Þeir sem brjóta niður traust á dómstólum ættu ekki að gegna trúnaðarstörfum fyrir hönd almennings

Gagnsæi, sam­tök gegn spill­ingu, telja að þeir sem bera ábyrgð á því að brjóta niður traust á dóm­stólum ættu ekki að koma að frek­ari trún­að­ar­störfum fyrir hönd almenn­ings.

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra.
Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Dóms­kerfið er einn af horn­steinum lýð­ræð­is­legs sam­fé­lags og mik­il­vægi aðgrein­ingar þess frá öðru valdi verður seint ofmetið. Án sjálf­stæðra dóm­stóla, sem þjóð­fé­lags­þegnar geta treyst til þess að kom­ast að óvil­hallri nið­ur­stöðu í laga­legum deilum þeirra á milli, er lýð­ræð­inu sjálfu ógnað.“

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Gagnsæis, sam­taka gegn spill­ingu, á Facebook í dag. Tilefnið er nið­ur­staða yfir­­­deildar Mann­rétt­inda­­dóm­stóls Evr­­ópu í morgun en hann stað­­festi dóm rétt­­ar­ins í Lands­rétt­­ar­­mál­inu svo­kall­aða. Í honum fengu bæði Sig­ríður Á. And­er­­­­sen fyrr­ver­andi dóms­­­­­­mála­ráð­herra og Alþingi á sig áfell­is­­­­­­dóm fyrir það hvernig haldið var á skipan fimmtán dóm­­­­­­ara við Lands­rétt í byrjun júní 2017.

Í færslu Gagnsæis kemur fram að ein­róma nið­ur­staða yfir­deildar MDE sé skýr varð­andi það að ferlið við skipun í Lands­rétt hafi ekki byggt á lögum og verið til þess fallið að vekja upp alvar­legan ótta um óeðli­leg afskipti af dóms­vald­inu.

„Þeir sem bera ábyrgð á því að brjóta niður traust á dóm­stólum ættu ekki að koma að frek­ari trún­að­ar­störfum fyrir hönd almenn­ings. Skipan hinna ólög­lega skip­uðu dóm­ara hlýtur að verða tekin til end­ur­skoðuðnar,“ segir í færsl­unni.

Niðurstaðan vonbrigði

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra brást við dómnum í dag og sagði nið­ur­stöð­una vissu­lega von­brigði. Hún sagði í sam­tali við Vísi að von­ast hefði verið eftir því að yfir­deildin myndi taka meira mið af mál­flutn­ingi lög­manna íslenska rík­is­ins í mál­inu og að það virt­ist vera margt athygl­is­vert í dómn­um, sem hún ætti þó eftir að lesa og rýna betur í. Hann yrði tek­inn til ítar­legrar skoð­unar af hálfu stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár