Ný könnun: Miðflokkurinn helmingast frá síðustu kosningum og mælist með 5,9 prósent

Samkvæmt nýrri könnun Maskínu vantar ekki mikið upp á að Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn geti myndað þriggja flokka rík­is­stjórn. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir virð­ast höfða í mun minni mæli til kjós­enda ann­arra flokka en þeir flokkar sem eru í stjórn­ar­and­stöðu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Mið­flokk­ur­inn mælist með 5,9 pró­sent fylgi í nýrri könnun Maskínu sem gerð var dag­anna 24.-28. sept­em­ber. Yrði það nið­ur­staða kosn­inga myndi flokk­ur­inn hafa tapað helm­ingi þess fylgis sem hann fékk þegar kosið var haustið 2017, og 10,9 pró­sent atkvæða féllu Mið­flokknum í skaut.

[links]Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír eru allir undir kjör­fylgi sam­kvæmt könn­un­inni. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærstur með 22,7 pró­sent fylgi en Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur, mæl­ast með 10,4 pró­sent fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn rekur rík­is­stjórn­ar­lest­ina með 7,8 pró­sent fylgi sam­kvæmt könn­un­inni.

Þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar mæl­ast með umtals­vert meira fylgi en þeir fengu í októ­ber 2017. Sam­fylk­ingin yrði næst stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag með 17,9 pró­sent atkvæða, Píratar myndu fá 15,7 pró­sent atkvæða og Viðreisn 14 pró­sent.

Flokkur fólks­ins myndi líka ná inn á þing sam­kvæmt nið­ur­stöðu Maskínu með 5,5 pró­sent fylgi.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir mæl­ast með sam­an­lagt 40,9 pró­sent fylgi. Þeir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar sem bæta við sig fylgi frá síð­ustu kosn­ingum og starfa sama í meiri­hluta í Reykja­vík; Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn, mæl­ast með 47,6 pró­sent fylgi. Þeir fengu sam­tals 28 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum og myndu því auka sam­eig­in­legt fylgi sitt um 70 pró­sent miðað við nið­ur­stöðu Maskínu.

[adspot]Þá vantar ekki mikið upp á að flokk­arnir þrír gætu myndað þriggja flokka rík­is­stjórn ef kosið yrði í dag. Næstu þing­kosn­ingar fara fram í sept­em­ber 2021.

Samfylking og Píratar hirða fylgi af Vinstri grænum

Maskína kann­aði líka hvort þátt­tak­endur myndu kjósa sama flokk og þeir gerðu 2017 ef kosið yrði í dag. Veitt svör gáfu til kynna að flestir kjós­endur hafi yfir­gefið Vinstri græn, en minna en helm­ingur þeirra sem kaus flokk­inn síð­ast myndi gera það í dag. Flokks­holl­ustan er hins vegar mest hjá Sjálf­stæð­is­flokknum.

Í frétta­til­kynn­ingu á heima­síðu Maskínu vegna birt­ingar á könn­un­inni segir að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir höfði í mun minni mæli til kjós­enda ann­arra flokka en þeir flokkar sem eru í stjórn­ar­and­stöðu. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sækir þannig lang­mest af sínu fylgi í dag til þeirra sem kusu flokk­inn síð­ast, eða rúm­lega 94 pró­sent en sitt hvor um 2 pró­sentu­stig koma frá Viðreisn og Mið­flokki en nán­ast ekk­ert frá öðrum flokkum. Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð sækir næstum 85 pró­sent til fyrri kjós­enda sinna, um 6 pró­sent frá Sam­fylk­ingu og um 5 pró­sent frá Fram­sókn­ar­flokki. Þegar fylgi Fram­sókn­ar­flokks er skoðað sést að 78 pró­sent þeirra fylgis kemur frá þeim sem kusu Fram­sókn­ar­flokk­inn síð­ast, milli 5 og 6 pró­sent frá ann­ars vegar Sam­fylk­ingu og hins vegar Sjálf­stæð­is­flokki, en sitt hvor 4 pró­sent frá Mið­flokki og Flokki fólks­ins.“

Þegar stærstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir eru skoð­aðir sjá­ist að fylgið sem Vinstri græn hafa tapað frá síð­ustu kosn­ingum fari fyrst og fremst til þess­ara tveggja flokka, Sam­fylk­ingar og Pírata.

Svar­endur í könn­un­inni voru 879 tals­ins, koma úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks (e. panel) sem er dreg­inn með til­viljun úr Þjóðskrá og svarar á net­inu. Svar­endur eru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu sam­kvæmt Þjóðskrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

könnun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár