Enn ekki upplýst um kostnað ríkislögmanns vegna ólöglegrar skipunar dómara í Landsrétt

Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna þess að þáver­andi dóms­mála­ráð­herra sinnti ekki rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­laga þegar hún lagði fyrir Alþingi lista yfir dóm­ara sem ætti að skipa við Lands­rétt var 141 millj­ónir króna í lok síð­asta árs. Hann er enn að aukast.

Sigríður Á. Andersen sagði af sér sem dómsmálaráðherra vegna málsins
Sigríður Á. Andersen sagði af sér sem dóms­mála­ráð­herra vegna máls­ins Mynd: Bára Huld Beck

Embætti rík­is­lög­manns svarar því ekki til hver kostn­aður þess var við að reka mál íslenska rík­is­ins vegna skip­unar dóm­ara í Lands­rétt, sem var dæmd ólög­mæt af Hæsta­rétti og Mann­rétt­inda­dóm­stól Evr­ópu.

Í svari Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um kostn­að­inn segir að ekki sé haldið sér­stak­lega utan um tíma­skrán­ingu vegna ein­stakra mála hjá emb­ætt­inu. Því liggi ekki fyrir hversu margar vinnu­stundir hafi farið í verk­efnið. Eina aðkeypta þjón­usta emb­ætt­is­ins vegna máls­ins hafi verið vegna kostn­aðar við þýð­ingar á íslenskum dómum, nefnd­ar­á­litum og öðrum gögnum. Fyrir und­ir­rétti Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins hafi kostn­að­ur­inn verið um 1,1 milljón krónur og fyrir yfir­deild um 4,2 millj­ónir króna.

Annar þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Helga Vala Helga­dóttir, hafði áður spurt dóms­mála­ráð­herra út í kostn­að­inn í mál­inu. Í svari sem hún fékk í febr­úar á þessu ári kom fram að beinn kostn­aður íslenska rík­is­ins væri um 141 milljón króna. Þá voru ekki taldar með skaða­bætur sem Eiríkur Jóns­son, einn þeirra fjög­urra sem Sig­ríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, ákvað að leggja ekki til að yrði skip­aður í rétt­inn þrátt fyrir að dóm­nefnd hafi talið hann á meðal hæf­ustu umsækj­enda á rétt á.

[adspot]Auk þess vant­aði kostnað af starfi dóm­nefndar um hæfni umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara og starfs­manns henn­ar, kostnað vegna aug­lýs­inga og annar slíkur kostn­aður sem til féll á und­ir­bún­ings­stigi. Þá vant­aði inn í töl­urnar kostnað vegna vinnu rík­is­lög­manns vegna máls­ins og þess vegna var spurt um hann á ný.

Ólöglega skipaðir dómarar

Lands­rétt­ar­málið snýst um að í aðdrag­anda þess að Lands­­réttur var settur á lagg­irn­­ar, en hann hóf störf í byrjun árs 2018, þurfti að skipa 15 dóm­­ara við nýja milli­­­dóms­­stig­ið. Sér­­­­­stök hæf­is­­­­nefnd mat Eirík þá sjö­unda hæf­astan af þeim sem sóttu um og Jón Hösk­ulds­son var einnig á meðal 15 hæf­­ustu að mati henn­­ar. Sig­ríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­­­­mála­ráð­herra, ákvað hins vegar að taka út fjóra þeirra sem hæf­is­­­­nefndin hafði metið á meðal 15 hæf­­­­ustu og setja aðra, sem nefndin hafði metið minna hæfa, inn á lista yfir þá sem hún vildi skipa. Eiríkur og Jón voru báðir þar á með­al. Alþingi sam­­­­þykkti svo lista Sig­ríð­­­­ar.

Ást­ráður Har­alds­­­­­­son og Jóhannes Rúnar Jóhanns­­­­­­son, sem urðu báðir af dóm­­­­­­ara­­­­­­sæti í Lands­rétti vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­­­­­ar, stefndu rík­­­­­­inu vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­­­­ar. Hæst­i­­­­­réttur komst að þeirri nið­­­­­ur­­­­­stöðu í des­em­ber 2017 að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­­­­­nefnd­­­­­ar­inn­­­­­ar.

Auk þess komst Mann­rétt­inda­­­­dóm­­­­stóll Evr­­­­ópu að þeirri nið­­­­ur­­­­stöðu í mál­inu að dóm­­­­ar­­­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­­­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­­­­með­­­­­­­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­­­mála­ráð­herra.

Þeir Eiríkur og Jón höfð­uðu ekki sam­­bæri­­legt mál og Ást­ráður og Jóhann­es. Jón sendi hins vegar kröfu á íslenska ríkið eftir að dómur Hæsta­réttar lá fyrir þar sem hann krafði það um skaða- og miska­bætur vegna skip­unar í Lands­rétt. Þeirri kröfu var ekki svarað og í kjöl­farið höfð­aði Jón sem hann vann sigur í fyrir Hæsta­rétti fyrr í þessum mán­uð­i.

Jón krafð­ist þess að fá bætt mis­­­­­­mun launa, líf­eyr­is­rétt­inda og ann­­­­­­arra launa­tengdra rétt­inda dóm­­­­­­ara við Lands­rétt ann­­­­­­ars vegar og hér­­­­­­aðs­­­­­­dóm­­­­­­ara hins veg­­­­­­ar. Jón krafð­ist þess að fá þennan mun greiddan út starfsævi sína, eða í níu ár.

Eiríkur ákvað að fylgja í fót­­­­spor Jóns stefndi rík­­­­inu. Hann er fæddur árið 1977 og átti því um 27 ár eftir á vinn­u­­­­­­­mark­aði þegar skipað var í Lands­rétt miðað við hefð­bund­inn eft­ir­­­­­­­launa­ald­­­­­­­ur.

Eiríkur sótti aftur um stöðu dóm­­ara við Lands­rétt og var skip­aður í það emb­ætti síð­­sum­­­ars 2019. Jón sótti söm­u­­leiðis um lausa stöðu við Lands­rétt í fyrra og var skip­aður í sept­­em­ber 2020.

Sinnti ekki rann­­sókn­­ar­­skyldu

Í dóms­orði Hæsta­réttar í málum Eiríks og Jóns sagði meðal ann­­ars að Sig­ríði hafi ver­ið að gera til­­lögu til Alþingis um skipun ann­­ars eða ann­­arra umsækj­enda en þeirra sem dóm­­nefnd hafði metið hæf­asta, að því til­­­skildu að þeir full­nægðu almennum hæf­is­skil­yrðum lag­anna. „Til­laga ráð­herra um að víkja frá áliti dóm­­nefndar og leggja til aðra umsækj­endur en þá sem dóm­­nefnd hafði metið hæf­asta varð hins vegar að byggja á mál­efna­­legum sjón­­­ar­miðum og vera reist á full­nægj­andi rann­­sókn, sam­an­­burði og rök­­stuðn­­ingi fyrir breyttri til­­lögu um það hver eða hverjir umsækj­enda væru að mati ráð­herra hæf­­astir til að gegna dóm­­ara­emb­ætti önd­vert áliti dóm­­nefnd­­ar. Að feng­inni slíkri til­­lögu frá ráð­herra væri það síðan hlut­verk Alþingis að hafa eft­ir­lit með því að til­­laga ráð­herra full­nægði þessum kröfum[...]Af hálfu gagn­á­frýj­anda hefur ekki verið gerð við­un­andi grein fyrir því hvaða sam­an­­burður fór fram af hálfu ráð­herra á aðal­­á­frýj­anda og öðrum umsækj­endum og hvernig inn­­­byrðis mati á þeim var hátt­að, en dóm­­nefnd hafði sam­­kvæmt stiga­töflu raðað aðal­­á­frýj­anda í ell­efta sæti yfir 15 hæf­­ustu umsækj­end­­urna. Þá hefur Hæst­i­­réttur eins og í hér­­aðs­­dómi greinir þegar hafnað sjón­­­ar­miðum um að þeir ann­­markar hafi verið á dóm­­nefnd­­ar­á­lit­inu að til­­efni hafi verið fyrir ráð­herra að víkja frá því.“

Af þessu leiði að vafi sé um það hvort full­nægj­andi rann­­sókn máls­ins, og að öðru leyti lög­­­mæt með­­­ferð þess af hálfu ráð­herra, hefði leitt til ann­­arrar nið­­ur­­stöðu um hæfni Eiríks og Jóns en dóm­­nefnd hafði kom­ist að. Það verði að túlka þeim í hag.

Mest til Blackstone

Hæsti kostn­að­ur­inn vegna máls­ins féll til vegna settra dóm­ara í fjar­veru þeirra fjög­urra dóm­ara sem þurftu að fara í leyfi frá Lands­rétti eftir að skipan þeirra var dæmd ólög­mæt. Þrír þeirra hafa nú verið end­ur­skip­aðir og sá fjórði, Jón Finn­boga­son, sótti um lausa stöðu við rétt­inn í lok síð­asta árs. Fyrr á þessu var hins vegar Símon Sig­valda­son, dóm­stjóri í Hér­aðs­dómi Reykja­vík­ur, skip­aður í þá stöðu. Ekki hefur verið samið við Jón um starfs­lok og hann því enn laun­aður dóm­ari við Lands­rétt án þess að geta dæmt í málum. Kostn­aður vegna skip­unar hans eykst því í hverjum mán­uði. Þegar upp­haf­lega var skipað í Lands­rétt hafði Jón lent í 30. sæti af 33 umsækj­endum á hæfn­is­lista dóm­nefnd­ar, en Sig­ríður Andersen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, ákvað samt sem áður að skipa hann. Kostn­aður Lands­réttar vegna leyfis dóm­ar­anna var rúm­lega 73 millj­ónir króna í lok síð­asta árs.

[links]Dæmdur máls­kostn­aður vegna mála er tap­ast höfðu fyrir íslenskum dóm­stólum var 10,6 millj­ónir króna og máls­kostn­aður fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evr­ópu 20 þús­und evr­ur, eða 3,1 milljón króna.

Dæmdar miska- og/eða skaða­bætur er íslenska rík­inu bar sam­kvæmt dómum að greiða umsækj­endum um dóm­ara­starf voru sam­tals 19,7 millj­ónir króna en inn í þá tölu vantar skaða­bætur Eiríks Jóns­son­ar, sem fékk við­ur­kennda skaða­bóta­skylda íslenska rík­is­ins gagn­vart sér með dómi Hæsta­réttar fyrr í febr­ú­ar.

Sér­fræði­ráð­gjöf til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í aðdrag­anda og í kjöl­far nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu og yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu kost­aði sam­tals um 36,1 milljón króna og íslensk þýð­ing dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu í mál­inu kostn­aði um 1,1 milljón króna. Þýð­ing á íslenskum dóm­um, nefnd­ar­á­litum og öðrum gögnum kost­aði sam­tals um 5,3 millj­ónir króna.

Í svar­inu til Rósu Bjarkar sem birt­ist í gær kemur fram að sér­fræði­ráð­gjöfin til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins fór að uppi­stöðu til lög­manns­stof­unnar Blackstone, sem fékk greiddar tæp­lega 32 millj­ónir króna, og lög­manns­stof­unnar Advokatfirmaet Schjodt AS, sem fékk greiddar 4,5 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár