Spurði forsætisráðherra hvort það hefðu verið mistök að verja dómsmálaráðherra vantrausti

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar spurði for­sæt­is­ráð­herra út í nið­ur­stöðu yfir­deildar MDE á þingi í dag. Hún sagð­ist m.a. ekki hafa áhyggjur af orð­spori Íslands og að rétt hefði verið að skjóta mál­inu til yfir­deild­ar­innar.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Kannski var gær­dag­ur­inn bara býsna góður dagur fyrir íslenska þjóð því að hann markar von­andi enda­lok póli­tískra ráðn­inga dóm­ara á Íslandi. Nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins stað­festir að brot dóms­mála­ráð­herra var alvar­legt og gróf undan grund­vall­ar­rétt­indum um rétt­láta máls­með­ferð. Nú dugar póli­tískum öflum ekki lengur að borga bara umsækj­endum sem gengið er fram hjá bætur úr sam­neysl­unni á meðan hinir sitja þókn­an­legir áfram.“

Þetta sagði Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma en hann spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra út í nið­ur­stöðu yfir­­­­­deildar Mann­rétt­inda­­­dóm­stóls Evr­­­ópu sem birt­ist í gær.

Hann sagð­ist vera sam­mála for­sæt­is­ráð­herra um að nú þyrfti að „horfa fram á veg­inn“ en Katrín við­hafði þau orð í sam­tali við Vísi í gær þegar hún var spurð út í nið­ur­stöð­una.

Logi telur aftur á móti að „við lærum ekk­ert nema við horfum líka til baka“. Hann benti á að þegar for­sæt­is­ráð­herra var í stjórn­ar­and­stöðu hefði hún lýst yfir miklum áhyggjum af trausti til dóm­stóla og talið ábyrgð dóms­mála­ráð­herra mikla.

[links]„Þá studdum við bæði grein­ar­gott nefnd­ar­á­lit þar sem áformum dóms­mála­ráð­herra var mót­mælt og taldir upp miklir ágallar. Þeir ágallar voru meira og minna stað­festir og nefndir í yfir­rétti Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í gær. Jafn­framt var rík­is­stjórn­inni boð­inn frestur til að vinna málið betur og rök­styðja frá­vik frá lista hæf­is­nefndar. Því var hafnað.

Það dylst engum hvað hæst­virtum for­sæt­is­ráð­herra fannst um fram­gang máls­ins vorið 2017. Engu að síður mynd­aði hún rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum hálfu ári síðar með sama dóms­mála­ráð­herra og árið þar á eftir, eftir að Hæsti­réttur hafði dæmt ráð­herra brot­legan, varði for­sæt­is­ráð­herra og meiri hluti stjórn­ar­þing­manna dóms­mála­ráð­herra van­trausti,“ sagði Logi.

Hann spurði hvort Katrín teldi að það hefðu verið mis­tök að verja ráð­herra van­trausti á þeim tíma og jafn­vel líka að mynda rík­is­stjórn með flokki sem ætti mjög langa sögu um að seil­ast langt út fyrir eðli­leg vald­mörk.

Ísland ávallt staðið við allar skuldbindingar sínar gagnvart mannréttindasáttmála Evrópu

Katrín svar­aði og sagði að henni fynd­ist mik­il­vægt að taka af allan vafa um það að Ísland hefði ávallt staðið við allar skuld­bind­ingar sínar gagn­vart mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu.

„Við erum aðilar að mann­rétt­inda­sátt­mál­anum og hluti af þeirri skuld­bind­ingu sem við höfum tekið á okkur með því að vera þar er að fara vand­lega yfir nið­ur­stöður þessa dóm­stóls og tryggja að fram­kvæmd þess­ara mála verði þannig að hún verði hafin yfir allan vafa til fram­tíðar. Þannig höfum við með­höndlað dóma Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins hingað til.

Hér er í dag til að mynda á dag­skrá mál um rann­sókn skatta­laga­brota sem bein­línis á rætur að rekja til nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. Mér finnst mik­il­vægt að segja það algjör­lega skýrt hér í sal Alþingis að við þurfum að taka þennan dóm alvar­lega,“ sagði hún.

Telur þáverandi meirihluta hafa gert mistök

Katrín sagð­ist ekki hafa skipt um skoðun frá því að hún mælti fyrir nefnd­ar­á­liti minni­hluta stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í júní 2017 þar sem hún hefði bent á nákvæm­lega þau efn­is­at­riði sem þarna voru tekin til skoð­unar, það er að ráð­herra hefði vissu­lega haft heim­ild til að víkja frá áliti hæf­is­nefndar, en til þess að upp­fylla þá heim­ild með full­nægj­andi hætti hefði hún þurft að sinna rann­sókn­ar­skyldu sinni sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum, sömu­leiðis að virða and­mæla­rétt sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum.

„Ég tel að það hafi verið mis­tök hjá þáver­andi meiri­hluta að taka ekki í þá útréttu sátt­ar­hönd sem minni­hlut­inn rétti þá fram um að fresta mál­inu. En það var ekki gert. Og þannig fór um sjó­ferð þá.

En ég ætla líka að segja að þegar dómur und­ir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu féll á vor­mán­uðum 2019 þá axl­aði þáver­andi dóms­mála­ráð­herra ábyrgð á þessu máli, póli­tíska ábyrgð, og sagði af sér. Þannig er það nú bara. Við hins vegar þurfum nú öll, Alþingi, Hæsti­réttur, fram­kvæmd­ar­valdið, að fara vel yfir dóm­inn og tryggja að slíkt end­ur­taki sig ekki,“ sagði hún.

Ráðherrar og þingmenn Sjálfstæðisflokksins „leyft sér að tala niður“ MDE

Logi kom aftur í pontu og spurði af hverju ekki hefði verið axlað ábyrgð eftir að dómur Hæsta­réttar féll á sínum tíma.

„Það er vissu­lega gott að heyra í hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra hérna og heyra tón­inn. Hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra lýsti því nefni­lega yfir í gær að það væri óþarfi að hafa áhyggjur af orð­spori Íslands vegna þessa máls. En hann hafði svo sem heldur ekki áhyggjur af orð­spori okkar þegar Panama­skjölin voru birt, þegar Ísland lenti á gráum lista eða þegar vís­bend­ingar voru um gróft mis­ferli stór­fyr­ir­tækis í Namibíu,“ sagði hann og spurði Katrínu hvort hún hefði áhyggjur af þessu.

„Ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks og ein­stakir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa í gegnum þetta ferli gert lítið úr þessu máli og jafn­vel leyft sér að tala niður Mann­rétt­inda­dóm­stól­inn. Fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra hefur jafn­vel gengið svo langt að velta því upp hvort Ísland eigi að segja sig frá honum,“ sagði hann enn fremur.

Þá spurði hann hvort for­sæt­is­ráð­herra hefði áhyggjur af orð­spori Íslands vegna þessa máls og fynd­ist henni til­efni til þess að rík­is­stjórn Íslands lýsti því yfir að Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn skipti Íslend­inga máli og að þeir myndu í öllu virða nið­ur­stöðu hans.

Hefur ekki áhyggjur af orðspori Íslands

Katrín sagði í kjöl­farið að Logi þyrfti ekk­ert að efast um það, ekki frekar en nokkur annar ef því væri að skipta, að Ísland tæki skuld­bind­ingar sínar gagn­vart mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu alvar­lega.

„Ég fór yfir mál sem eru á dag­skrá þings­ins í dag sem snú­ast um nákvæm­lega það að mæta gagn­rýni sem komið hefur fram hjá Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu varð­andi tvö­falda refs­ingu í skatta­laga­brotum og skatt­rann­sóknum. Sýnir það ekki ein­dreg­inn vilja til þess að bregð­ast við? Ég tel að það sé eng­inn vafi á því, herra for­seti. Og af því að hátt­virtur þing­maður spyr þá hef ég heldur ekki áhyggjur af orð­spori Íslands. Ég hef engar áhyggjur vegna þess að það sem skiptir máli er hvernig við bregð­umst við slíkum dómi, hvaða lær­dóma við drögum af honum. Og ég tel að það geti verið ýmsir lær­dómar.

Ég get líka sagt: Það er mín ein­dregna skoðun að það hafi verið rétt að skjóta mál­inu til yfir­deildar af því að ég tel að sá dómur sem féll í gær hafi dregið úr réttaró­vissu og skýrt þessi mál miklum mun betur en sá dómur sem féll í und­ir­deild­inni á sínum tíma,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár