Miðflokkurinn ekki mælst með minna fylgi í tvö ár – Frjálslynda andstaðan á flugi

Píratar, Sam­fylk­ing og Viðreisn mæl­ast sam­an­lagt með meira fylgi en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir og hafa bætt við sig rúm­lega 50 pró­sent fylgi það sem af er kjör­tíma­bili. Allir stjórn­ar­flokk­arnir mæl­ast undir kjör­fylgi.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Miðflokkurinn

Mið­flokk­ur­inn yrði lík­ast til minnst flokk­ur­inn sem næði manni inn á Alþingi ef kosið yrði í dag, sam­kvæmt nýrri könnun Zenter fyrir Frétta­blaðið. Flokk­ur­inn mælist nú með 6,7 pró­sent fylgi sem er það minnsta sem hann hefur haft í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins frá því að Klaust­ur­málið svo­kall­aða, þar sem þing­menn hans voru í aðal­hlut­verkum, kom upp í lok árs 2018. Þá mæld­ist flokk­ur­inn með 4,3 pró­sent fylgi.

Enn fremur mælist fylgi Mið­flokks­ins 4,2 pró­sentu­stigum undir því sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu þing­kosn­ingum, haustið 2017. Hann hefur því tapað rúm­lega 38 pró­sent af fylgi sínu það sem af er kjör­tíma­bili.

Fjórðungur af fylginu farið

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír mæl­ast allir undir kjör­fylgi í könnun Zenter. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn yrði áfram stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði nú en stuðn­ingur við hann mælist 22,9 pró­sent. Það 2,4 pró­sentu­stigi minna en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum og versta nið­ur­staða flokks­ins frá upp­hafi.

[adspot]Vinstri græn mæl­ast með 10,2 pró­sent fylgi, sem er 6,7 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Það myndi þýða að 39 pró­sent þeirra kjós­enda sem kusu flokk­inn síð­ast myndu ekki gera það í dag. Ef könnun Zenter yrði nið­ur­staða kosn­inga þá væri um að ræða rýr­ustu upp­skeru Vinstri grænna í kosn­ingum frá árinu 2003.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn yrði næst minnstur þeirra sjö flokka sem næðu örugg­lega inn á þing sam­kvæmt könn­un­inni. Hann mælist með 7,3 pró­sent fylgi, 3,4 pró­sentu­stigum minna en haustið 2017, sem yrði versta kosn­ing flokks­ins frá upp­hafi.

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna mælist 40,4 pró­sent. Þeir fengu 52,9 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum og hafa því tapað tæpum fjórð­ungi fylgi síns.

Frjálslyndu andstöðuflokkarnir stærri en stjórnin

Þeir þrír flokkar sem næðu inn á þing sam­kvæmt könn­un­inni, og eru ónefndir hér, eru Píratar, Sam­fylk­ing og Viðreisn. Samtals mælist fylgi þeirra í könnun Zenter 42,8 pró­sent. Þessir þrír flokkar fengu 28 pró­sent atkvæða í þing­kosn­ing­unum 2017 og því hafa þeir bætt við sig 14,8 pró­sentu­stigum, 53 pró­sent fylgi, á meðan að allir aðrir flokkar sem sitja á þingi hafa tapað fylgi það sem af er kjör­tíma­bili.

Mest hafa Píratar bætt við sig. Þeir mæl­ast næst stærsti flokkur lands­ins í könnun Zenter með 17 pró­sent fylgi. Það er 7,8 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk haustið 2017.

Sam­fylk­ingin mælist með 15,6 pró­sent fylgi og myndi sam­kvæmt þessu bæta við sig 3,5 pró­sentu­stigum. Viðreisn myndi fá svip­aða upp­skeru og flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2016 ef kosið yrði nú, en umtals­vert betri en það sem kom upp úr kjör­köss­unum 2017 þegar 6,7 pró­sent lands­manna kusu flokk­inn. Í dag segj­ast 10,2 pró­sent styðja hann.

Flokkur fólksins við það að komast inn

Flokkur fólks­ins er sá flokkur sem er þegar með þing­menn kjörna sem er lík­leg­astur til að detta af þingi sam­kvæmt könn­un­inni. Fylgi hans mælist 4,7 pró­sent og ef það yrði nið­ur­staðan alls staðar á land­inu myndi flokk­ur­inn lík­leg­ast ekki ná inn. Það verður þó að hafa í huga, sér­stak­lega ef tekið er til­lit til eðli­legra skekkju­marka, að Flokkur fólks­ins er fjarri því að vera úr leik miðað við þessa fylgiskönnun og lítið þyrfti að ger­ast til að hann næði inn. Flokkur fólks­ins fékk 6,9 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum og er því að mæl­ast 2,2 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi í könnun Zenter.

Níundi flokk­ur­inn sem er mældur í könnun Zenter er Sós­í­alista­flokkur Íslands. Hann mælist með 3,3 pró­sent fylgi og er nokkuð frá því að ná inn manni. Vert er þó að taka fram að flokk­ur­inn hefur ekki kynnt lista sína vegna kom­andi kosn­inga, en hann hefur aldrei áður tekið þátt í þing­kosn­ingum. Kjós­endur hafa því fá and­lit til að tengja við flokk­inn enn sem komið er.

Könnunin var send á könn­un­ar­hóp Zenter sem fékk að svara henni frá 11. til 19. des­em­ber 2020. Í þeim hópi voru 2.500 ein­stak­lingar átján ára og eldri og svör voru vegin eftir kyni, aldri og búsetu. Svar­hlut­fall var 52,8 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

könnun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár