„Misnotkun á valdi og bolabrögð hafa verið einkenni Sjálfstæðisflokksins í langan tíma“

Þing­maður Pírata segir að koma þurfi í veg fyrir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fái að koma nálægt völdum en hann fjall­aði um lands­rétt­ar­málið á þingi í morgun. Þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að horfa verði á málið í ákveðnu sam­hengi.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, sagði á Alþingi í morgun undir liðnum störf þings­ins að koma þyrfti í veg fyrir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fengi að koma nálægt völdum og að flokk­ur­inn hefði alltaf „beitt bola­brögðum“ þegar þess þyrfti til að koma sínu fólki að. Mis­notkun á valdi og bola­brögð hefðu verið ein­kenni flokks­ins í langan tíma. Hann hvatti fólk til að hætta með­virkni með mis­notkun á valdi.

„Formaður Dóm­ara­fé­lags Íslands fjall­aði í fjöl­miðlum í gær um nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Þar sagði hann vand­ann vera þann þegar stjórn­völd beita ein­hverjum bola­brögðum til að koma sínu fólki að. Þrír af þeim dóm­urum sem Lands­rétt­ar­málið snýst um hafa verið end­ur­skip­aðir. Þeir stóðu upp úr dóm­ara­sæti sínu og sett­ust í næsta sæti.

Ímyndið ykkur hvernig það myndi líta út í dóm­sal. Sá sem kemur fyrir dóm­ara í leit að rétt­læti og sann­girni klórar sér aðeins í hausnum og spyr: Afsakið, er nokkur hætta á því að dóm­ar­inn sé mér óvil­hallur? Dómarinn svarar: Já, afsakið. Og hann stendur upp og sest í stól­inn hlið­ina: Núna er þetta allt í lagi, það var bara vanda­mál þegar ég sat í hinum stólnum,“ sagði Björn Leví.

„Blái gljáinn mun alltaf skína í gegn“

Spurði hann hvort Íslend­ingar ættu ekki rétt á dóm­urum og dóm­stólum sem hægt væri að treysta að kæmu vel fram við borg­ara lands­ins og á rétt­látan og sann­gjarnan hátt.

„Hversu vel treystir þú dóm­urum sem þú veist að komust í dóm­ara­sæti með póli­tískum bola­brögðum? Hversu vel treystir þú dóm­urum sem sitja í bláum sætum? Hvernig er dóm­greind þeirra dóm­ara sem sitja í þessum blá­mál­uðu sætum og vita að allt sem þau gera lit­ast af máln­ing­unni á stólnum þeirra, sama hversu heið­ar­lega þau rækja störf sín. Hvít­þvottur eins og stóla­skipti gengur ekki upp.

Blái gljá­inn mun alltaf skína í gegn því að blám­inn fylgir dóm­urum og skip­unum þeirra en ekki sæt­unum. Það sér hver sem vill sjá það. Það er því ekki nema eitt hægt að gera og það er aug­ljóst, það hefur verið aug­ljóst frá upp­hafi. Það sem þarf að ger­ast er að dóm­ar­arnir þurfa að víkja. Það er ekki flókn­ara en það,“ sagði hann.

Vill að hlutirnir séu settir í samhengi

Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, flutti ræðu undir sama lið í morgun og fjall­aði hann einnig um lands­rétt­ar­málið. „Þegar rætt um dóms­nið­ur­stöður sem varða dóm­ara­val árið 2017 þegar Lands­réttur var skip­aður í fyrsta sinn er mik­il­vægt að hafa í huga hver hinn raun­veru­legi lög­fræði­legi ágrein­ingur er í mál­inu. Hann snýst um atriði sem varðar það hvort þáver­andi dóms­mála­ráð­herra hafi full­nægt rann­sókn­ar­skyldu með nægi­lega skýrum hætti þegar hún ákvað að gera til­ögu um dóm­ara sem byggði á því að dóm­ara­reynslu var gefið meira vægi en öðrum þáttum sem hæfn­is­nefnd hafði byggt á.“

Hann sagði að það yrði að hafa þetta í huga þegar „við hlustum á stór­yrði ein­stakra þing­manna“ og vís­aði þar til orða Björns Levís. „Þetta skulum við hafa í huga þegar menn blása þetta út eins og hér á Íslandi hafi verið framin stór­kost­leg mann­rétt­inda­brot af því að maður sem hafði játað á sig til­tekið brot var dæmdur af dóm­ara sem hafði verið met­inn hæfur af mats­nefnd og met­inn hæf­ari af hálfu dóms­mála­ráð­herra en ein­hverjir aðrir. Við skulum setja hlut­ina aðeins í sam­hengi hvað þetta varðar.

Hitt er svo annað mál að auð­vitað verður íslenska ríkið að efna samn­ings­skuld­bind­ingar sínar gagn­vart mann­rétt­inda­sátt­mál­anum og greiða við­kom­andi manni þann kostnað sem kveðið er á um í dóms­orði í nið­ur­stöðu yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins en auð­vitað verðum við síðan í fram­hald­inu að velta fyrir okkur og ræða hvernig við viljum haga dóm­ara­skipan til fram­tíðar. Ég er ekki viss um að við séum komin til botns í þeirri umræðu,“ sagði þing­mað­ur­inn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár