Dómsmálaráðherra gerir tillögu um að skipa Símon Sigvaldason í Landsrétt

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir vill að Símon Sig­valda­son verði skip­aður í eina lausa stöðu við Lands­rétt. Það þýðir að Jón Finn­björns­son, sem er í leyfi og sótti um end­ur­skipun, fær hana ekki.

Símon Sigvaldason
Símon Sig­valda­son Mynd: Dómsmálaráðuneytið

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur ákveðið að gera til­lögu til for­seta Íslands að Símon Sig­valda­son hér­aðs­dóm­ari verði skip­aður í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt. Símon var met­inn hæf­astur þeirra þriggja sem sóttu um laust emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt áður en að umsókn­ar­frestur rann út í des­em­ber í fyrra.

Fallist for­seti á til­lögu dóms­mála­ráð­herra, sem hann gerir án und­an­tekn­inga, þá mun Símon taka sæti í Lands­rétti eftir helgi, eða 1. mars.

Aðrir umsækj­endur um stöð­una voru Ragn­heiður Snorra­dóttir hér­aðs­dóm­ari og Jón Finn­björns­son, dóm­ari við Lands­rétt.

Jón er eini dóm­­ar­inn af þeim fjórum sem dómur Mann­rétt­inda­­dóm­stóls Evr­­ópu sem féll í mars 2019 í Lands­rétt­­ar­­mál­inu tekur til sem ekki hefur fengið nýja skipun við rétt­inn. Ásmundur Helga­­son var skip­aður að nýju 17. apríl síð­­ast­lið­inn, Arn­­fríður Ein­­ar­s­dóttir 1. júlí og Ragn­heiður Braga­dóttir þann 15. sept­­em­ber. Þegar dóm­nefnd mat 33 umsækj­endur um 15 lausar stöður við Lands­rétt árið 2017 setti hún Jón í 30 sæti af 33. Sig­ríður Á. And­er­sen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, ákvað samt sem áður að skipa Jón, og þau þrjú sem nefnd voru hér að ofan, en voru ekki metin á meðal 15 hæf­ust­u.

[adspot]Í kjöl­farið úrskurð­uðu íslenskir dóm­stólar að Sig­ríður hefði brotið stjórn­sýslu­lög með atferli sínu. Auk þess kom­st Mann­rétt­inda­­­­­dóm­­­­­stóll Evr­­­­­ópu að þeirri nið­­­­­ur­­­­­stöðu í mál­inu að dóm­­­­­ar­­­­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­­­­lega skip­að­­ir. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­­­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­­­­mála­ráð­herra.

Mjög reyndur dómari

Í umsögn dóm­nefndar um hæfi umsækj­enda sagði að það væri álit nefnd­ar­innar að Símon sé hæf­astur umsækj­enda til að gegna stöðu dóm­ara við Lands­rétt. Hann hafi mikla reynslu af dóm­störfum og hafi meðal ann­ars verið settur dóm­ari í Hæsta­rétti í fjöl­mörgum mál­um. Frá árinu 2017 hafi hann verið dóm­stjóri Hér­aðs­dóms Reykja­vík­ur, hafi fjöl­þætta reynslu af stjórn­sýslu­störfum og verið for­maður dóm­stóla­ráðs um ára­bil. 

Símon hafi auk þess sinnt umtals­verðri kennslu í laga­deild Háskóla Íslands, samið tvö fræði­rit og skrifað fræði­greinar um lög­fræði­leg álita­efni. „Síð­ast en ekki síst hefur hann sýnt með störfum sínum sem dóm­ari að hann hefur gott vald jafnt á einka­mála- og saka­mála­rétt­ar­fari og er fær um að leysa úr flóknum lög­fræði­legum ágrein­ings­efnum á grein­ar­góðan og rök­studdan hátt.“

Áfram í leyfi

Kjarninn greindi frá því í vik­unni að beinn kostn­aður íslenska rík­is­ins vegna skip­unar dóm­ara í Lands­rétt, sem var dæmd ólög­mæt af Hæsta­rétti og Mann­rétt­inda­dóm­stól Evr­ópu, er 140.952.843 krón­ur.Þá er ekki taldar með skaða­bætur sem Eiríkur Jóns­son, einn þeirra fjög­urra sem Sig­ríður Á. And­er­sen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, ákvað að leggja ekki til að yrði skip­aður í rétt­inn þrátt fyrir að dóm­nefnd hafi talið hann á meðal hæf­ustu umsækj­enda. Auk þess vantar kostnað af starfi dóm­nefndar um hæfni umsækj­enda um emb­ætti dóm­ara og starfs­manns henn­ar, kostnað vegna aug­lýs­inga og annar slíkur kostn­aður sem til féll á und­ir­bún­ings­stigi. Þá vantar inn í töl­urnar kostnað vegna vinnu rík­is­lög­manns vegna máls­ins, en sá kostn­aður hefur aldrei feng­ist upp­gef­inn. Því má ætla að end­an­legur kostn­aður vegna máls­ins verði mun hærri.

Hæsti kostn­að­ur­inn vegna máls­ins féll til vegna settra dóm­ara í fjar­veru þeirra fjög­urra dóm­ara sem þurftu að fara í leyfi frá Lands­rétti eftir að skipan þeirra var dæmd ólög­mæt. Þrír þeirra hafa nú verið end­ur­skip­aðir og sá fjórði, Jón Finn­boga­son, sótti um lausa stöðu við rétt­inn í lok síð­asta árs. Fyrr í þess­ari viku komst dóm­nefnd um hæfi umsækj­enda hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að Símon Sig­valda­son væri hæf­asti umsækj­and­inn um það starf og til­laga hefur nú verið gerð um að skipa Símon í emb­ættið.

Þegar upp­haf­lega var skipað í Lands­rétt hafði Jón lent í 30. sæti af 33 umsækj­endum á hæfn­is­lista dóm­nefnd­ar, en Sig­ríður ákvað samt sem áður að skipa hann. Kostn­aður Lands­réttar vegna leyfis dóm­ar­anna var rúm­lega 73 millj­ónir króna í lok síð­asta árs og hann heldur vænt­an­lega áfram að hækka á meðan að Jón er í leyf­i. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár