Íslenska ríkið tapaði málinu fyrir yfirdeildinni

Yfir­deild Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu stað­festi í dag fyrri dóm rétt­ar­ins í Lands­rétt­ar­mál­inu.

Yfirdeild MDE kvað upp niðurstöðu í málinu í morgun.
Yfir­deild MDE kvað upp nið­ur­stöðu í mál­inu í morgun. Mynd: EPA

Yfir­deild Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu stað­festi í dag dóm rétt­ar­ins í Lands­rétt­ar­mál­inu, en dómur var kveð­inn upp kl. 10 í gegnum fjar­fund­ar­búnað með aðilum máls­ins. Nið­ur­stöð­una má nálg­ast hér og frétta­til­kynn­ingu frá MDE hér.

Nið­ur­staðan er sú að Guð­mundur Andri Ást­ráðs­son, maður sem dæmdur var fyrir umferð­ar­laga­brot í Lands­rétti skömmu eftir að milli­dóms­stigið tók til starfa, hefði ekki notið þess að fá úrlausn máls síns fyrir sjálf­stæðum og óvil­höllum dóm­stól.

Yfir­deild dóm­stóls­ins, sem skipuð var 17 dóm­urum, var ein­róma um að brotið hefði verið gegn rétti hans til rétt­látrar máls­með­ferðar, þar sem að einn Lands­rétt­ar­dóm­ar­anna sem að mál­inu kom, Arn­fríður Ein­ars­dóttir, hefði ekki verið skipuð með lög­mætum hætti. Íslenska rík­inu er gert að greiða Guðmundi Andra 20 þús­und evrur í máls­kostnað.

Áfellisdómur yfir Sigríði Á. Andersen og Alþingi

Dóm­­stóll­inn felldi fyrri dóm sinn í mál­inu 12. mars 2019. Í honum fengu bæði Sig­ríður Á. And­er­­sen fyrr­ver­andi dóms­­­­mála­ráð­herra og Alþingi á sig áfell­is­­­­dóm fyrir það hvernig haldið var á skipan fimmtán dóm­­­­ara við Lands­rétt í byrjun júní 2017.

[adspot]

Sig­ríður fyrir að hafa brotið stjórn­­­sýslu­lög með því að breyta list­­­­anum um til­­­­­­­nefnda dóm­­­­ara frá þeim lista sem hæf­is­­­­nefnd hafði skilað af sér, og fært fjóra dóm­­­­ara af þeim lista en sett aðra fjóra inn á hann án þess að rann­saka og rök­­­­styðja þá ákvörðun með nægj­an­­­­legum hætti. Alþingi fyrir að hafa kosið um skipan dóm­­­­ar­anna allra í einu, í stað þess að kjósa um hvern fyrir sig. Sig­ríður sagði af sér emb­ætti dag­inn eftir dóm­inn og óvissa ríkti um starf­­­­semi milli­­­­­­­dóm­­­­stigs­ins í kjöl­farið.

Í reynd hafði nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í för með sér að dóm­ar­arnir fjórir sem ekki voru á lista hæf­is­nefndar hafa verið álitnir ófærir um að dæma í rétt­inum á grund­velli upp­haf­legar skip­unar sinnar, þar sem hún hefði verið ólög­leg.

Sú nið­ur­staða er á skjón við nið­ur­stöðu Hæsta­réttar Íslands, sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að þrátt fyrir að fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra hefði ekki farið að lögum við skipan í dóm­stól­inn, hefði það engin áhrif á stöðu Arn­fríðar sem dóm­ara við rétt­inn.

Íslenska ríkið ákvað í apríl í fyrra að áfrýja nið­­ur­­stöð­unni og beina því til efri deildar dóms­ins að taka málið aftur fyr­­ir. Á það var fall­ist og fór mál­flutn­ingur fyrir yfir­deild­inni fram 5. febr­úar á þessu ári.

Þrír þeirra fjög­urra dóm­ara sem skip­aðir voru þrátt fyrir að hafa ekki verið á upp­haf­legum lista hæf­is­nefndar hafa hlotið nýja skipan í Lands­rétt. Arn­fríður Ein­ars­dóttir er þeirra á meðal.

Alvarlegt brot

Í frétta­til­kynn­ingu um nið­ur­stöðu yfir­deild­ar­innar í dag segir að þrátt fyrir Sigríður Á. Andersen hafi sem dóms­mála­ráð­herra verið ósam­mála mati hæf­is­nefnd­ar­innar og ákveðið að víkja frá því í til­felli fjög­urra dóm­ara, hefði henni alveg láðst að útskýra af hverju hún gerði það.

Óvissan um ástæð­urnar sem lágu að baki hafi vakið upp alvar­legan ótta um óvið­eig­andi afskipti af dóms­vald­inu og valdið vafa um lög­mæti ferl­is­ins við skipun dóm­ar­anna í Lands­rétt.

Það að fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra hafi ekki farið eftir regl­unum sem voru í gildi er sér­stak­lega alvar­legt, að mati yfir­deild­ar­innar, þar sem hún hafði ítrekað verið minnt á laga­legar skyldur sínar, af laga­legum ráð­gjöfum í dóms­mála­ráðu­neyt­inu, for­manni hæf­is­nefnd­ar­innar og settum ráðu­neyt­is­stjóra sínum í ráðu­neyt­inu.

Sigríður sagð­ist ein bera ábyrgð á því að hafa hagað málum með þeim hætti sem hún gerði í við­tali við Kveik á RÚV í lok jan­úar árið 2018.

„Ég ætla ekki að draga ein­hvern hérna sem að þú ætlar síðan að reyna að færa ábyrgð­ina yfir. Þetta er mitt mat líka. Ég er líka sér­fræð­ingur á þessu sviði. Ég ætla að leyfa mér það og ég tek mínar ákvarð­anir byggðar á mínu hyggju­viti. Ég er lög­fræð­ingur eins og ég nefni. Og ég stend fylli­lega við þessar ákvarð­anir mínar og ég geri það enn þá,“ sagði Sigríður þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár