Banki lokaði á Samherja vegna hættu á peningaþvætti: Flutti níu milljarða í skattaskjól

Norski stór­bank­inn DNB NOR lét loka banka­reikn­ingum félags­ins Cape Cod FS í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum í fyrra. Samherji not­aði félagið til að greiða laun sjó­manna sinn í Namibíu. 9,1 millj­arður fór í gegn án þess að DNB NOR vissi nokkurn tím­ann hver ætti fyr­ir­tækið.

Í Hafnarfjarðarhöfn
Í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn Þor­steinn Már Bald­vins­son sést hér með þre­menn­ing­unum James, Tamson og Sacky fyrir framan togar­ann Vilhelm Þor­steins­son í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn árið 2015. Á mynd­inni eru einnig João De Barros, sonur fyrrum sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Angóla, og ráð­gjafi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans, Antonio.

Norski stór­bank­inn DNB NOR hætti í fyrra við­skiptum við félög Samherja á Kýpur og skatta­skjól­inu Marshall-eyjum í Kyrra­haf­inu, sem útgerðin hefur notað um ára­bil til að greiða sjó­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins í Afríku laun. DNB NOR gerði þetta vegna þess að bank­inn taldi að óvissa væri um raun­veru­legt eign­ar­hald félag­anna og þar af leið­andi  væri uppi grunur um að þau væru notuð til að stunda pen­inga­þvætti. Þegar óvissa er um eign­ar­hald slíkra fyr­ir­tækja geta fjár­mála­fyr­ir­tæki metið það sem svo að hætta sé á að hægt sé að nota fyr­ir­tækin til að stunda pen­inga­þvætti og geta bankar þá ákveðið að loka á við­skipti sín við þau. DNB NOR er stærsti bank­inn í Noregi og á norska ríkið rúm­lega 34 pró­senta hlut í fyr­ir­tæk­inu.

Samherji hafði þetta félag, Cape Cod FS, í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum í Kyrra­hafi, til að greiða laun sjó­manna sinna í Afríku allt frá árinu 2010. Samtals milli­færðu félög Samherja 9,1 millj­arð króna inn á reikn­inga Cape Cod FS á tíma­bil­inu og sama upp­hæð var milli­færð af reikn­ingum félags­ins á tíma­bil­inu. Félögin sem milli­færðu pen­ing­ana inn á reikn­ing­inn voru aðal­lega önnur félög Samherja, eins og Esja Seafood Limited á Kýpur og Esja Fishing Ltd. í Namibíu, svo dæmi séu tekin. Með þessu móti gat Samherji komið fjár­munum frá hinum ýmsu löndum, meðal ann­ars Namibíu, algjör­lega skatt­frjálst. 

Milli­færsl­urnar út af reikn­ing­unum voru aðal­lega launa­greiðslur til Austur-Evr­ópu­búa eða „Rússa“ eins og Sam­herj­a­menn köll­uðu þá, sam­kvæmt banka­yf­ir­litum frá hinum ýmsu fyr­ir­tækjum Samherja. Um var að ræða fimm banka­reikn­inga sem DNB NOR lok­aði vegna hættu á pen­inga­þvætti.  

Þetta kemur fram í gögnum um starf­semi Samherja í Afríku sem Stundin vinnur úr í sam­vinnu við Wikileaks, frétta­skýr­inga­þátt­inn Kveik í Rík­is­sjón­varp­inu og katör­sku sjón­varpss­stöð­ina Al Jazeera. 

Samherji hefur um ára­bil verið við­skipta­vinur DNB NOR og eru fjöl­mörg félög útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins með banka­reikn­inga hjá bank­anum, meðal ann­ars Kýp­ur­fé­lögin Esja Seafood Limited og Esja Shipping Limited. Félög tengd Samherja sem eru með banka­reikn­inga í DNB NOR taka við milli­færslum og greiða fjár­muni til og frá fjöl­mörgum löndum, meðal ann­ars til og frá Íslandi, mörgum löndum í Evrópu þar sem Samherji er með starf­semi og Namibíu, Márit­aníu og ann­arra Afr­íku­ríkja. Í gögn­unum eru meðal ann­ars fjöl­margar milli­færslu­beiðnir frá útgerð Samherja í Namibíu til félags­ins Cape Cod á Marshall-eyjum með milli­færslu­beiðnum upp á mörg hund­ruð þús­und doll­ara sem svo voru not­aðir til að greiða laun starfs­manna Samherja í Afr­íku­rík­inu. 

Kýp­ur­fé­lög Samherja hjá DNB NOR bank­anum eru mið­punktur Samherja og er pen­inga­flæði sam­stæð­unnar stjórnað í gegnum Mið­jarð­ar­hafs­eyj­una.

Engin skylda að greina frá eigandanum

Skatta­skjólið Marshall-eyjar á Kyrra­haf­inu hefur í gegnum árin verið þekkt fyrir að bjóða fjár­festum upp á sér­stak­lega mikla leynd um við­skipti þeirra. Til að mynda þurftu aðilar sem stofn­uðu eign­ar­halds­fé­lög á Marshall-eyjum ekki að gefa upp raun­veru­legt eign­ar­hald á félag­inu sem þeir stofn­uðu, svo­kall­aðan end­an­legan eig­anda (e. beneficial owner). Þetta kemur fram í upp­lýs­inga­gögnum fyr­ir­tæk­is­ins Rivkin árið 2011 en þetta fyr­ir­tæki veitti slíka þjón­ustu. Þá þurftu erlendir aðilar, sem stofn­uðu skúffu­fyr­ir­tæki á Marshall-eyjum, ekki að greiða neina skatta þar í landi auk þess sem engin skila­skylda á árs­reikn­ingum er í land­inu. Gagnsæi var því lítið sem ekk­ert.

Sökum þessa voru Marhs­hall-eyjar á svörtum lista Evr­ópu­sam­bands­ins yfir skatta­skjól heims­ins þar til í byrjun októ­ber árið 2019 en þá kom fram í fjöl­miðlum að sam­bandið hefði tekið þá ákvörðun að færa landið af list­anum. Þessum svarta lista Evr­ópu­sam­bands­ins var komið á fót árið 2017 með það fyrir augum að berj­ast gegn pen­inga­þvætti í heim­inum. Árið 2017 var Samherji enn þá að nota Cape Cod FS í gengum DNB NOR. 

Ein af ástæð­unum fyrir því að Marshall-eyjar eru ekki lengur á þessum svarta lista er að í nóv­em­ber í fyrra tóku gildi nýjar reglur í skatta­skjól­inu sem fela í sér að gefa þarf upp end­an­lega eig­endur allra fyr­ir­tækja þar í landi. Samkvæmt þessu hefur end­an­legur eig­andi Cape Cod FS, mögu­lega Samherji sjálfur, vænt­an­lega þurft að gefa upp eign­ar­hald sitt á félag­inu á Marshall-eyjum í fyrra.

Samkvæmt fyr­ir­tækja­skránni á Marshall-eyjum er Cape Cod FS enn þá starf­andi félag og hefur verið það frá 27. sept­em­ber árið 2010, nokkrum mán­uðum áður en banka­reikn­ingar félags voru stofn­aðir hjá DNB NOR. Félaginu er stýrt af eigna­stýr­ingar- og sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki sem heitir The Trust Company of the Marshall Islands. 

Fjármálastjórinn stýrði bankareikningunum

Eign­ar­haldið á Cape Cod var sagt vera hjá starfs­manna­leigu á Kýpur sem heitir JPC Ship Mana­gement þegar félagið stofn­aði banka­reikn­inga hjá DNB NOR árið 2010. JPC var hins vegar aldrei raunu­veru­lega eig­andi Cape Cod FS heldur virð­ist félagið hafa verið frontur fyrir Samherja og í reynd leppað eign­ar­haldið á félag­inu frá 2015 til 2018. Slík leppun er í pen­inga­þvætt­is­fræðum kölluð „rottu­hola“ og var JPC því lík­lega rottu­hola Samherja í mál­inu. 

Norski bank­inn fékk aldrei neina stað­fest­ingu á eign­ar­haldi félags­ins þrátt fyrir að Samherji hafi notað það í 8 ár til að flytja tæpa 10 millj­arða króna í gegnum það og greiða stafs­mönnum sínum laun.

Við­skipti Samherja við Cape Cod FS og JPC Ship Mana­gement, sem sagt var vera móð­ur­fé­lag Cape Cod frá árinu 2015, gengu þannig fyrir sig að Samherji gerði samn­inga við starfs­manna­leig­una um að hún myndi sjá Afr­íku­út­gerðum Samherja fyrir starfs­fólki, „Rússum“, sjó­mönnum frá Eystra­salts­lönd­unum, Úkraínu og Rúss­landi aðal­lega. Samn­ings­að­ili Samherja var fyr­ir­tækið Esja Fishing í Namibíu í þeim samn­ingi sem gerður var sem gilti um Namibíu. Starfs­menn Samherja í Afríku gerðu svo verk­taka­samn­inga við Cape Cod FS á Marshall-eyjum sem greiddi þeim launin fyrir vinn­una. 

Sá sem stýrði banka­reikn­ingum Cape Cod FS, DNB NOR, var svo meðal ann­ars fjár­mála­stjóri Kötlu Seafood, dótt­ur­fé­lags Samherja á Kanarí­eyjum, Brynjar Þórsson. Hann starf­aði hjá Kötlu Seafood þegar Samherji átti fyr­ir­tækið og hélt svo áfram hjá því eftir að rúss­neski útgerð­ar­mað­ur­inn Vitali Orlov keypti útgerð­ina af Samherja árið 2013. Brynjar hætti svo hjá Kötlu Seafood um ára­mótin 2015 og 2016.

Man ekki eftir félaginu

Brynjar Þórsson segir í sam­tali við Stundina að hann muni ekki eftir félag­inu Cape Cod FS. „Ég verð að segja eins og er að ég man ekki eftir þessu nafni,“ segir hann og vísar til félags­ins Cape Cod á Marshall-eyjum. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár