Björgólfur segir að Namibíumálið muni fá skjótan endi eins og Seðlabankamálið

Samherji heldur áfram að gagn­rýna fjöl­miðla sem fjallað hafa um Namib­íu­málið. Björgólfur Jóhanns­son ýjar að því að sam­særi eigi sér stað gegn Samherja sem snú­ist um að valda félag­inu skaða. For­stjór­inn segir að lyktir máls­ins verði lík­ega þau sömu og í Seðla­banka­mál­inu þrátt fyrir að sex ein­stak­lingar hafi nú þegar verið ákærðir í Namibíu.

Björgólfur segir að Namibíumálið muni fá skjótan endi eins og Seðlabankamálið
Samsæri gegn Samherja Björgólfur Jóhanns­son ýjar að því í svörum sínum að fjöl­miðlar og opin­berir aðilar á Íslandi eigi í sam­særi gegn Samherja. Mynd: mbl/Árni Sæberg

„Hið svo­kall­aða Seðla­banka­mál gegn Samherja fékk skjótan endi eftir að Samherji hafði fengið aðgang að þeim gögnum sem rann­sóknin var byggð á. Markmið okkar er að þetta muni ger­ast aftur í til­felli Samherja og við­skipta þess í Afríku,“ segir í svari frá Margréti Ólafs­dóttur, einka­rit­ara starf­andi for­stjóra Samherja, Björg­ólfs Jóhanns­sonar, sem norska blaðið Fiskeribla­det birtir í dag.  Svörin frá Margréti eru í reynd svör frá Björgólfi sem for­stjóra og tals­manns Samherja, líkt og komið hefur fram í fyrri svörum frá Björgólfi.

Norski mið­ill­inn spurði Samherja út í frétt sem Stundin birti þann 20. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Í frétt­inni var fjallað um gagn úr Sam­herj­a­skjöl­unum, sem Stundin vann umfjall­anir upp úr í sam­vinnu við Wikileaks, Kveik og Al-Jazeera, þar sem kom fram að íslenska útgerðin hafi átt að greiða 30 milljón króna skatta­skuld þing­manns í Marokkó, Cheik Amar, sem seldi Samherja fisk­veiði­kvóta.

Frétt Stund­ar­innar byggði á samn­ingi um málið, sem finna má í Sam­herj­a­skjöl­unum, þar sem Aðal­steinn Helgason, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samherja í Afríku, er full­trúi Samherja í mál­inu. Stundin gerði fyr­ir­vara við full­yrð­ing­una um greiðslu skuld­ar­innar í frétt­inni þar sem end­an­lega stað­fest­ingu á greiðsl­unni er ekki að finna í gögnum og Aðal­steinn Helgason veitti fjöl­miðl­inum ekki við­tal þar sem hægt hefði verið að spyrja hann út í málið. 

Björgólfur segir að frétt Stund­ar­innar um málið sé full af rang­færsum.  Í frétt Fiskeribla­det segir Samherji hins vegar ekki hvað var rangt í frétt­inni og útgerð­ar­fé­lagið leið­réttir engar stað­hæf­ingar. Þá neitar útgerðin því heldur ekki að greiðslan á skatta­skuld þing­manns­ins hafi átt sér stað til að liðka fyrir því að Samherji fengi kvóta í land­inu.  

Ákærur liggja fyrir í öðru málinu

Athygli vekur að Samherji, eða Björgólfur Jóhanns­son fyrir hönd Samherja, skuli líkja Namib­íu­mál­inu við Seðla­banka­málið þar sem nú þegar liggja fyrir ákærur gegn sex ein­stak­lingum í Namibíu út af mál­inu og mútu­greiðslum Samherja til þeirra. Sex­menn­ing­arnir eru meðal ann­ars ákærðir fyrir mútu­þægni og fleiri ætluð brot og sitja nú í gæslu­varð­haldi í Namibíu. 

Í Seðla­banka­mál­inu var hins vegar eng­inn á end­anum ákærður fyrir meint brot heldur var mál­inu vísað frá hjá sér­stökum sak­sókn­ara og emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra ákvað að aðhaf­ast ekk­ert í því eftir að hafa fengið kæru út af mál­inu frá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara. 

Erfitt er því að sjá hvernig Björgólfur getur líkt þessum tveimur málum saman. Rannsókn máls­ins í Namibíu, sem hefur staðið yfir í meira en eitt ár eftir að Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ari kom gögnum til yfir­valda þar, og sak­ar­efnin sem sex­menn­ing­arnir eru ákærðir fyrir hljóta því að byggja á mis­skiln­ingi, miðað við orð Björg­ólfs.

„Þetta er ekki blaða­mennska heldur frekar akti­fífsmi með þeim aug­ljósa til­gangi að valda skaða.“ 

Samherji virðist lýsa samsæri

Í svari sínu ti Fiskeribla­det lýsir Samherji að öðru leyti því sem útgerðin telur vera sam­særi gegn sér sem meðal ann­ars Stundin sé þátt­tak­andi í auk opin­berra aðila á Íslandi. Björgólfur nefnir meðal ann­ars fjöl­skyldu­tengsl blaða­manns Stund­ar­innar, Inga F. Vil­hjálms­sonar, og „ein­stak­linga sem starfa hjá hinu opin­bera og sem unnið hafa að málum gegn Samherja“. Í svari Samherja segir að þessi fjöl­skyldu­tengsl styrki þá kenn­ingu að Stundin vilji skaða Samherja. 

Að öllum lík­indum á Björgólfur hér við bróður blaða­manns Stund­ar­innar, Finn Þór Vil­hjálms­son, sak­sókn­ara hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara áður sér­staks sak­sókn­ara, sem vann að Sam­herj­a­mál­inu hjá emb­ætt­inu áður en það var fellt niður árið 2015 og Samherja var tikynnt um þetta í bréfi líkt og félagið greindi sjálft frá.  Hvernig frá­vísun máls­ins hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, nú hér­aðs­sak­sókn­ara, og frétta­flutn­ingur Stund­ar­innar um starf­semi Samherja tengj­ast og hvernig Björgólfur sér þetta sam­særi fyrir sér liggur ekki fyrir.  

Samherji gagn­rýnir Stundina meðal ann­ars líka fyrir að hafa ekki spurt félagið um greiðsl­una á skatta­skuld þing­manns­ins í Marokkó en lætur þess ekki getið að Stundin reyndi að fá svar um málið frá Aðal­steini Helga­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Afr­íku­út­gerðar Samherja, í aðdrag­anda þess að fréttin var birt. Aðal­steinn svar­aði hvorki sms-skila­boðum né sím­tali frá Stund­inni enda hefur hann ekki verið vilj­ugur til að ræða við fjöl­miðla um starf­semi Samherja í Afríku. 

Samherji segir að mark­mið Stund­ar­innar sé ekki að stunda blaða­mennsku heldur aktíf­isma og að til­gang­ur­inn sé að skaða útgerð­ar­fé­lagið. „Hið sama á við um öruggar upp­lýs­ingar um að blaða­menn, sem birt hafa ásak­anir á hendur Samherja, hringja í við­skipta­vini Samherja og spyrja hvort þessir aðilar ætli sér ekki að hætta í við­skiptum við félagið í ljósi hinna óstað­festu full­yrð­inga. Þetta er ekki blaða­mennska heldur frekar akti­fífsmi með þeim aug­ljósa til­gangi að valda skaða.“ 

Hvað Björgólfur á við með þess­ari síð­ustu stað­hæf­ingu sinni liggur ekki fyrir.

Ítrekaðar tilraunir til að fá svör

Tekið skal fram að Fiskeribla­det spurði Stundina hvort mið­ill­inn vildi svara ásök­unum Samherja í aðdrag­anda birt­ingar frétt­ar­innar og sendi Stundin svar til norska blaðs­ins sem mið­ill­inn hefur einnig birt á vef­svæði sínu í sér­stakri frétt. 

Í þessu svari var meðal ann­ars rakið hvernig Stundin hefði í gegnum tíð­ina reynt að fá svör og í sumum til­fellum fengið svör við spurn­ingum frá Þor­steini Má Bald­vins­syni, fyrr­ver­andi for­stjóra Samherja, og eins hvernig til­raunir blaðs­ins og sam­starfsmiðla blaðs­ins, Kveiks og Al Jazeera, til að fá svör frá honum í aðdrag­anda birt­ingar upp­lýs­inga um mútu­greiðsl­urnar í Namibíu hefðu ekki skilað sér í neinum svörum frá for­stjór­anum þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Stundin hringdi meðal ann­ars tvisvar í Þorstein Má og sendi honum tvö sms með beiðni um við­tal í aðdrag­anda birt­ingar frétt­anna um miðjan nóv­em­ber og ítrek­aðar til­raunir Kveiks til að fá við­tal við Þorstein Má í einn mánuð skil­uðu ekki árangri. 

Þrátt fyrir þetta hefur Samherji haldið því fram frá birt­ingu frétta um mútu­greiðslur félags­ins í Namibíu að RÚV og aðrir fjöl­miðlar hafi beitt félagið órétti og ekki gefið því tæki­færi á að svara full­yrð­ingum um mútu­greiðslur félags­ins áður en þær voru birtar. Þessi málsvörn Samherja í Namib­íu­mál­inu er raunar sú sama sama og hjá félag­inu í Seðla­banka­mál­inu þar sem Þor­steinn Már Bald­vins­son kenndi RÚV öðrum þræði um rann­sókn þess máls. 

Fyr­ir­vari um hags­muni: Í frétt­inni kemur fjöl­mið­ill­inn Stundin og blaða­maður Stund­ar­innar við sögu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár