Þrjú sækja um laust embætti dómara við Landsrétt

Jón Finn­björns­son er einn umsækj­enda en hann var einn af þeim fjórum dóm­urum sem Sigríður Á. Andersen tók fram yfir umsækj­endur um dóm­ara­stöður við Lands­rétt sem mats­nefnd mat hæf­ari þegar nýju dóm­stigi var komið á.

Þrjú hafa sótt um laust emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt en þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn aug­lýsti dóms­mála­ráðu­neytið laust til umsóknar emb­ættið og rann umsókn­ar­frestur út þann 7. des­em­ber.

Frá þessu er greint á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Skipað verður í emb­ættið hið fyrsta eftir að dóm­nefnd um hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti hefur lokið störfum.

[adspot]

[links]Umsækj­endur um emb­ættið eru:

  • Jón Finn­björns­son, dóm­ari við Lands­rétt
  • Ragn­heiður Snorra­dóttir, hér­aðs­dóm­ari
  • Símon Sig­valda­son, hér­aðs­dóm­ari

Jón er eini dóm­ar­inn af þeim fjórum sem dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu sem féll í mars 2019 í lands­rétt­ar­mál­inu tekur til sem ekki hefur fengið nýja skipun við rétt­inn. Ásmundur Helgason var skip­aður að nýju 17. apríl síð­ast­lið­inn, Arn­fríður Ein­ars­dóttir 1. júlí og Ragn­heiður Braga­dóttir þann 15. sept­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár