Segir Mannréttindadómstólinn vera að fjalla um „rammpólitíska“ hluti í Landsréttarmálinu

Fyrr­ver­andi for­seti Hæsta­réttar segir að það sé búið að grafa illa undan almenn­ings­á­liti og að dóm­stólar séu „alltaf við­kvæmir fyrir því að verða fyrir ein­hvers konar skeinum og sárum sem geta breyst í ígerð út frá almennri umfjöllun.“

Markús Sigurbjörnsson var dómari við Hæstarétt Íslands í aldarfjórðung og lengi forseti réttarins.
Markús Sig­ur­björns­son var dóm­ari við Hæsta­rétt Íslands í ald­ar­fjórð­ung og lengi for­seti rétt­ar­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Markús Sig­ur­björns­son, fyrr­ver­andi for­seti Hæsta­réttar, segir í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða, sem nú er til með­ferðar hjá yfir­deild Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu, sé dóm­stóll­inn far­inn að fjalla um hluti sem séu rammpóli­tískir. Þetta kemur fram í við­tali við hann í nýjasta tölu­blaði Lög­manna­blaðs­ins.

Þar segir Markús, sem hætti störfum við Hæsta­rétt í fyrra­haust eftir að hafa dæmt við hann í ald­ar­fjórð­ung, að Lands­rétt­ar­málið sé afskap­lega erfitt og mikil raun fyrir íslenskt rétt­ar­kerfi. „Það er búið að grafa illa undan almenn­ings­á­liti og dóm­stólar eru alltaf við­kvæmir fyrir því að verða fyrir ein­hvers konar skeinum og sárum sem geta breyst í ígerð út frá almennri umfjöllun. Vandinn er ekki síst hvernig eigi að leysa þetta ef upp­haf­legi dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins stendur óbreyttur hjá Yfir­deild­inni, eða þess vegna ef Yfir­deildin gengur lengra og telur alla fimmtán dóm­ar­ana rang­lega skip­aða. Hvernig á að vera hægt að leysa úr þessu í kjöl­farið gagn­vart íslenskum rétt­ar­reglum? Það er ekki hægt að víkja þessum dóm­urum frá, það eru engar sakir þarna til að reka þá, þeir eru komnir undir stjórn­ar­skrár­vernd.“

Ólögmæt skipun dómara í Landsrétt

Í Lands­rétt­ar­mál­inu felst að Sig­ríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­­mála­ráð­herra, ákvað að víkja frá hæfn­is­mati dóm­­­­­­­nefndar um skipun fimmtán dóm­­­­­­­ara í Lands­rétt í lok maí 2017. Hún ákvað þess í stað að til­­­­­­­­­nefna fjóra ein­stak­l­inga dóm­­­­­ara sem nefndin hafði ekki metið á meðal 15 hæf­­­­­ustu og þar af leið­andi að skipa ekki fjóra aðra sem nefndin hafði talið á meðal þeirra hæf­­­­­ustu. Alþingi sam­­­­­þykkti þetta í byrjun júní 2017.

[adspot]Tveir umsækj­end­anna sem metnir höfðu verið á meðal fimmtán hæf­­ustu af hæfn­is­­nefnd­inni, Ást­ráður Har­alds­son og Jóhannes Rúnar Jóhanns­­son, stefndu rík­­­­­­inu vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­­­­ar. Hæst­i­­­­­réttur komst að þeirri nið­­­­­ur­­­­­stöðu í des­em­ber 2018 að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­­­­­nefnd­­­­­ar­inn­­­­­ar.

Auk þess kom­st Mann­rétt­inda­­­dóm­­­stóll Evr­­­ópu að þeirri nið­­­ur­­­stöðu í mál­inu í mars í fyrra að dóm­­­ar­­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­­­með­­­­­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­­mála­ráð­herra. Íslenska ríkið ákvað að vísa mál­inu til yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins og mál­flutn­ingur þar fór fram fyrr á þessu ári. Nið­ur­stöðu er að vænta á þessu ári. 

Segir skipun dómara vera í gildi

Markús segir að í dómi Hæsta­réttar í þessu máli hafi nálg­unin veru sú að fyrsti punkt­ur­inn var að eng­inn hefði leitað ógild­ingar á skip­un­unum og fyrir vikið stóðu þær óhagg­aðar. „Næsta skref var þá að líta svo á að þetta fólk væri komið í stöðu dóm­ara í skiln­ingi stjórn­ar­skrár­innar og laga.

Skipun þeirra er í gildi og hafi ein­hver ann­marki verið á skip­un­ar­ferl­inu þá getur sá ann­marki ekki leitt til þess að þetta sé allt bara mark­leysa. Það hlýtur að þurfa að horfa á málið þannig að skip­unin þurfi að vera ógilt ef þetta á að úti­loka við­kom­andi frá dóm­störfum. Þetta er allt önnur nálgun en Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn beitti. Hann segir bara ein­fald­lega að út af því að rang­lega var staðið að þess­ari skipun þá er þetta fólk ekki dóm­arar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár