Píratar væru stærsti flokkur landsins ef ungt og tekjulítið fólk kysi einvörðungu

Píratar eru sterkir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Vest­ur­landi. Ungt og tekju­lítið fólk lítur frekar til þeirra en ann­arra flokka. Og eng­inn flokkur sem á þegar sæti á Alþingi hefur bætt við sig meira fylgi frá 2017 en Píratar.

Sá flokkur sem þegar er með kjörna þing­menn sem hefur bætt við sig mestu fylgi það sem af er kjör­tíma­bili, sam­kvæmt könn­unum MMR, eru Píratar. Í síð­ustu tveimur könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins hefur fylgi flokks­ins mælst að með­al­tali 13,9 pró­sent, sem er 3,4 pró­sentu­stigum meira en Píratar fengu í kosn­ing­unum 2017.

[box]Fyrir liggur að ein­hverjar breyt­ingar verða á for­ystu­sveit Pírata þegar kosið verður til Alþingis í sept­em­ber 2021, en bæði Helgi Hrafn Gunn­ars­son og Smári McCarthy, sem báðir voru odd­vitar lista í síð­ustu kosn­ingum, hafa greint frá því að þeir ætli ekki að bjóða sig fram í næstu kosn­ingum.

Halldóra Mogensen, Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir og Björn Leví Gunn­ars­son hafa öll gefið það út að þau sæk­ist eftir áfram­hald­andi þing­mennsku Jón Þór Ólafsson hefur ekki greint opin­ber­lega frá áformum sínum.

Píratar hafa sýnt það að flokk­ur­inn er vel stjórn­tækur, með því að vera hluti af meiri­hluta­stjórn í Reykja­vík á síð­ustu tveimur kjör­tíma­bilum þar sem sam­starf við þrjá aðra flokka, tvo í stjórn­ar­and­stöðu á þingi og einn í rík­is­stjórn, hefur gengið vel.

Mjög sterk staða á Vesturlandi

Ef ein­ungis fólk undir þrí­tugu myndi kjósa á Íslandi þá væru Píratar stærsti flokkur lands­ins með 24,9 pró­sent atkvæða. Þeir væru líka eini flokk­ur­inn sem fengi yfir 20 pró­sent fylgi og hafa bætt við sig 7,1 pró­sentu­stigi hjá þessum ald­urs­hópi á kjör­tíma­bil­inu.

Stuðn­ingur við Pírata dalar svo eftir því sem kjós­endur eld­ast og er minnstur hjá 68 ára og eldri, þar sem hann mælist ein­ungis 5,7 pró­sent.

[adspot]Það kemur lík­ast til fæstum á óvart að Píratar sækja stóran hluta af fylgi sínu á höf­uð­borg­ar­svæðið. Þar segj­ast 15,6 pró­sent kjós­enda styðja flokk­inn. Það sem er óvænt­ara er að Píratar hafa styrkt stöðu sína mjög á Vest­ur­landi og á Vest­fjörðum. Þar mælist stuðn­ingur við flokk­inn 6,7 pró­sent í kringum kosn­ing­arnar 2017 en í síð­ustu tveimur könn­unum MMR hefur það land­svæði mælst sterkasta vígi Pírata, og fylgi þeirra 18,3 pró­sent.

Það er bæt­ing upp á 11,6 pró­sentu­stig á kjör­tíma­bil­inu. Einungis Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, með 21,1 pró­sent, mælist stærri á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum.

Staða Pírata er verst á Norð­ur­landi, þar sem 7,4 pró­sent aðspurðra í könnun MMR seg­ist styðja flokk­inn.

Bæta við sig hjá öllum tekjuhópum

Þá er ljóst að Píratar eru það stjórn­mála­afl sem höfðar mest til tekju­lægstu ein­stak­ling­anna í sam­fé­lag­inu. Hjá þeim sem eru með undir 400 þús­und krónur á mán­uði í heim­il­is­tekjur mælist stuðn­ingur við þá 24,6 pró­sent. Sá flokkur sem kemst næst þeim er Sam­fylk­ingin með 13,5 pró­sent, eða 11,1 pró­sentu­stigi minna fylgi.

Í kringum síð­ustu kosn­ingar voru Píratar líka sá flokkur sem mæld­ist með sterk­ustu stöð­una hjá þessum tekju­hópi, en þá sögð­ust 15,8 pró­sent aðspurðra innan hans styðja flokk­inn. Það var nán­ast sama hlut­fall og studdi Vinstri græn (15,7 pró­sent) og lít­il­lega fleiri en sögð­ust ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn (14,7 pró­sent) og Flokk fólks­ins (14,4 pró­sent).

Athygli vekur að Píratar bæta við sig fylgi í öllum tekju­hópum þótt það minnki með hverjum þeirra, og mælist minnst hjá þeim kjós­endum sem eru með 1,2 milljón krónur eða meira á mán­uði í heim­il­is­tekjur (8,9 pró­sent).

Fylgi Pírata dreif­ist nokkuð jafnt á fólk eftir mennt­un­ar­stigi og ekki er mik­ill munur á milli kynja, þótt aðeins fleiri konur seg­ist styðja flokk­inn en karlar.

Vita með hverjum þeir vilja starfa

Píratar hafa verið nokkuð skýrir með hvert hugur þeirra stefnir eftir næstu kosn­ingar, í rík­is­stjórn.

[links]Hall­dóra Mogensen sagði í hlað­varps­þætt­inum Arn­ar­hóli í síð­ustu viku að Sam­fylk­ingin og Við­reisn væru aug­ljósu kost­irnir fyrir Pírata í því rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. „Það þyrfti vænt­an­lega að verða fjórði aðili. Ég veit ekki hver það yrði, bara hver það yrði ekki. Það yrði klár­lega ekki Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og ég sé engar for­sendur til að vinna með Mið­flokkn­um.“

Þar sagði Hall­dóra að hún upp­lifi Pírata sem frjáls­lyndan félags­hyggju­flokk á miðj­unni. Hún sæi Sam­fylk­ing­una líka sem frjáls­lyndan flokk sem halli sér til vinstri og Við­reisn sem slíkan sem halli sér til hægri. Hún sagði að hún þoli ekki þá for­ræð­is­hyggju sem henni finnst birt­ast víða í stjórn­mál­um. „Það er ástæðan fyrir því að ég á mjög erfitt með suma flokka. Þessi íhalds­semi felur í sér ofboðs­lega mikið stjórn­lyndi og for­ræð­is­hyggju.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

könnun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár