Framsókn mælist með sögulega lítið fylgi í könnun Gallup

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri græn bæta lít­il­lega við sig milli mán­aða en Framsókn dalar. Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn standa nán­ast í stað.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig fylgi og mælist með 23,9 pró­sent stuðn­ing sam­kvæmt nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup sem birtur var í dag. Vinstri græn bæta einnig lít­il­lega við sig á milli kann­ana Gallup og eru nú með 13,7 pró­sent fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn dalar hins vegar á milli mán­aða og mælist nú með 6,7 pró­sent fylgi, sem myndi gera hann að minnsta flokknum á Alþingi ef kosið yrði í dag. Raunar er þetta fylgi það lægsta sem Gallup hefur mælt hjá Fram­sókn­ar­flokknum, að einni könnun und­an­skildri. Sú könnun var gerð í sept­em­ber 2018 og sýndi flokk­inn með 6,6 pró­sent fylgi.

Allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír eru að mæl­ast undir kjör­fylgi sem stendur en sam­eig­in­legt fylgi þeirra er 44,3 pró­sent. Það er tölu­vert hærra en það hefur verið að mæl­ast í nýj­ustu könn­unum MMR og Zenter.

Sam­fylk­ingin yrði næst stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag og nýtur stuðn­ings 14,9 pró­sent kjós­enda. Píratar myndu fá 13,2 pró­sent atkvæða eins og sakir standa núna og Viðreisn mælist með 10,4 pró­sent fylgi.

[adspot]Allir þrír flokk­arnir eru að mæl­ast yfir kjör­fylgi og sam­eig­in­legt fylgi þeirra er 38,5 pró­sent. Það er 10,5 pró­sentu­stigum meira en þeir fengu haustið 2017.

Tæpt ár er til næstu þing­kosn­inga. Þær fara fram í sept­em­ber 2021.

Tveir flokkar sem mælast næðu líklega ekki inn

Mið­flokk­ur­inn dalar lít­il­lega á milli mán­aða og nýtur nú stuðn­ings 9,4 pró­sent kjós­enda. Hann er því aðeins undir þeim 10,9 pró­sentum sem hann fékk í kosn­ing­unum 2017, og var þá það mesta sem nýr flokkur hafði nokkru sinni fengið í sínum fyrstu þing­kosn­ingum.

Sós­í­alista­flokkur Íslands myndi fá 3,9 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag og Flokkur fólks­ins 3,7 pró­sent. Hvorugur flokk­ur­inn yrði lík­legur til að ná mann á þing með þannig fylgi.

Allar tölur hér að ofan byggja á svörum þeirra sem tóku afstöðu í könnun Gallup.

Nær tólf pró­sent aðspurðra tóku ekki afstöðu eða vildu ekki gefa hana upp og lið­lega níu pró­sent sögðu að þeir myndu skila auðu eða ekki kjósa.

Slétt 55 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu segj­ast styðja rík­is­stjórn­ina. Það er einu pró­sentu­stigi minni stuðn­ingur en hún naut í lok ágúst.

Könnunin var net­könnun sem Gallup gerði dag­ana 1. til 30. sept­em­ber 2020. Heild­ar­úr­taks­stærð var 9.673 og þátt­töku­hlut­fall var 52,9 pró­sent. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,6-1,3 pró­sent. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

könnun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár