Samfylkingin bætir aðeins við sig hjá Gallup – Vinstri græn dala hjá MMR

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina dregst saman um rúm­lega tvö pró­sentu­stig milli mán­aða. Hann er mun minni en stuðn­ingur við stjórn­ina mæld­ist eftir að hún tók við 2017 en meiri en hann mæld­ist nokkrum dögum fyrir síð­ustu kosn­ingar.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Litlar breyt­ingar eru á fylgi stjórn­mála­flokka milli mán­aða sam­kvæmt nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup. Þar ber helst til tíð­inda að fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar eykst um 0,9 pró­sentu­stig og mælist nú 10,7 pró­sent en fylgi Pírata dregst saman um 0,8 pró­sentu­stig og mælist slétt ell­efu pró­sent.

Fylgi ann­arra flokka er nán­ast það sama og það var í lok októ­ber. Stjórn­ar­flokk­arnir þrír eru þeir flokkar sem njóta mest stuðn­ings. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins með 22,7 pró­sent fylgi og Framsókn sá næst stærsti með 17 pró­sent fylgi. Vinstri græn fylgja þar á eftir með 13 pró­sent fylgi. Sam­eig­in­legt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna er því 52,7 pró­sent, sem er 0,7 pró­sentu­stigum minna en fyrir mán­uði og 1,6 pró­sentu­stigum minna en flokk­arnir þrír fengu sam­an­lagt í kosn­ing­unum í sept­em­ber.

[adspot]Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina dalar þó milli kann­anna um 2,1 pró­sentu­stig og mælist nú 60,1 pró­sent. Það er minni stuðn­ingur en hún hafði í upp­hafi starfs­tíma síns eftir kosn­ing­arnar 2017 en meiri en sá stuðn­ingur sem mæld­ist við hana nokkrum dögum fyrir síð­ustu kosn­ing­ar, þegar 52,7 pró­sent lands­manna sögð­ust styðja rík­is­stjórn­ina. Stuðn­ingur við hana hafði þá ekki mælst minni síðan í mars 2020, við upp­haf COVID-far­ald­urs­ins.

Stjórnarandstaðan með 42 prósent fylgi

Viðreisn mælist með alls 8,4 pró­sent, og tapar hálfu pró­sentu­stigi milli mán­aða. Flokkur fólks­ins stendur nán­ast í stað milli kann­ana Gallup og mælist nú með 7,9 pró­sent fylgi.

[links]Minnstur þeirra flokka sem eiga þing­menn mælist Mið­flokk­ur­inn, en 3,8 pró­sent lands­manna segj­ast styðja hann.

Það er minna fylgi en Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem náði ekki inn á þing í kosn­ing­unum í sept­em­ber, mælist með en 4,4 pró­sent styðja þann flokk.

Sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna fimm á Alþingi mælist nú 41,9 pró­sent.

Um net­könnun var að ræða sem gerð var dag­anna 1. til 30. nóv­em­ber 2021. Heild­ar­úr­taks­stærð var tíu þús­und manns og þátt­töku­hlut­fall var 51 pró­sent. Vikmörk í könn­un­inni eru frá 0,6 til 1,2 pró­sent og því eru flestar breyt­ingar á fylgi flokka milli mán­aða innan þeirra.

MMR líka með könnun í dag

MMR birti líka nýja könnun á fylgi flokka í dag. Nið­ur­staða hennar er aðeins á skjön við það sem sést hjá Gallup og ber þar hæst til tíð­inda að Vinstri græn dala um tæp tvö pró­sentu­stig milli kann­anna og mæl­ast með 12,1 pró­sent fylgi. Það myndi gera Vinstri græn minni en Pírata, sem mæl­ast með 12,4 pró­sent fylgi, og flokkur for­sæt­is­ráð­herra því ekki þriðji stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt MMR.

Þá mælist Flokkur fólks­ins með 5,6 pró­sent fylgi hjá MMR, sem er 2,3 pró­sentu­stigum minna en hjá Gallup en ekki langt frá því fylgi sem flokk­ur­inn mæld­ist með um miðjan nóv­em­ber hjá MMRþ

Annað er nokkuð svipað. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur nán­ast í stað og mælist með 22,5 pró­sent fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nokkuð stærri hjá MMR en Gallup, eða með stuðn­ing 18,2 pró­sent kjós­enda.

Fylgi Sam­fylk­ing­in­ar­innar dalar um 0,5 pró­sentu­stig milli kann­anna hjá MMR og mælist nú 10,6 pró­sent á meðan að Við­reiðsn bætir við sig einu pró­sentu og nýtur stuðn­ings níu pró­sent lands­manna. Mið­flokk­ur­inn stendur pikk­fastur í stað í 4,2 pró­sentum og fylgi Sós­í­alista­flokks­ins mælist fjögur pró­sent.

Könnunin var fram­kvæmd 29. nóv­em­ber til 2. des­em­ber 2021 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 933 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri. Könnun MMR er því fram­kvæmd á mun skemmra tíma­bili en könnun Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár