Segir að allir þurfi aðhald – líka dómarar í Strassborg

Fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra segir að fjöldi aug­ljósra mann­rétt­inda­brota sé lát­inn sitja á hak­anum hjá MDE. Hins vegar sé legið yfir því að koma höggi á íslensk stjórn­völd vegna máls sem sé svo smá­vægi­legt í hinu stærra sam­hengi að undrum sæti.

Ögmundur Jónasson
Ögmundur Jónasson Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Rétt­ar­ríki er til af því að við viljum að það sé til. Ef við hins vegar fáum þann skiln­ing að stofn­anir þess séu plat þá fjarar undan því. Það má ekki ger­ast. Dóm­stólar þurfa því að vinna sér traust með rétt­látum og yfir­veg­uðum dómum. Geri þeir það ekki er hætt við að þeir grafi sér gröf.“

Þetta skrifar Ögmundur Jónasson, fyrr­ver­andi þing­maður VG og inn­an­rík­is­ráð­herra, á bogg­síðu sína en í færsl­unni fjallar hann um lands­rétt­ar­málið svo­kallað og nið­ur­stöðu yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu (MDE) sem birt­ist í vik­unni.

Hann segir að ekki ein­ungis skuli horfa á nið­ur­stöður MDE heldur hvaða við­fangs­efni þyki verðug að taka fyrir í dóm­stól sem eigi að kveða upp úr um brot á mann­rétt­indum. Þau mál sem vísað er til dóm­stóls­ins séu marg­falt fleiri en þau sem hann hafi getu eða vilja til að taka fyrir.

Hvaðan kemur ákafinn í að fylgja málinu eftir?

„Fjöldi aug­ljósra mann­rétt­inda­brota eru látin sitja á hak­anum. Hins vegar er legið yfir því að koma höggi á íslensk stjórn­völd og Alþingi vegna máls sem er svo smá­vægi­legt í hinu stærra sam­hengi að undrum sætir. Hvað veldur?“ spyr Ögmundur í færsl­unni. Enn fremur spyr hann hvort þetta sé ásetn­ingur – og þá hverra.

„Ef þetta verður ekki til­efni fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn í Strass­borg til að spyrja sjálfan sig áleit­inna spurn­inga þá þurfa aðrir að gera það. Hver hefur gangur þessa máls verið? Hvaðan kemur ákaf­inn í að fylgja því eftir? Hvernig eru svona mál til komin og hvern­ing eru þau unnin? Að hvaða marki koma Íslend­ingar að vinnslu mála á borð við þetta og síðan hvít­flibba-þvotti sem nú er haf­inn í Strass­borg?

Allir þurfa aðhald. Líka dóm­arar í Strass­borg,“ skrifar hann.

Telur niðurstöðuna í besta falli álitamál

Ögmundur segir að sömu aðilar, á meðal alþing­is­manna og lög­manna, sem vörðu för Róberts Spanó for­seta Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu til Tyrk­lands fyrr á árinu að taka við heið­urs­nafn­bótum frá helstu mann­rétt­inda­böðlum álf­unnar, fagni nú þeirri nið­ur­stöðu þessa sama dóm­stóls um að brotin hafi verið mann­rétt­indi á ein­stak­lingi sem ók próf­laus undir áhrifum eit­ur­lyfja og var dæmdur sekur á öllum dóm­stigum, vegna þess að einn dóm­ar­inn í Lands­rétti hefði verið skip­aður í emb­ætti með ólög­mætum hætti.

[links]„Auðvitað var merg­ur­inn máls­ins sá hjá dóm­stólnum í Strass­borg að reyna að sýna fram á að skipað hefði verið í Lands­rétt með ólög­mætum hætti. Það er hins vegar í besta falli álita­mál,“ skrifar hann og rekur ráðn­ing­ar­ferlið í færsl­unni.

Hann segir að deila megi um hvort allir máls­að­ilar hafi staðið sig í stykk­inu. Ef svo var ekki þá sé það nokkuð til að læra af.

Lands­réttur var sam­kvæmt skiln­ingi Ögmundar lög­lega skip­aður á sínum tíma og lætur hann sann­girni liggja á milli hluta. Í þriggja þrepa ráðn­ing­ar­ferl­inu hefðu allir aðilar mátt vanda sig betur en von­andi læri allir af reynsl­unni, segir hann.

Í fram­hald­inu gagn­rýnir hann Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn í Strass­borg og segir hann vera á góðri leið með að „grafa svo hressi­lega undan sjálfum sér“ að hætt verði að taka hann alvar­lega ef fram fer sem horfir.

Að því mun koma að dómararnir í Strassborg verði krafnir svara

Ögmundur segir að það að taka lands­rétt­ar­málið yfir­leitt fyrir veki spurn­ingar í ljósi þeirra grófu mann­rétt­inda­brota í ýmsum ríkjum Evrópu sem ekki fái afgreiðslu. Dóm­stóll­inn hafi nú legið yfir því mán­uðum saman á „him­in­háum skatt­lausum launum sínum“ að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að lýð­ræðið hafi brugð­ist á Íslandi við skipan dóm­ara í máli próf­lausa dóp­aða bíl­stjór­ans í Kópavogi.

„En nú er vandi á höndum. Dómarinn íslenski, sem hefur þurft að sæta ein­elti frá Strass­borg, hefur í milli­tíð­inni sótt um emb­ætti sitt að nýju. Og viti menn, dóm­ar­inn var nú met­inn hæf­asti umækj­and­inn af öllum umsækj­endum og hlaut skipun í emb­ætti.

Hvað skyldu dóm­ar­arnir í Strass­borg segja við þessu? Hæfastur af öllum, en vel að merkja í fyrri skipan hafði dóm­ar­inn einnig verið met­inn hæfur af mats­nefnd­inni!

Frá þeim mun ekk­ert svar koma enda þurfa þeir engum að svara. En að því mun koma að þeir verði krafðir svara,“ skrfar Ögmundur.

Lesa má færslu Ögmundar í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár