áhrifum á ásýnd svæð­is­ins, bæði frá þétt­býli Reykja­nes­bæjar, frá Leifs­stöð og jafn­vel frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hún tekur því ekki undir með frum­mats­skýrslu þar sem fram kemur að áhrif á ásýnd og lands­lag eru talin vera nokkuð nei­kvæð við full­byggða verk­smiðju.

Gæti skert lífsgæði fólks

Í umsögn sinni áréttar Umhverf­is­stofnun ýmis­legt, m.a. að þrátt fyrir að mengun hafi ekki mælst í íbúða­byggð, líkt og segir í frum­mats­skýrsl­unni, mæld­ist hið rok­gjarna efni form­al­d­ehýð við grein­ing­ar­mörk og að norsk rann­sókn­ar­stofnun, sem fram­kvæmdi mæl­ing­una, hafi sagt að gera þyrfti frek­ari mæl­ingar þar sem mæl­inga­að­ferðin hafi ekki verið til þess fallin að greina þessi efni.

Einnig bendir hún sér­stak­lega á að í frum­mats­skýrsl­unni séu áhrif end­ur­ræs­ingar á heilsu íbúa í næsta nágrenni metin óveru­leg og aft­ur­kræf en að hún telji áhrifin hins vegar lík­leg til að valda íbúum ein­hverjum óþæg­indum, jafn­vel skerða lífs­gæði fólks vegna lyktar­ónæðis og að óvissa sé um áhrif útblást­urs á heilsu.

Umhverf­is­stofnun telur þær end­ur­bætur sem kynntar eru til þess fallnar að draga úr styrk meng­un­ar­efna en tekur fram að þau gildi los­unar sem sett eru fram mið­ist við stöðugt rekstr­ar­um­hverfi, að ljós­boga­ofnar séu keyrðir við kjör aðstæður, að ryk­hreinsi­virki virki sem skyldi og að afgas sé losað um háa skor­steina. „Þó svo losun sé undir mörkum telur Umhverf­is­stofnun áhrif fram­kvæmdar á loft­gæði vera tals­vert nei­kvæð miðað við núver­andi ástand (starf­semi stöðvuð). Rekstarörð­ug­leikar geta að mati stofn­un­ar­innar valdið enn frek­ari nei­kvæðum áhrifum.“

Tveir 52 metra háir skorteinar í stað neyðarskorsteins

Í mats­á­ætlun end­ur­bóta verk­smiðj­unnar, sem Umhverf­is­stofnun skil­aði umsögn við í jan­úar í fyrra, voru ekki komin fram núver­andi áform um tvo háa skor­steina sem eru ein helsta mót­væg­is­að­gerðin sem fara á í til að bæta dreif­ingu efna í and­rúms­lofti. Varð þessi breyt­ing til þess að Stakks­berg telur ekki þörf á neyð­ar­skor­steini úr ofn­húsi.

Í ráð­gef­andi áliti Norconsult, sem gert var í ár og Umhverf­is­stofnun vísar til í umsögn sinni, kemur fram að allar kís­il­verk­smiðjur í Noregi hafi neyð­ar­skor­steina. Eru þeir nýttir við niður- og upp­keyrslu ljós­boga­ofna til að vernda pokasíur og stuðla þannig að stöðugri rekstri.

Umhverf­is­stofnun tekur undir með fram­kvæmda­að­ila að ókostur neyð­ar­skor­steina sé sá að við nýt­ingu þeirra fer loft óhreinsað út í and­rúms­loftið og að því geti fylgt mikið af fínu kís­il­ryki. Hins vegar áréttar stofn­unin að þegar þörf er á losun um neyð­ar­skor­stein mynd­ist meira af lykt­ar­meng­andi VOC-efnum. Því sé óvissa falin í því að ekki eigi að nýta aðrar aðferðir en þekktar eru ann­ars staðar.

Í umsögn­inni er einnig minnt á að ekki sé að fullu vitað af hverju lykt­ar­meng­unin staf­aði en að talið sé að hana megi rekja til meiri los­unar VOC-efna en búist var við.

Fjórtán atriði sem fjalla þarf betur um

Umhverf­is­stofnun dregur saman eft­ir­far­andi þætti sem fjalla ætti betur um í mats­skýrslu fram­kvæmdar sem er næsta skref í skipu­lags­ferl­inu:

  1. Ítar­legri umfjöllun um lykt­ar­mengun þar sem metin eru ann­ars vegar áhrif gang­setn­ingar 1. áfanga og svo við full­byggða verk­smiðju eftir 4. áfanga. Meta ítar­lega áhrif á íbúa og þá lykt sem mun finn­ast í nær­liggj­andi byggð.

  2. Greining á lands­lagi og áhrifa sem hita­stigull/hita­hvörf frá sjó hafa áhrif á loft­dreif­ingu og þ.a.l. lykt­ar­mengun í næstu íbúa­byggð.

  3. Umfjöllun um fyr­ir­huguð við­brögð rekstr­ar­að­ila ef upp koma kvart­anir um lykt­ar­mengun.

  4. Ítar­legri umfjöllun um sviðs­myndir þar sem settur er upp neyð­ar­skor­steinn við ofn­hús.

  5. Ítar­legri umfjöllun um rekstur og útskipt­ingu pokasía við þær aðstæður þar sem ekki er neyð­ar­skor­steinn. Frekari rök­stuðn­ing um að setja hann ekki upp.

  6. Umfjöllun um þær aðstæður sem verða í síu­húsi verk­smiðj­unnar án neyð­ar­skor­steins.

  7. Að fram­kvæmda­að­ili vakti bæði magn­stöðu og efna­inni­hald þess grunn­vatns sem fyr­ir­tækið hygg­ist nota við fram­leiðsl­una.

  8. Taka fram að grunn­vatns­taka vegna kís­il­verk­smiðj­unnar er áætluð úr vatns­hlot­inu Rosmhvala­nes 2 (104-115-2-G) skil­greint skv. lögum nr. 36/2011 um stjórn vatna­mála. Auk þess að losun frá­veitu sé í vatns­hlotið Hafnir að Gróttu og hefur (104-1382-C) sem er sér­stak­lega skil­greint vegna álags.

  9. Nánari umfjöllun áhrif og útfærslu val­kosts á upp­dæl­ingu og nýt­ingu jarð­sjós inn á kæli­kerfi ofna í stað grunn­vatns.

  10. Skýrari umfjöllun um áhrif los­unar frá­veitu og kæli­vatns í strand­sjávar-vatns­hlotið og á líf­ríki þess og blöndun.

  11. Umfjöllun um áhrif fram­kvæmdar á fugla út frá nýrri úttekt fugla­lífs á svæð­inu eða frek­ari rök­stuðn­ingur þess efnis að gögn frá 2006 séu full­nægj­andi að mati sér­fræð­inga.

  12. Upp­færsla á vökt­un­ar­á­ætlun út frá nýjum for­sendum og reynslu á rekstri kís­il­verk­smiðj­unnar á árunum 2016-2017. Umhverf­is­stofnun telur að upp­færð til­laga að vökt­un­ar­á­ætlun ætti að fylgja mats­skýrslu.

  13. Útskýr­ing á for­sendum mynda fyr­ir­hug­aðra bygg­inga í mati á áhrifum á ásýnd svæðis út frá hæð­ar­tak­mörk­unum í skipu­lagi iðn­að­ar­svæð­is­ins.

  14. Drög að skýrslu um grunn­á­stand svæð­is­ins áður en starf­semin hefst eða áður en starfs­leyfi starf­sem­innar er upp­fært. Umhverf­is­stofnun telur að slík grunn­á­stands­skýrsla ætti að liggja fyrir í mats­skýrslu fram­kvæmdar en ef ekki þá skal hún liggja fyrir áður en starfs­leyfi er end­ur­skoðað.

Umhverf­is­stofnun minnir á að end­ur­ræs­ing á kís­il­verk­smiðj­unni í Helguvík er háð sam­þykkt stofn­un­ar­innar. Ekki verður veitt heim­ild fyrir end­ur­ræs­ingu fyrr en að loknum full­nægj­andi end­ur­bótum og mati á fram­kvæmdum úrbóta.

„Gerð og eig­in­leikar hugs­an­legra áhrifa fram­kvæmdar eru þess eðlis að end­ur­ræs­ing og upp­bygg­ing kís­il­verk­smiðj­unnar kann að hafa áhrif á fjölda fólks,“ segir í umsögn­inni. „Óljóst er hver tíma­þáttur þeirra áhrifa er og hver sé tíðni tíma­bila upp- og/eða nið­ur­keyrslu ljós­boga­ofna þegar lík­leg­ast er að lykt­ar­mengun verði mest.“

Er Stakks­berg hefur farið yfir umsagnir og athuga­semdir sem fram hafa komið á frum­mats­skýrsl­una mun það að teknu til­liti til þeirra gera mats­skýrslu sem Skipu­lags­stofnun mun byggja álit sitt á fram­kvæmd­inni á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár