Telur enga ástæðu til að hafa uppi stór orð um „svartan dag í réttarsögunni“

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir að ekki þurfi að hafa áhyggjur af orð­spori Íslands vegna nið­ur­stöðu yfir­­­­­deildar Mann­rétt­inda­­­dóm­stóls Evr­­­ópu.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að það sé engin ástæða til að hafa uppi stór orð um „svartan dag í rétt­ar­sög­unni“ eða hafa áhyggjur af orð­spori Íslands vegna nið­ur­stöðu yfir­­­­­deildar Mann­rétt­inda­­­dóm­stóls Evr­­­ópu (MDE) – líkt og stjórn­ar­and­stæð­ingar hafi sagt.

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Bjarna á Facebook í kvöld.

Hann segir að helstu laga­legu álita­málum að íslenskum rétti hafi þegar verið svarað af Hæsta­rétti Íslands. Annars vegar í málum sem vörð­uðu skaða­bóta­skyldu rík­is­ins gagn­vart umsækj­endum um stöðu dóm­ara við Lands­rétt. Hins vegar hefði verið dæmt um það, hvort skipan til­tek­inna dóm­ara sem ekki voru á lista hæfn­is­nefndar um 15 hæf­ustu, hefði áhrif á nið­ur­stöður þeirra mála sem þeir höfðu dæmt.

Sýnist ekki þurfa að gera sérstakar ráðstafanir

„Hæsti­réttur Íslands, æðsti dóm­stóll lands­ins, hefur þannig kom­ist að skýrri nið­ur­stöðu um þetta mik­il­væga álita­mál. Fyr­ir­fram var ljóst að þetta gat ekki breyst með dómi MDE því dóm­endur á Íslandi skulu í emb­ætt­is­verkum sínum fara ein­ungis eftir lög­unum, líkt og segir í stjórn­ar­skránni. Nið­ur­stöður MDE eru ekki bind­andi, ganga ekki framar íslenskum lögum. Reyndar hefur fyrir minn smekk of lítið verið fjallað um inn­tak þeirrar þjóð­rétt­ar­legu skuld­bind­ingar sem felst í aðild Íslands að MSE. Í dóm­inum er komið aðeins inn á þetta atriði og bent á að ríki skuli, eftir atvikum, gera ráð­staf­anir til að bæta úr ágöllum í sam­ræmi við nið­ur­stöður dóms­ins.

[links]Í þessu til­viki sýn­ist mér, í þessu sam­hengi, ekki þurfa að gera neinar sér­stakar ráð­staf­anir, m.a. vegna þess að þessi lög, þetta fyr­ir­komu­lag við skipan Lands­réttar, var ein­skiptis atburður. Þó er sjálf­sagt að dóms­mála­ráðu­neytið leggi á þetta mat og bregð­ist við ef ástæða þykir til. Það breytir ekki hinu að ekk­ert fær haggað nið­ur­stöðu Hæsta­réttar sem rakin er að framan,“ skrifar Bjarni.

Hann telur jafn­framt að í póli­tískum átökum um skipan Lands­réttar gleym­ist oft að ræða málið sjálft. „Kannski gleym­ist það ekki. Það hrein­lega hentar ekki mál­stað sumra að ræða mál­efna­lega um nið­ur­stöð­una. Þetta er aug­ljóst af upp­hróp­unum nokk­urra úr stjórn­ar­and­stöð­unni í dag.

Það eru óum­deild grund­vall­ar­rétt­indi í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi að geta látið reyna á laga­lega stöðu sína fyrir hlut­lausum dóm­stólum. Í þessu til­tekna máli vildi ein­stak­lingur, sem dæmdur hafði verið fyrir ölv­un­arakstur, og reyndar játað brot sitt, spyrja dóm­stól­ana hvort hann hefði fengið að njóta þeirra grund­vall­ar­rétt­inda sem honum erum tryggð í stjórn­ar­skrá og við Íslend­ingar höfum skuld­bundið okkur til að fylgja að þjóð­ar­rétti.“

Engar bætur greiddar

Þá segir Bjarni að í mál­inu hafi verið látið reyna á það hvort ann­markar við skipan Lands­dóms hefðu mögu­lega áhrif á rétt­ar­stöðu hins dæmda. Hvort hann ætti rétt á ómerk­ingu dóms­ins. Til vara krafð­ist hann sýknu, þótt hann hefði játað brot sitt.

„Málið tap­að­ist í Hæsta­rétti. Og í dag var bóta­kröfu hans hafnað af MDE. Ekki verður því annað séð en að staða hans sé, eftir alla þessa máls­með­ferð, hin sama og eftir dóm Lands­réttar. Dómur Lands­réttar stendur órask­aður. Í því er ekk­ert óvænt. Það lá fyrir strax í maí 2018. Og í dag varð ljóst að engar bætur verða greiddar.

Þessi nið­ur­staða máls­ins virð­ist ekki skipta suma neinu máli. En þetta mál sner­ist nú samt fyrst og fremst um þetta allan tím­ann,“ skrifar hann að lokum.

MDE ekki æðsti dómstóll Íslands

Bjarni sagði í sam­tali við RÚV þegar mál­flutn­ingur fór fram fyrir yfir­deild Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu febr­úar fyrr á árinu að Hæsti­réttur Íslands yrði áfram æðsti dóm­stóll lands­ins burt séð frá nið­ur­stöðu yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Hann full­yrti að nið­ur­staðan í mál­inu hefði ekki bein rétt­ar­á­hrif á Íslandi.

„En það sem mér finnst skorta á í umræð­unni á Íslandi er að menn geri sér grein fyrir því að þetta er ekki æðsti dóm­stóll Íslands. Það er Hæsti­réttur á Íslandi, hann er bund­inn að íslenskum lögum og hann hefur dæmt um þetta mál eftir íslenskum lögum þannig að það mun ekki breyt­ast eftir því hvernig nið­ur­staðan fer út í Strass­borg,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár