Traust til Alþingis hefur ekki mælst meira frá því fyrir hrun

Traust til stofn­anna jókst á síð­ast­liðnu ári. Mest jókst það gagn­vart heil­brigð­is­kerf­inu og traust til Seðla­banka Íslands hefur auk­ist mjög mikið á tveimur árum. Um þriðj­ungur lands­manna treystir Alþingi.

Alþingi Íslendinga.
Alþingi Íslend­inga. Mynd: Bára Huld Beck

Alls bera 34 pró­sent lands­manna traust til Alþingis sam­kvæmt nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup sem mælir árlega traust til stofn­anna sam­fé­lags­ins. Það eykst um ell­efu pró­sentu­stig milli ára og hefur auk­ist um 16 pró­sentu­stig á tveimur árum. en Alþingi er samt sem áður í fjórða neðsta sæti yfir þær stofn­anir sem almenn­ingur treystir minnst. Fyrir neðan Alþingi eru ein­ungis annað stjórn­vald, borg­ar­stjórn Reykja­víkur (22 pró­sent traust), banka­kerfið (26 pró­sent) og þjóð­kirkjan (32 pró­sent), en hún fellur um eitt sæti á traust­list­anum milli ára.

Almennt hefur traust til stofn­anna íslensks sam­fé­lags auk­ist milli ára. Það mælist nú meira hjá ell­efu þeirra stofn­ana sem mæl­ingin nær til en í fyrra, en minna hjá þremur. Þær þrjár stofn­anir sem mæl­ast með minna traust ný en 2020 lækka líti­lega. Lög­reglan lækkar um eitt pró­sentu­stig niður í 72 pró­sent, Umboðs­maður Alþingis um fjögur pró­sentu­stig niður í 49 pró­sent og Land­helg­is­gæslan um þrjú pró­sentu­stig niður í 86 pró­sent. Hún er samt sem áður sú stofnun lands­ins sem lands­menn treysta best allra, líkt og var í fyrra. Í öðru sæti á þeim lista er for­seti Íslands sem nýtur trausts 80 pró­sent aðspurðra.

Traust til heil­brigð­is­kerf­is­ins tekur gríð­ar­legt stökk upp á við eftir að hafa hrunið niður um tólf pró­sentu­stig á einu ári milli 2019 og 2020. Í febr­úar í fyrra mæld­ist traust á því 57 pró­sent en er nú 79 pró­sent. Engin ein stofnun bætir við sig jafn miklu trausti og heil­brigð­is­kerfið milli ára, en mikið hefur reynt á kerfið síð­ast­liðið ár vegna COVID-19.

[adspot]Traust til Seðla­banka Íslands tekur stökk upp á við annað árið í röð. Milli áranna 2019 og 2020 jókst það um 14 pró­sentu­stig og nú mælist það 61 pró­sent. Traustið hefur því tvö­fald­ast frá árinu 2019, en seðla­banka­stjóra­skipti urðu á því ári þegar Ásgeir Jóns­son tók við starf­inu af Má Guð­munds­syni, sem hafði gegnt því í ára­tug. Auk þess var Fjár­mála­eft­ir­litið sam­einað Seðla­bank­anum í byrjun árs 2020. Stýri­vextir hafa lækkað mikið í stjórn­ar­tíð Ásgeirs og eru nú 0,75 pró­sent, sem er það lægsta sem þeir hafa nokkru sinni verið. Sú lækk­un­ar­hrina hefur leitt til þess að fjár­magns­kostn­aður heim­ila og fyr­ir­tækja hefur lækkað mikið.

Greint var frá þjóð­ar­púlsi Gallup á RÚV í gær­kvöldi.

Meira traust til Alþingis en í upp­hafi árs 2018

Alþingi, lög­gjafa­sam­kunda Íslands, hefur átt við mikla trausterf­ið­leika að stríða allt fá hruni. Í síð­ustu mæl­ingu Gallup á trausti til Alþingis fyrir þann atburð var nið­ur­staðan sú að 42 pró­sent þjóð­ar­innar treystu Alþingi. Árin eftir hrunið fór það niður í 10 til 13 pró­sent.

Svo virt­ist sem að traustið væri aðeins að ná sér á strik árið 2014 þegar það mæld­ist 24 pró­sent, en svo komu Panama­skjölin ári síðar og það lækk­aði aftur um nokkur pró­sentu­stig. Í byrjun árs 2017 var mynduð ný rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar og traustið mæld­ist 22 pró­sent. Hún sat í nokkra mán­uði og sprakk í sept­em­ber sama ár vegna upp­reist æru-­máls­ins.

Aftur var kos­ið, í annað sinn á einu ári, og við tók rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur í des­em­ber 2017.

Í stjórn­­­ar­sátt­­mála hennar er lögð umtals­verð áhersla á traust. Þar stendur meðal ann­­ars: „Rík­­is­­stjórnin mun beita sér fyrir því að efla traust á stjórn­­­málum og stjórn­­­sýslu.“

Í fyrstu mæl­ingu sem rík­is­stjórnin og nýtt Alþingi fékk tók traustið kipp upp á við og mæld­ist 29 pró­sent. Það var sögu­lega enn lágt, og langt frá því sem var fyrir banka­hrun að jafn­aði, en meira en nokkru sinni eftir þann atburð.

Árið 2019 hrundi það svo aftur og mæld­ist 18 pró­sent, og hafði ekki mælst lægra frá því í upp­hafi febr­úar 2016. Ástæðan var nær örugg­lega tengd, að minnsta kosti að hluta, Klaust­ur­mál­inu svo­kall­aða og því hvernig Alþingi tókst á við það mál.

Síðustu tvö ár hefur traustið svo auk­ist og er nú fimm pró­sentu­stigum meira en í fyrstu mæl­ingu sem gerð var á trausti til Alþingis eftir að sitj­andi rík­is­stjórn­ var mynduð.

Borg­ar­stjórn náði sér tíma­bundið en hefur dalað hratt

Traust til borg­ar­stjórnar Reykja­víkur var í fyrra (17 pró­sent) á svip­uðum slóðum og þegar Gallup mældi það fyrst eftir hrun­ið, í febr­úar 2009, eða nokkrum mán­uðum eftir banka­hrun. Þá var traustið 18 pró­sent. Ári áður, í febr­úar 2008, hafði það reyndar mælst enn lægra, eða níu pró­sent. Það er í eina skiptið sem stjórn­vald hefur mælst með undir tíu pró­sent traust. Þá hafði gengið mikið á í borg­ar­stjórn en alls fjórir meiri­hlutar sátu við völd það kjör­tíma­bil.

Traustið lag­að­ist hægt og rólega og árin 2014 og 2015, við lok borg­ar­stjórn­ar­fer­ils Jóns Gnarr og við upp­haf borg­ar­stjórn­ar­fer­ils Dags B. Egg­erts­son­ar, mæld­ist það 31 pró­sent.

Það hefur oft­ast nær dalað á und­an­förnum árum og er þá þróun ugg­laust hægt að rekja til harð­vít­ugra átaka meiri­hluta og minni­hluta á vett­vangi borg­ar­stjórnar um flest mál sem þangað rata.

Þrátt fyrir að traustið auk­ist um fimm pró­sentu­stig á milli ára er traust til borg­ar­stjórnar enn minnst á meðal stofn­ana, eða 22 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

könnun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár