Sjálfstæðismenn, eldra fólk, tekjuhærri og landsbyggðin ánægðust með nýja ríkisstjórn

Ný könnun sýnir að varla nokkur kjós­andi Sjálf­stæð­is­flokks er óánægður með nýja rík­is­stjórn en að rúm­lega fimmti hver kjós­andi Vinstri grænna sé það. Ánægja með stjórn­ina mælist minnst hjá yngstu kjós­end­unum en mest hjá þeim elstu.

Alls eru 87 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins ánægð með end­ur­nýjað rík­is­stjórn­ar­sam­starf flokks­ins við Vinstri græna og Fram­sókn­ar­flokk. Einungis tvö pró­sent þeirra eru óánægðir með rík­is­stjórn­ina. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Prósent hefur gert fyrir Frétta­blaðið og birt er á for­síðu blaðs­ins í dag.

[links]Innan raða Vinstri grænna er staðan önnur. Þar eru 53 pró­sent kjós­enda ánægðir með ráða­hag­inn sem flokk­ur­inn valdi sér. Rúmlega tveir af hverjum þremur Fram­sókn­ar­mönnum eru ánægðir með rík­is­stjórn­ina.

Í könn­un­inni kemur fram að fleiri eru óánægðir með rík­is­stjórn­ina en ánægðir í öllum ald­urs­hópum full­orð­inna undir 44 ára aldri. Hjá eldri kyn­slóðum, þeim sem eru 45 ára og eldri, snýst þessi staða hins vegar við og þar eru ánægðir fleiri en óánægðir. And­staðan eykst eftir því sem aðspurðir eru yngri en vel­þókn­unin eykst eftir því sem þeir eru eldri. Þannig segj­ast ein­ungis 33 pró­sent 18 til 24 ára ánægðir með rík­is­stjórn­ina en 48 pró­sent óánægðir, á meðan að 51 pró­sent þeirra sem eru 65 ára og eldri eru ánægðir en 30 pró­sent óánægðir.

Sömu sögu er að segja af tekju­hópum. Fleiri í tveimur efstu tekju­hóp­unum í könn­un­inni eru ánægðir með stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur en óánægðir en fleiri óánægðir en ánægðir í tveimur lægri tekju­hóp­unum. Mest er ánægjan í efsta tekju­hópnum þar sem 47 pró­sent eru ánægð með rík­is­stjórn­ina en 37 pró­sent óánægð.

[adspot]Þá er mæl­an­legur munur á ánægju með rík­is­stjórn­ina milli kjós­enda á lands­byggð­inni, þar sem 47 pró­sent eru ánægðir, og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem þeir eru 39 pró­sent. Enn fremur eru fleiri óánægðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en ánægðir, en sú staða snýst við úti á landi.

Mjög svipuð staða og í kosningunum

Í síð­ustu könnun sem Gallup gerði á fylgi flokka, sem birt var 2. des­em­ber síð­ast­lið­inn kom fram að litlar breyt­ingar voru á fylgi ­flokka milli mán­aða

Þar bar helst til tíð­inda að fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar jókst um 0,9 pró­sentu­stig og mæld­ist 10,7 pró­sent en fylgi Pírata dróst saman um 0,8 pró­sentu­stig og mæld­ist slétt ell­efu pró­sent.

Fylgi ann­arra flokka var nán­ast það sama og það var í lok októ­ber. Stjórn­ar­flokk­arnir þrír eru þeir flokkar sem njóta mest stuðn­ings. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins með 22,7 pró­sent fylgi og Fram­sókn sá næst stærsti með 17 pró­sent fylgi. Vinstri græn fylgdu þar á eftir með 13 pró­sent fylgi. Sam­eig­in­legt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna var því 52,7 pró­sent, sem er 0,7 pró­sentu­stigum minna en mán­uði áður og 1,6 pró­sentu­stigum minna en flokk­arnir þrír fengu sam­an­lagt í kosn­ing­unum í sept­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

könnun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár