Íslenska ríkið skaðabótaskylt gagnvart Jóni og Eiríki vegna Landsréttarmálsins

Tveir af þeim fjórum umsækj­endum sem Sigríður Á. Andersen færði af lista yfir þá sem skip­aðir voru dóm­arar við Lands­rétt árið 2017 höfð­uðu mál og fóru fram á bætur. Í dag unnu þeir þau mál fyrir Hæsta­rétti.

Eiríkur Jónsson, annar þeirra sem vann mál sitt fyrir Hæstarétti Íslands í dag, og Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra.
Eiríkur Jónsson, annar þeirra sem vann mál sitt fyrir Hæsta­rétti Íslands í dag, og Sigríður Á. Andersen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Samsett

Hæsti­réttur Íslands komst í dag að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið væri skaða­bóta­skylt gagn­vart Eiríki Jónssyni vegna þess að hann var ekki skip­aður í eitt af 15 emb­ættum dóm­ara við Lands­rétt sem aug­lýst voru laus til umsóknar 10. febr­úar 2017.

Rétt­ur­inn komst einnig að þeirri nið­ur­stöðu að Jón Hösk­ulds­son, sem var heldur ekki skip­aður í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt á sama tíma og Eiríkur, þrátt fyirr að hæf­is­nefnd hafi metið þá á meðal 15 hæf­ustu umsækj­enda, ætti rétt á 8,5 millj­ónum króna í skaða­bætur auk vaxta vegna þessa. Jóni voru auk þess dæmdar ein milljón króna í miska­bætur með drátt­ar­vöxtum.

[adspot]Bæði Eiríkur og Jón voru síðar skip­aðir dóm­arar við Lands­rétt og gegna þeim emb­ættum í dag.

Íslenska rík­inu var auk þess gert að greiða máls­kostnað í báðum mál­unum.

Fjórir færðir af lista

Í aðdrag­anda þess að Lands­réttur var settur á lagg­irnar, en hann hóf störf í byrjun árs 2018, þurfti að skipa 15 dóm­ara við nýja milli­dóms­stigið. Sér­stök hæf­is­­nefnd mat Eirík þá sjö­unda hæf­astan af þeim sem sóttu um og Jón var einnig á meðal 15 hæf­ustu að mati hennar. Sig­ríður Á. And­er­­sen, þáver­andi dóms­­mála­ráð­herra, ákvað hins vegar að taka út fjóra þeirra sem hæf­is­­nefndin hafði metið á meðal 15 hæf­­ustu og setja aðra, sem nefndin hafði metið minna hæfa, inn á lista yfir þá sem hún vildi skipa. Alþingi sam­­þykkti svo lista Sig­ríð­­ar.

[adspot]Ást­ráður Har­alds­­­­son og Jóhannes Rúnar Jóhanns­­­­son, sem urðu báðir af dóm­­­­ara­­­­sæti í Lands­rétti vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­­­ar, stefndu rík­­­­inu vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­­ar. Hæst­i­­­réttur komst að þeirri nið­­­ur­­­stöðu í des­em­ber 2017 að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­­­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­­­nefnd­­­ar­inn­­­ar.

Auk þess komst Mann­rétt­inda­­dóm­­stóll Evr­­ópu að þeirri nið­­ur­­stöðu í mál­inu að dóm­­ar­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­­með­­­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­mála­ráð­herra

Tveir stefndu og vildu bætur

Þeir Eiríkur og Jón höfð­uðu ekki sam­bæri­legt mál og Ástráður og Jóhannes. Jón sendi hins vegar kröfu á íslenska ríkið eftir að dómur Hæsta­réttar lá fyrir þar sem hann krafði það um skaða- og miska­bætur vegna skip­unar í Lands­rétt. Þeirri kröfu var ekki svarað og í kjöl­farið höfð­aði Jón það mál sem dæmt var í í dag.

Jón krafð­ist þess að fá bætt mis­­­­mun launa, líf­eyr­is­rétt­inda og ann­­­­arra launa­tengdra rétt­inda dóm­­­­ara við Lands­rétt ann­­­­ars vegar og hér­­­­aðs­­­­dóm­­­­ara hins veg­­­­ar. Jón krafð­ist þess að fá þennan mun greiddan út starfsævi sína, eða í níu ár.

Eiríkur ákvað að fylgja í fót­­spor Jóns stefndi rík­­inu. Hann er fæddur árið 1977 og átti því um 27 ár eftir á vinn­u­­­­­mark­aði þegar skipað var í Lands­rétt miðað við hefð­bund­inn eft­ir­­­­­launa­ald­­­­­ur.

Eirikur sótti aftur um stöðu dóm­ara við Lands­rétt og var skip­aður í það emb­ætti síð­sum­ars 2019. Jón sótti sömu­leiðis um lausa stöðu við Lands­rétt í fyrra og var skip­aður í sept­em­ber 2020.

Sinnti ekki rannsóknarskyldu

Í dóms­orði Hæsta­réttar í málum Eiríks og Jóns segir meðal ann­ars að Sigríði hafi verið að gera til­lögu til Alþingis um skipun ann­ars eða ann­arra umsækj­enda en þeirra sem dóm­nefnd hafði metið hæf­asta, að því til­skildu að þeir full­nægðu almennum hæf­is­skil­yrðum lag­anna. „Tillaga ráð­herra um að víkja frá áliti dóm­nefndar og leggja til aðra umsækj­endur en þá sem dóm­nefnd hafði metið hæf­asta varð hins vegar að byggja á mál­efna­legum sjón­ar­miðum og vera reist á full­nægj­andi rann­sókn, sam­an­burði og rök­stuðn­ingi fyrir breyttri til­lögu um það hver eða hverjir umsækj­enda væru að mati ráð­herra hæf­astir til að gegna dóm­ara­emb­ætti önd­vert áliti dóm­nefndar. Að feng­inni slíkri til­lögu frá ráð­herra væri það síðan hlut­verk Alþingis að hafa eft­ir­lit með því að til­laga ráð­herra full­nægði þessum kröfum[...]Af hálfu gagn­á­frýj­anda hefur ekki verið gerð við­un­andi grein fyrir því hvaða sam­an­burður fór fram af hálfu ráð­herra á aðal­á­frýj­anda og öðrum umsækj­endum og hvernig inn­byrðis mati á þeim var háttað, en dóm­nefnd hafði sam­kvæmt stiga­töflu raðað aðal­á­frýj­anda í ell­efta sæti yfir 15 hæf­ustu umsækj­end­urna. Þá hefur Hæsti­réttur eins og í hér­aðs­dómi greinir þegar hafnað sjón­ar­miðum um að þeir ann­markar hafi verið á dóm­nefnd­ar­á­lit­inu að til­efni hafi verið fyrir ráð­herra að víkja frá því.“

Af þessu leiði að vafi sé um það hvort full­nægj­andi rann­sókn máls­ins, og að öðru leyti lög­mæt með­ferð þess af hálfu ráð­herra, hefði leitt til ann­arrar nið­ur­stöðu um hæfni Eiríks og Jóns en dóm­nefnd hafði kom­ist að. Það verði að túlka þeim í hag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár