Dómnefnd metur Símon Sigvaldason hæfastan til að setjast í Landsrétt

Af þeim fjórum sem voru ekki metnir hæf­astir til að setj­ast í Lands­rétt sum­arið 2017, en voru samt skip­aðir í emb­ætti við rétt­inn, er ein­ungis einn sem hefur ekki fengið nýja skipun. Sá var ekki met­inn hæf­astur umsækj­enda um lausa stöðu.

Símon Sig­valda­son hér­aðs­dóm­ari hefur verið met­inn hæf­astur þeirra þriggja sem sóttu um laust emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt áður en að umsókn­ar­frestur rann út í des­em­ber í fyrra.

Aðrir umsækj­endur voru Ragn­heiður Snorra­dóttir hér­aðs­dóm­ari og Jón Finn­björns­son, dóm­ari við Lands­rétt.

Jón er eini dóm­ar­inn af þeim fjórum sem dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu sem féll í mars 2019 í Lands­rétt­ar­mál­inu tekur til sem ekki hefur fengið nýja skipun við rétt­inn. Ásmundur Helga­son var skip­aður að nýju 17. apríl síð­ast­lið­inn, Arn­fríður Ein­ars­dóttir 1. júlí og Ragn­heiður Braga­dóttir þann 15. sept­em­ber. Þegar dóm­nefnd mat 33 umsækj­endur um 15 lausar stöður við Lands­rétt árið 2017 setti hún Jón í 30 sæti af 33. Sigríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, ákvað samt sem áður að skipa Jón, og þau þrjú sem nefnd voru hér að ofan, en voru ekki metin á meðal 15 hæf­ustu. Í kjöl­farið úrskurð­uðu íslenskir dóm­stólar að Sig­ríður hefði brotið stjórn­sýslu­lög með atferli sínu. Auk þess kom­st Mann­rétt­inda­­­­dóm­­­­stóll Evr­­­­ópu að þeirri nið­­­­ur­­­­stöðu í mál­inu að dóm­­­­ar­­­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­­­lega skip­að­ir. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­­­mála­ráð­herra.

[adspot]Fari Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra eftir mati dóm­nefndar um hæfni umsækj­enda og skipi þann sem nefndin telur hæf­astan, Símon Sig­valda­son, verður ekki breyt­ing þar á.

Hefur mikla reynslu

Í umsögn dóm­nefndar segir að það sé álit nefnd­ar­innar að Símon sé hæf­astur umsækj­enda til að gegna stöðu dóm­ara við Lands­rétt. Hann hafi mikla reynslu af dóm­störfum og hafi meðal ann­ars verið settur dóm­ari í Hæsta­rétti í fjöl­mörgum málum. Frá árinu 2017 hafi hann verið dóm­stjóri Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, hafi fjöl­þætta reynslu af stjórn­sýslu­störfum og verið for­maður dóm­stóla­ráðs um ára­bil.

Símon hafi auk þess sinnt umtals­verðri kennslu í laga­deild Háskóla Íslands, samið tvö fræði­rit og skrifað fræði­greinar um lög­fræði­leg álita­efni. „Síðast en ekki síst hefur hann sýnt með störfum sínum sem dóm­ari að hann hefur gott vald jafnt á einka­mála- og saka­mála­rétt­ar­fari og er fær um að leysa úr flóknum lög­fræði­legum ágrein­ings­efnum á grein­ar­góðan og rök­studdan hátt.“

Dóm­nefnd­ina skip­uðu: Eiríkur Tómasson, for­maður, Guðrún Björk Bjarna­dóttir, Halldór Hall­dórs­son, Helga Melkorka Ótt­ars­dóttir og Kristín Bene­dikts­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár