Fylgi Vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu hefur hrunið frá síðustu kosningum

Fylgi Vinstri grænna, flokks for­sæt­is­ráð­herra, hefur ekki mælst lægra í könn­unum MMR frá því í apríl 2013. Í síð­ustu kosn­ingum var sterkasta vígi flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Stuðn­ingur við flokk­inn þar hefur dreg­ist veru­lega saman á kjör­tíma­bil­inu.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Í síð­ustu könnun MMR fyrir kosn­ing­arnar 2017, og þeirri fyrstu eftir þær, mæld­ist með­al­tals­fylgi Vinstri grænna 14,9 pró­sent. Það var aðeins lægra en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum sjálfum, sem var 16,9 pró­sent. Munurinn var þó innan skekkju­marka.

[box]Kannanir MMR sýndu að fylgi Vinstri grænna var mest á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem sam­anstendur af báðum Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum og Kraganum svo­kall­aða, nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­innar. Þar búa tveir af hverjum þremur íbúum lands­ins. Meðaltal fylgis Vinstri grænna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í áður­nefndum tveimur könn­nunum MMR var 16,3 pró­sent.

Hvergi á land­inu mæld­ist það meira enda hafði árang­ur­inn í Reykja­vík verið mjög góður í kosn­ing­unum. Í Reykja­vík norður, þar sem Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður flokks­ins, leiddi list­ann, fengu Vinstri græn 21,5 pró­sent atkvæða.

Það var mesta fylgi sem flokk­ur­inn fékk í nokkru kjör­dæmi í síð­ustu kosn­ingum.

Oddvitar lista Vinstri grænna í þessum þremur kjör­dæmum voru þrjár konur: for­mað­ur­inn Katrín, Svandís Svav­ars­dóttir og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir. Tvær fyrr­nefndu kon­urnar sett­ust í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki að kosn­ingum loknum sem leidd er af Katrínu.

Sú síð­ast­nefnda studdi ekki stjórn­ar­sátt­mála þeirrar rík­is­stjórnar og sagði sig úr Vinstri grænum fyrr á þessu ári.

Fylgið ekki minna í sjö og hálft ár

Í síð­ustu tveimur könn­unum MMR hefur fylgi Vinstri grænna mælst að með­al­tali 7,9 pró­sent. Það er níu pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi.

Því er ljóst að miðað við þá stöðu hefur flokk­ur­inn tapað miklum stuðn­ingi á kjör­tíma­bil­inu.

Í könn­un­inni sem birt var í lið­inni viku, og vigtar um helm­ing af ofan­greindu með­al­tali, mæld­ist fylgið 7,5 pró­sent. Það hefur ekki mælst lægra í könn­unum MMR frá því í apríl 2013, nokkrum dögum fyrir þing­kosn­ingar þess árs, þegar fyrsta hreina tveggja flokka vinstri­st­jórnin var að ljúka átaka­drif­inni valda­setu sinni sem feiki­lega óvin­sæl minni­hluta­stjórn.

Það er merki­legt í ljósi þess að Katrín Jak­obs­dóttir er sá ráð­herra sem flestir lands­menn segj­ast treysta, sam­kvæmt könnun Zenter fyrir Frétta­blaðið sem birt var í síð­asta mán­uði. Þar sögð­ust 18,1 pró­sent lands­manna bera mest traust til for­sæt­is­ráð­herr­ans.

Það traust virð­ist hins vegar ekki skila sér í auknu fylgi Vinstri grænna. Þvert á móti.

Flótti kjós­enda frá Vinstri grænum er fyrst og síð­asta að eiga sér stað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem for­mað­ur­inn leiðir lista flokks­ins í einu þriggja kjör­dæma. Þar segj­ast 7,6 pró­sent kjós­enda styðja flokk­inn í dag, eða 8,7 pró­sentu­stigum færri en í könn­unum MMR í kringum kosn­ing­arnar 2017. Ef reiknað er með­al­tals­fylgi Vinstri grænna í kosn­ing­unum sjálfum í þeim þremur kjör­dæmum sem mynda höf­uð­borg­ar­svæðið þá var það um 17 pró­sent. Flokk­ur­inn hefur því tapað næstum tíu pró­sentu­stigum á þessu fjöl­menn­asta, og þétt­býlasta, svæði lands­ins á þeim rúmu þremur árum sem hann hefur leitt rík­is­stjórn.

Fylgið dalar víða

Vinstri græn tapa fylgi á öllum land­svæðum, nema á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum, á þeim slóðum þar sem Lilja Rafney Magn­ús­dóttir er odd­viti flokks­ins. Þar eykst fylgið lít­il­lega.

Flokk­ur­inn hefur ætið átt sterkt vígi í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, þar sem stofn­and­inn og fyrr­ver­andi for­mað­ur­inn Stein­grímur J. Sig­fús­son hefur verið í for­ystu fyrir hann frá stofnun 1999. Stein­grímur til­kynnti nýverið að hann ætl­aði að hætta á þingi í aðdrag­anda næstu kosn­inga og því liggur fyrir að nýr odd­viti mun leiða í kjör­dæm­inu. Óli Hall­dórs­son hefur þegar til­kynnt fram­boð í það hlut­verk.

[adspot]Í kosn­ing­unum 2017 fengu Vinstri græn 19,9 pró­sent atkvæða í Norð­aust­ur­kjör­dæmi og voru næst stærsti flokk­ur­inn. Þau fengu ein­ungis 88 færri atkvæði en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þá. Í síð­ustu könn­unum MMR mælist fylgi Vinstri grænna á Norð­ur­landi ein­ungis 10,7 pró­sent og á Aust­ur­landi 8,8 pró­sent.

Vinstri græn fengu 11,8 pró­sent atkvæða í Suð­ur­kjör­dæmi í síð­ustu kosn­ingum. um er að ræða víð­feðm­asta kjör­dæmi lands­ins sem teygir sig frá Höfn í Horna­firði til Suð­ur­nesja. Nú mælist stuðn­ingur við flokk­inn á Suð­ur­landi og á Suð­ur­nesjum ein­ungis 4,5 pró­sent. Það myndi ekki duga Vinstri grænum til að ná inn manni í kjör­dæm­inu.

Staðan var sterk hjá konum

Í könn­unum MMR í kringum síð­ustu kosn­ingar kom skýrt fram að Vinstri græn voru flokkur sem höfð­aði mun frekar til kvenna en karla. Alls mæld­ist stuðn­ingur við flokk­inn 21 pró­sent meðal kvenna en 9,6 pró­sent meðal karla. Einungis Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, með 21,8 pró­sent kvenna­fylgi, var vin­sælli hjá konum.

Í dag er staðan önnur. Fylgi Vinstri grænna á meðal kvenna mælist 12,4 pró­sent og karla­fylgið hefur helm­ing­ast. Nú segj­ast fleiri konur kjósa Sjálf­stæð­is­flokk, Sam­fylk­ingu og Pírata en Vinstri græn.

Þegar horft er á menntun og tekjur þá hefur stuðn­ingur við Vinstri græn dreg­ist saman í öllum flokkum. Sam­drátt­ur­inn á stuðn­ingi er meiri hjá tekju­hærri en tekju­lægri en meiri hjá þeim sem eru með grunn­skóla­próf sem æðstu menntun en öðrum sem hafa lokið lengri skóla­göngu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár