Ólögleg skipan dómara í Landsrétt kostaði skattgreiðendur að minnsta kosti 141 milljón

Beinn kostn­aður íslenska rík­is­ins vegna þess að Sigríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, sinnti ekki rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­laga þegar hún lagði fyrir Alþingi lista yfir dóm­ara sem ætti að skipa við Lands­rétt hefur verið birtur.

Sigríður Á. Andersen sagði af sér sem dómsmálaráðherra vegna málsins.
Sigríður Á. Andersen sagði af sér sem dóms­mála­ráð­herra vegna máls­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Beinn kostn­aður íslenska rík­is­ins vegna skip­unar dóm­ara í Lands­rétt, sem var dæmd ólög­mæt af Hæsta­rétti og Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu, er 140.952.843 krónur. Þá er ekki taldar með skaða­bætur sem Eiríkur Jónsson, einn þeirra fjög­urra sem Sigríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, ákvað að leggja ekki til að yrði skip­aður í rétt­inn þrátt fyrir að dóm­nefnd hafi talið hann á meðal hæf­ustu umsækj­enda. Auk þess vantar kostnað af starfi dóm­nefndar um hæfni umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara og starfs­manns hennar, kostnað vegna aug­lýs­inga og annar slíkur kostn­aður sem til féll á und­ir­bún­ings­stigi. Þá vantar inn í töl­urnar kostnað vegna vinnu rík­is­lög­manns vegna máls­ins, en sá kostn­aður hefur aldrei feng­ist upp­gef­inn. Því má ætla að end­an­legur kostn­aður vegna máls­ins verði mun hærri.

Þetta kemur fram í svari Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Helgu Völu Helga­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um kostnað íslenska rík­is­ins vegna máls­ins, sem birt var á vef Alþingis í dag.

Tók fjóra út og setti aðra fjóra inn

Í aðdrag­anda þess að Lands­réttur var settur á lagg­irn­ar, en hann hóf störf í byrjun árs 2018, þurfti að skipa 15 dóm­ara við nýja milli­dóms­stig­ið. Sér­­­stök hæf­is­­­nefnd mat Eirík þá sjö­unda hæf­astan af þeim sem sóttu um og Jón Hösk­ulds­son var einnig á meðal 15 hæf­ustu að mati henn­ar. Sig­ríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­­­mála­ráð­herra, ákvað hins vegar að taka út fjóra þeirra sem hæf­is­­­nefndin hafði metið á meðal 15 hæf­­­ustu og setja aðra, sem nefndin hafði metið minna hæfa, inn á lista yfir þá sem hún vildi skipa. Eiríkur og Jón voru báðir þar á meðal. Alþingi sam­­­þykkti svo lista Sig­ríð­­­ar.

[adspot]Ást­ráður Har­alds­­­­­son og Jóhannes Rúnar Jóhanns­­­­­son, sem urðu báðir af dóm­­­­­ara­­­­­sæti í Lands­rétti vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­­­­ar, stefndu rík­­­­­inu vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­­­ar. Hæst­i­­­­réttur komst að þeirri nið­­­­ur­­­­stöðu í des­em­ber 2017 að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­­­­nefnd­­­­ar­inn­­­­ar.

Auk þess komst Mann­rétt­inda­­­dóm­­­stóll Evr­­­ópu að þeirri nið­­­ur­­­stöðu í mál­inu að dóm­­­ar­­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­­­með­­­­­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­­mála­ráð­herra.

Tveir stefndu og vildu bætur

Þeir Eiríkur og Jón höfð­uðu ekki sam­bæri­legt mál og Ást­ráður og Jóhann­es. Jón sendi hins vegar kröfu á íslenska ríkið eftir að dómur Hæsta­réttar lá fyrir þar sem hann krafði það um skaða- og miska­bætur vegna skip­unar í Lands­rétt. Þeirri kröfu var ekki svarað og í kjöl­farið höfð­aði Jón sem hann vann sigur í fyrir Hæsta­rétti fyrr í þessum mán­uði.

Jón krafð­ist þess að fá bætt mis­­­­­mun launa, líf­eyr­is­rétt­inda og ann­­­­­arra launa­tengdra rétt­inda dóm­­­­­ara við Lands­rétt ann­­­­­ars vegar og hér­­­­­aðs­­­­­dóm­­­­­ara hins veg­­­­­ar. Jón krafð­ist þess að fá þennan mun greiddan út starfsævi sína, eða í níu ár.

Eiríkur ákvað að fylgja í fót­­­spor Jóns stefndi rík­­­inu. Hann er fæddur árið 1977 og átti því um 27 ár eftir á vinn­u­­­­­­mark­aði þegar skipað var í Lands­rétt miðað við hefð­bund­inn eft­ir­­­­­­launa­ald­­­­­­ur.

Eiríkur sótti aftur um stöðu dóm­ara við Lands­rétt og var skip­aður í það emb­ætti síð­sum­ars 2019. Jón sótti sömu­leiðis um lausa stöðu við Lands­rétt í fyrra og var skip­aður í sept­em­ber 2020.

Sinnti ekki rann­sókn­ar­skyldu

Í dóms­orði Hæsta­réttar í málum Eiríks og Jóns sagði meðal ann­ars að Sig­ríði hafi ver­ið að gera til­lögu til Alþingis um skipun ann­ars eða ann­arra umsækj­enda en þeirra sem dóm­nefnd hafði metið hæf­asta, að því til­skildu að þeir full­nægðu almennum hæf­is­skil­yrðum lag­anna. „Til­laga ráð­herra um að víkja frá áliti dóm­nefndar og leggja til aðra umsækj­endur en þá sem dóm­nefnd hafði metið hæf­asta varð hins vegar að byggja á mál­efna­legum sjón­ar­miðum og vera reist á full­nægj­andi rann­sókn, sam­an­burði og rök­stuðn­ingi fyrir breyttri til­lögu um það hver eða hverjir umsækj­enda væru að mati ráð­herra hæf­astir til að gegna dóm­ara­emb­ætti önd­vert áliti dóm­nefnd­ar. Að feng­inni slíkri til­lögu frá ráð­herra væri það síðan hlut­verk Alþingis að hafa eft­ir­lit með því að til­laga ráð­herra full­nægði þessum kröfum[...]Af hálfu gagn­á­frýj­anda hefur ekki verið gerð við­un­andi grein fyrir því hvaða sam­an­burður fór fram af hálfu ráð­herra á aðal­á­frýj­anda og öðrum umsækj­endum og hvernig inn­byrðis mati á þeim var hátt­að, en dóm­nefnd hafði sam­kvæmt stiga­töflu raðað aðal­á­frýj­anda í ell­efta sæti yfir 15 hæf­ustu umsækj­end­urna. Þá hefur Hæsti­réttur eins og í hér­aðs­dómi greinir þegar hafnað sjón­ar­miðum um að þeir ann­markar hafi verið á dóm­nefnd­ar­á­lit­inu að til­efni hafi verið fyrir ráð­herra að víkja frá því.“

Af þessu leiði að vafi sé um það hvort full­nægj­andi rann­sókn máls­ins, og að öðru leyti lög­mæt með­ferð þess af hálfu ráð­herra, hefði leitt til ann­arrar nið­ur­stöðu um hæfni Eiríks og Jóns en dóm­nefnd hafði kom­ist að. Það verði að túlka þeim í hag.

Einn enn í leyfi

Hæsti kostn­að­ur­inn vegna máls­ins féll til vegna settra dóm­ara í fjar­veru þeirra fjög­urra dóm­ara sem þurftu að fara í leyfi frá Lands­rétti eftir að skipan þeirra var dæmd ólög­mæt. Þrír þeirra hafa nú verið end­ur­skip­aðir og sá fjórði, Jón Finn­boga­son, sótti um lausa stöðu við rétt­inn í lok síð­asta árs. Fyrr í þess­ari viku komst dóm­nefnd um hæfi umsækj­enda hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að Símon Sig­valda­son, dóm­stjóri í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, væri hæf­asti umsækj­and­inn um það starf. Þegar upp­haf­lega var skipað í Lands­rétt hafði Jón lent í 30. sæti af 33 umsækj­endum á hæfn­is­lista dóm­nefndar, en Sigríður ákvað samt sem áður að skipa hann. Kostn­aður Lands­réttar vegna leyfis dóm­ar­anna var rúm­lega 73 millj­ónir króna í lok síð­asta árs og hann heldur vænt­an­lega áfram að hækka á meðan að Jón er í leyfi.

[links]Dæmdur máls­kostn­aður vegna mála er tap­ast hafa fyrir íslenskum dóm­stólum var 10,6 millj­ónir króna og máls­kostn­aður fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu 20 þús­und evrur, eða 3,1 milljón króna.

Dæmdar miska- og/eða skaða­bætur er íslenska rík­inu bar sam­kvæmt dómum að greiða umsækj­endum um dóm­ara­starf voru sam­tals 19,7 millj­ónir króna en inn í þá tölu vantar skaða­bætur Eiríks Jóns­sonar, sem fékk við­ur­kennda skaða­bóta­skylda íslenska rík­is­ins gagn­vart sér með dómi Hæsta­réttar fyrr í febr­úar.

Sér­fræði­ráð­gjöf til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í aðdrag­anda og í kjöl­far nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu og yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu kost­aði sam­tals um 36,1 milljón króna og íslensk þýð­ing dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í mál­inu kostn­aði um 1,1 milljón króna. Þýðing á íslenskum dómum, nefnd­ar­á­litum og öðrum gögnum kost­aði sam­tals um 5,3 millj­ónir króna.

Hér er ótal­inn kostn­aður af starfi dóm­nefndar um hæfni umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara og starfs­manns hennar, kostn­aður vegna aug­lýs­inga og annar slíkur kostn­aður sem til féll á und­ir­bún­ings­stigi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár