Sagður hafa fyrirskipað mútugreiðslur: „Það eru lygar“

Fyrr­verandi starfs­maður Samherja, Jóhannes Stef­ánsson, segir að Aðalsteinn Helgason hafi gefið honum fyrirmæli um að greiða sjávar­útvegs­ráðherra Namibíu mútur. Aðalsteinn neitar að svara fyrir mútu­greiðslurnar því hann sé orðinn gamall maður, en hann hætti að vinna fyrir þremur árum. Ráðherrann sagði af sér í dag vegna málsins.

„Þá sagði Aðalsteinn við mig að alltaf þegar gæfist tækifæri til að borga sjávar­útvegs­ráðherra þá ætti ég að borga sjávar­útvegs­ráðherra, hann orðaði þetta einhvern veginn svona.“ 

Þetta sagði Jóhannes Stef­ánsson, fyrr­verandi starfs­maður Samherja, sem steig fram í gærkvöldi og lýsti vafasömum viðskipta­háttum fyrir­tækisins í Namibíu á þeim tíma sem hann starfaði þar. Maðurinn sem um ræðir, er Aðalsteinn Helgason, sem var á þeim tíma framkvæmda­stjóri Kötlu Seafood, dóttur­félags Samherja. Hann hafnar frásögn Jóhannesar og segir að þetta séu lygar án þess að gefa frekari skýringar á því. 

Greiddu hundruð milljóna í mútur

Frá því í ársbyrjun 2012 greiddi Samherji hundruð milljóna króna í mútur til stjórn­málamanna og tengdra aðila í Namibíu til að fá kvóta sem lagði grunn að hagnaði félagsins undan­farin ár. Hagnaðurinn rann síðan í gegnum net skatta­skjóla. Þetta kemur fram í gögnum sem Stundin, Kveikur og Al Jazeera hafa unnið upp úr í samstarfi við Wikileaks. Jóhannes Stef­ánsson, steig einnig fram í gærkvöldi og í samtali við bæði Stundina og Kveik lýsti hann aðferðum Samherja. 

Í máli hans kom fram að árið 2012, þegar Samherji var að hefja veiðar í Namibíu, hefði tengda­sonur sjávar­útvegs­ráðherrans, Fitty Tamson Hatuikulipi, farið fram á greiðslu til ráðherrans. Fitty var einn þremenninga sem þáði mútu­greiðslur frá Samherja fyrir að vinna að hag fyrir­tækisins í Namibíu og tryggja ódýran hesta­makrílkvóta við strendur Namibíu. En nú átti að greiða sjávar­útvegs­ráðherranum, Bernhard Esau. 

„Ég man hvað Aðalsteinn var ákveðinn í þessu“

Þegar farið var fram á þessar greiðslur segist Jóhannes hafa hringt í Aðalstein og spurt hvað hann ætti að gera. 

„Ég hringdi í Aðalstein og sagði honum að það hafi komið ósk um að borga sjávar­útvegs­ráðherranum 500 þúsund Namibíu­dollara,“ eða tæplega tíu milljónir íslenskra króna. „Þá sagði Aðalsteinn við mig að alltaf þegar gæfist tækifæri til að borga sjávar­útvegs­ráðherra þá ætti ég að borga sjávar­útvegs­ráðherra, hann orðaði þetta einhvern veginn svona. Ég tók þetta út í peningum og lét Tamson hafa þetta. Tamson var milli­liður í þessu. Ég gerði þetta tvisvar,“ segir Jóhannes sem segir að samtals hafi verið um að ræða 1 milljóna Namibíu­dollara eða ríflega 18 milljónir króna. „Þetta situr í mér, af því ég man hvað Aðalsteinn var ákveðinn í þessu. Það var eins og hann væri ekki að gera þetta í fyrsta skiptið. Ég labba bara inn í hringiðu efnahags­brota og spillingar. Ég fékk orderur frá þeim og gerði bara mitt besta í því. Miðað við hvernig þeir greiddu mútur þá var eins og þeir væru ekki að gera þetta í fyrsta skipti.“

Neitar að svara fyrir þetta 

Í samtali við Stundina neitar Aðalsteinn Helgason, fyrr­verandi framkvæmda­stjóri Kötlu Seafood á Kanarí­eyjum sem í upphafi var einnig framkvæmda­stjóri Namibíu­útgerðarinnar, því að hafa átt í þessum orða­skiptum við Jóhannes Stef­ánsson. Aðalsteinn sat meðal annars fund á búgarði sjávar­útvegs­ráðherra Namibíu, Bernhards Esau, árið 2012 með Þorsteini Má Baldvins­syni meðal annarra. Hann var því innvinklaður inn í stofnun útgerðarinnar í Namibíu og fyrstu skrefin sem Samherji tók í landinu enda leit Jóhannes Stef­ánsson á hann sem sinn næsta yfirmann.

Í síma­samtali við Stundina, sem átti sér stað þann 31. október, segir Aðalsteinn að þessi orð Jóhannesar séu „lygar“, en útskýrir það ekki nánar. Samtalið er birt hér í heild sinni: 

Blaða­maður: Aðalsteinn? Ingi heiti ég Vilhjálmsson og er blaða­maður á Stundinni.

Aðalsteinn: Sæll.

Blaða­maður: Blessaður. Ég er að hringja í þig af því mig langar til að spyrja þig aðeins um starfsemi Samherja í Namibíu. Og ég er að hringja fyrir…

Aðalsteinn: Ég veit ekkert um hana.

Blaða­maður: Veist þú ekkert um hana?

Aðalsteinn: Ég er á áttræðis­aldri og er hættur að vinna þarna. Ég kom ekki nálægt því eftir 2012, fyrir sex árum síðan eða eitthvað. 

Blaða­maður: Mig langar að spyrja þig um vitneskju þína um þessa starfsemi á þeim tíma sem þú varst að vinna þarna.

Aðalsteinn: Nei, ég hef ekki áhuga á að svara því. 

Blaða­maður: Ha?

Aðalsteinn: Ég hef engan áhuga á að tala um það. 

Blaða­maður: Af hverju ekki?

Aðalsteinn: Ég er bara gamall maður og vil bara fá að vera í friði.

Blaða­maður: Þú ert bara tiltölu­lega nýhættur að vinna er það ekki?

Aðalsteinn: Nei, ég er löngu hættur að vinna.

Blaða­maður: Ertu ekki sjötugur?

Aðalsteinn: Jú, jú ég hætti að vinna 67 ára.

Blaða­maður: En sko, ég þarf eiginlega að fá að ræða við þig um þessi mál af því að þú…

Aðalsteinn: Ingi, vanda­málið er að ég þarf ekki að ræða við þig. Hvað gerum við þá?

Blaða­maður: Eh… það er ákveðið vandamál þar sem þú kemur mikið fram í þeim gögnum sem við höfum um þessi viðskipti…

Aðalsteinn: Ég veit alveg að Jóhannes [Stef­ánsson] er að tala við þig og það verður bara að hafa það. Þú verður bara að hafa þinn sögumann og treysta honum.

Blaða­maður: Við erum náttúru­lega með fullt af gögnum líka.

Aðalsteinn: Já, já, já.

Blaða­maður: Ha?

Aðalsteinn: Já, já, já.

Blaða­maður: Og hann vísar meðal annars í samskipti sem hann átti við þig…

Aðalsteinn: Já, já, já.

Blaða­maður: … þar sem að þú gafst honum grænt ljós á að greiða sjávar­útvegs­ráðherranum í Namibíu fjármuni.

Aðalsteinn: Það eru lygar.

Blaða­maður: Eru það lygar?

Aðalsteinn: Og vertu sæll.

Aðalsteinn skellti því næst á blaðamann og lauk þannig samtalinu.

Hann hefur ekki brugðist við umfjöllun Stundarinnar, Kveiks og Al Jazeera með neinum hætti, en umfjöllunin byggir sem fyrr segir á gögnum frá Wikileaks. 

Bernhard Esau sagði af sér í dag vegna málsins, líkt og dómsmála­ráðherra Namibíu, Sacky Shangala, eftir að upp komst að hann hafði þegið mútu­greiðslur frá Samherja. Héraðs­saksóknari vinnur að málinu með namibískum yfir­völdum, sem hafa einnig komið gögnum til skatt­rannsóknar­stjóra hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli siðferðis­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undrast þögn íslenskra stjórn­valda um þá staðreynd að stærsta spill­ing­armál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir tilstilli íslensks fyrir­tækis. Spyr hvort hundrað milljóna styrkur Orkusjóðs sé ríkis­styrkt spilling og sendir forsætis­ráðherra opið bréf og óskar liðsinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sakaður um stórfelld skatta­laga- og gjaldeyris­brot í Namibíu og fram­salskrafa væntanleg

Ríkis­saksóknari Namibíu er enn ákveðinn í því að óska eftir framsali þriggja stjórn­enda Samherja­félaga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjaldeyris­lögum muni mögulega bætast við sakar­efnin á hendur þeim. Stórfelld skatta­lagabrot Samherja­félaga sögð til rann­sóknar. Samherja­maður segir íslensk yfirvöld þegar hafa neitað að framselja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­ríkis­ráðherra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Samherja­málið við íslenska ráðherra og aðstoðar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér forseta­embættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arftaki formanns flokksins, sitjandi forseta sem hyggst setjast í helgan stein. Flokkurinn nýtur slíks yfirburðar­fylgis að innan­flokks­kosningin er sögð raun­verulegt forseta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­ánsson, uppljóstrari í Samherja­málinu, er sáttur við gang rann­sóknarinnar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagnrýnir þó aðgerðar­leysi yfirvalda við því þegar Samherja­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í viðbrögðum Samherja­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum liðist.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár