„Í þrjú ár hafa þau þrjóskast við og tekið flokkshollustu og valdastóla fram yfir hagsmuni þjóðarinnar“

Píratar hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna nið­ur­stöðu yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

„Nið­ur­staða yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu er enn ein stað­fest­ingin á þriggja ára kostn­að­ar­samri nið­ur­læg­ingu stjórn­valda.“ Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu Pírata vegna nið­ur­stöðu MDE.

Kjarninn greindi frá því í morgun að yfir­deild Mann­rétt­inda­dóm­stól Evr­ópu hefði stað­fest dóm rétt­ar­ins í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða. Dóm­­­stóll­inn felldi fyrri dóm sinn í mál­inu þann 12. mars 2019 en í honum fengu bæði Sig­ríður Á. And­er­­­sen fyrr­ver­andi dóms­­­­­mála­ráð­herra og Alþingi á sig áfell­is­­­­­dóm fyrir það hvernig haldið var á skipan fimmtán dóm­­­­­ara við Lands­rétt í byrjun júní 2017.

Í til­kynn­ingu Pírata segir að í stað þess að hlusta á ítrek­aðar við­var­anir þeirra og áköll um að standa fag­lega að skipan dóm­ara hafi rík­is­stjórnir Bjarna Bene­dikts­sonar og Katrínar Jak­obs­dóttur ákveðið að við­halda réttaró­vissu og grafa undan trú­verð­ug­leika Lands­réttar.

Síðasta tækifærið til að bæta ráð sitt

„Þessu hefði mátt afstýra. Þau ákváðu að gera það ekki. Í stað iðr­unar og umbóta­vilja hafa íslensk stjórn­völd staðið vörð um ólög­mætar og ófor­svar­an­legar athafnir fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra. Í þrjú ár hafa þau þrjóskast við og tekið flokks­holl­ustu og valda­stóla fram yfir hags­muni þjóð­ar­innar og rétt­ar­rík­is­ins, með til­heyr­andi kostn­aði, réttaró­vissu og orð­spors­hnekki fyrir Ísland.

[links]Nú gefst rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur síð­asta tæki­færið til að bæta ráð sitt. Píratar krefj­ast þess að stjórn­völd við­ur­kenni og vindi ofan af brotum sínum rétt eins og yfir­deildin gerir kröfu um. Stjórn­völd þurfa taf­ar­laust að kynna trú­verð­ugar áætl­anir um hvernig þau hyggj­ast upp­ræta réttaró­viss­una sem þau sköp­uðu sjálf og hvernig þau hyggj­ast koma í veg fyrir að sagan end­ur­taki sig. Þar þarf þingið að taka fullan þátt, enda ber­sýni­legt af dóms­orð­inu að þingið brást í eft­ir­lits­hlut­verki sínu með fram­kvæmd­ar­vald­inu,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Samkvæmt Pírötum þarf rík­is­stjórnin jafn­framt að bregð­ast við nið­ur­stöð­unni „án þess að grípa til sömu flótta­við­bragða og hún gerði eftir síð­asta áfell­is­dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins: Rétt eins og þá er ekki í boði nú að neita að horfast í augu við eigin mis­gjörðir og reyna þess í stað að grafa undan trú­verð­ug­leika dóm­stóls­ins með dylgjum og rang­færslum. Og rétt eins og þá verða Píratar til­búnir til þess að bregð­ast við öllum slíkum und­an­brögðum vald­hafa.

Þriggja ára réttaró­vissu í íslensku rétt­ar­kerfi er ekki lokið. Nú þarf að taka á rót vand­ans, bregð­ast við af heið­ar­leika og ábyrgð og ganga í það verk að end­ur­byggja traust á rétt­ar­vörslu­kerf­inu. Píratar munu ekki láta sitt eftir liggja og veita vald­höfum virkt aðhald nú sem aldrei fyrr,“ segir að lokum í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár