Íbúar í gömlu hverfunum í Reykjavík ánægðir með Dag sem borgarstjóra en efri byggðir ekki

Fleiri Reyk­vík­ingar eru ánægðir með störf Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra en óánægðir. Mikill munur er á afstöðu eftir hverfum og menntun. Borg­ar­stjór­inn er sér­stak­lega óvin­sæll hjá fólki á sex­tugs­aldri.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls eru 40,5 pró­sent íbúa Reykja­víkur ánægðir með störf Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra, en 33,1 pró­sent aðspurðra eru óánægðir með störf hans. Rúmur fjórð­ungur, alls 26,4 pró­sent, segj­ast í með­al­lagi ánægðir með störf Dags.

[links]Þetta kemur fram í könnun sem Maskína gerði dag­anna 15. til 25. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Ánægjan með störf Dags er mjög mis­mun­andi milli hverfa. Hann nýtur mestra vin­sælda í mið­borg­inni og Vest­ur­bænum þar sem 50,7 pró­sent eru ánægðir með hann en ein­ungis 20,7 pró­sent óánægðir. Dagur er einnig vin­sæll hjá íbúum Hlíða/Laug­ar­dals/Háa­leitis og Bústaða­hverfis en þar segj­ast 47 pró­sent vera ánægðir með hans störf og 27,7 pró­sent óánægðir.

Staðan snýst hins vegar við þegar íbúar í efri byggðum borg­ar­innar eru spurðir um ánægju sína með störf borg­ar­stjóra. Minnst er ánægjan í Graf­ar­vogi/Graf­ar­holti og Úlf­arsár­dal þar sem 22,1 pró­sent segj­ast ánægðir með Dag en rúm­lega tvö­falt fleiri, alls 47,8 pró­sent, eru óánægðir með störf borg­ar­stjóra. Í Breið­holti og Árbæ er rétt rúmur þriðj­ungur ánægður með störf Dags en tæp­lega helm­ingur, 47,8 pró­sent, óánægður.

[adspot]Svar­endur í könn­un­inni voru all­staðar að af land­inu. Þegar vin­sældir Dags eru mældar í öðrum sveit­ar­fé­lögum en Reykja­vík segj­ast ein­ungis 23,4 pró­sent vera ánægð með hans störf og 39,8 pró­sent óánægð. Í öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er ánægjan aðeins meiri en það, alls 28,6 pró­sent, en óánægjan nákvæm­lega sú sama, 39,8 pró­sent.

Menntun ráðandi breyta

Ánægja með Dag á meðal Reyk­vík­inga er nokkuð jöfn hjá báðum kynjum en munur er á henni þegar hún er skoðuð út frá ald­urs­skipt­ingu. Borg­ar­búar undir fimm­tugu, og yfir sex­tugu, eru mun ánægð­ari með Dag en þeir sem eru á aldr­inum 50-59 ára, þar sem óánægjan mælist 40,9 pró­sent en ánægjan ein­ungis 28,5 pró­sent. Mest er ánægjan með Dag hjá borg­ar­búum á fer­tugs­aldri en rúmur helm­ingur þeirra segj­ast ánægðir með störf borg­ar­stjóra á meðan að rétt um fjórð­ungur er óánægður.

Menntun er líka ráð­andi breyta í ánægju með störf borg­ar­stjóra. Hjá þeim borg­ar­búum sem eru með háskóla­próf segj­ast tæp­lega helm­ingur vera ánægður með dag en 23,3 pró­sent óánægð. Hjá þeim sem eru með grunn- eða fram­halds­skóla­próf sem æðstu menntun er óánægjan hins vegar á bil­inu 50-60 pró­sent og ein­ungis um fjórð­ungur er ánægður með störf borg­ar­stjóra.

Svar­endur könn­un­ar­innar voru 868 tals­ins og koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er dreg­inn með til­viljun úr Þjóðskrá og svarar á net­inu. Svar­endur eru alls­staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu sam­kvæmt Þjóðskrá.

Mælist stærsti flokkurinn í borginni

Sam­fylk­ingin, flokk­ur­inn sem Dagur leiðir, mælist með mest fylgi allra flokka í Reykja­vík um þessar mundir, sam­kvæmt nýrri könnun Gallup sem Frétta­blaðið greindi frá í gær. Borg­ar­stjórn­ar­flokkur flokks­ins mælist með 26,4 pró­sent fylgi í höf­uð­borg­inni sem er rétt yfir kjör­fylgi hans, en Sam­fylk­ingin fékk 25,9 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem var stærsti flokk­ur­inn í borg­inni eftir síð­ustu kosn­ingar með 30,8 pró­sent fylgi, hefur tapað miklu. Fylgi hans mælist nú 25,2 pró­sent eða 5,6 pró­sentu­stigum minna en 2018.

Allir flokk­arnir fjórir – Sam­fylk­ing, Við­reisn, Píratar og Vinstri græn – sem mynda meiri­hluta í Reykja­vík undir for­ystu Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra hafa bætt við sig fylgi á kjör­tíma­bil­inu. Píratar hafa bætt við sig 2,8 pró­sentu­stigum og mæl­ast nú þriðji stærsti flokkur borg­ar­innar með 10,5 pró­sent fylgi. Við­reisn stendur nokkurn veg­inn í stað og mælist með 8,9 pró­sent stuðn­ing. En mesta breyt­ingin er á fylgi Vinstri grænna, sem biðu afhroð í kosn­ing­unum 2018 og fengu þá aðeins 4,6 pró­sent atkvæða. Fylgi flokks­ins Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra nú mælist 8,9 pró­sent og því hefur hann nálægt tvö­faldað fylgi sitt það sem af er kjör­tíma­bil­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

könnun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár