Sannleikur og vitneskja Björgólfs um Samherjamálið

Margs konar rang­færslur koma fram í máli Björg­ólfs Jóhanns­sonar, starf­andi for­stjóra Samherja, um Sam­herj­a­málið í Namibíu í við­tali sem hann veitti norska blað­inu Dagens Nær­ingsliv um miðjan des­em­ber. Stundin fór yfir við­talið við Björgólf og kann­aði sann­gildi stað­hæf­inga hans.

Sannleikur og vitneskja Björgólfs um Samherjamálið
Vitund Björg­ólfs Þor­steinn Már Bald­vins­son ákvað að stíga til hliðar sem for­stjóri Samherja í kjöl­far þess að greint var frá Namib­íu­mál­inu og tók Björgólfur Jóhanns­son við. Nýi for­stjór­inn virð­ist annað hvort ekki hafa kynnt sér málið eða að hann talar gegn betri vit­und um það.

Björgólfur Jóhanns­son, starf­andi for­stjóri Samherja, veitti sitt fyrsta lengra við­tal um Sam­herj­a­málið í Namibíu þann 14. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Viðtalið var birt í norska við­skipta­blað­inu Dagens Nær­ingsliv sem fjallað hefur mikið um Sam­herj­a­málið og notkun fyr­ir­tæk­is­ins á reikn­ingum í DNB-bank­anum í Noregi.

Í við­tal­inu neit­aði Björgólfur því meðal ann­ars að Samherji hefði greitt  mútur til emb­ættis- og ráða­manna í Namibíu til að kom­ast yfir hesta­makríl­skvóta í land­inu á árunum 2012 til 2019. Þá sagði hann að Samherji hefði mögu­lega bara verið að greiða áhrifa­mönn­unum, sem nú sitja í gæslu­varð­haldi í Namibíu grun­aðir um mútu­þægni og fleiri brot, fyrir ráð­gjaf­ar­þjón­ustu eða að Samherji hafi bara ein­fald­lega verið að kaupa kvóta af þeim.

Tekið skal fram að í við­tal­inu gerir Björgólfur fyr­ir­vara um vit­neskju sína um mútu­greiðsl­urnar, líkt og hann viti ekki sjálfur hvað er satt í mál­inu.

Björgólfur notar orða­lag eins og að hann „haldi ekki“ að greiddar hafi verið mútur og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár