Dómsmálaráðherra: „Þessi niðurstaða veldur vissulega vonbrigðum“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra ræddi nið­ur­stöðu Lands­rétt­ar­máls­ins á rík­is­stjórn­ar­fundi og sagði hana í kjöl­farið valda sér von­brigðum. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir bent á mjög alvar­lega ann­marka.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Samsett mynd

„Þessi nið­ur­staða veldur vissu­lega von­brigðum,“ sagði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra í sam­tali við Vísi eftir rík­is­stjórn­ar­fund í ráð­herra­bú­staðnum í dag, en á fundi rík­is­stjórn­ar­innar var meðal ann­ars farið yfir nið­ur­stöðu yfir­deildar MDE og við­brögð við henni.

Dóms­mála­ráð­herra sagði að von­ast hefði verið eftir því að yfir­deildin myndi taka meira mið af mál­flutn­ingi lög­manna íslenska rík­is­ins í mál­inu og að það virt­ist vera margt athygl­is­vert í dómnum, sem hún ætti þó eftir að lesa og rýna betur í. Hann yrði tek­inn til ítar­legrar skoð­unar af hálfu stjórn­valda.[links]

Áslaug Arna tjáði sig lítið efn­is­lega um nið­ur­stöð­una og sagð­ist verða til­búin til þess að svara fleiri spurn­ingum um málið í dag. Hún sagði þó ljóst að þessi nið­ur­staða hefði ekki neina réttaró­vissu í för með sér.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ræddi nið­ur­stöð­una einnig við Vísi, sem streymdi beint frá ráð­herra­bú­staðnum í hádeg­inu. Hún sagð­ist nátt­úr­lega ekki hafa lesið nið­ur­stöð­una, sem kunn­gjörð var upp úr kl. 10 í morgun.

[adspot]

Við fyrstu sýn liti þó út fyrir, sem raunin er, að hann sner­ist ein­ungis um þá fjóra dóm­ara sem Sigríður Á. Andersen fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra ákvað að skipa og ganga þar með fram­hjá mati hæf­is­nefndar, en ekki alla dóm­ar­ana fimmtán sem skip­aðir voru.

Nið­ur­staða yfir­deild­ar­innar felur einnig ekki í sér kröfu um að öll mál sem þessir fjórir dóm­arar dæmd í skuli end­ur­upp­tekin, en for­sæt­is­ráð­herra sagði þó öllum frjálst að óska eftir því að fá sín mál upp­tekin að nýju.

For­sæt­is­ráð­herra sagði þó bent á „mjög alvar­lega ann­marka“ í nið­ur­stöðu yfir­deild­ar­innar, sem Sigríður Á. Andersen hefði axlað ábyrgð á með því að láta af emb­ætti dóms­mála­ráð­herra.

Hún sagði það skýra málin að fá nið­ur­stöðu yfir­deild­ar­innar. Hún hefði verið búin undir ýmsa mögu­leika varð­andi nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins og að sitt mat væri að nú yrði hægt að fara að „horfa fram á veg­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár