Framsókn með undir sex prósenta fylgi í Reykjavík og nágrenni

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er að mæl­ast með svipað fylgi og hann fékk þegar síð­ast var kosið. Hann hefur styrkt stöðu sína víða á lands­byggð­inni en tapað fylgi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem flokk­ur­inn er í hættu að fá enga menn þing­menn kosna.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur upp­lifað storma­sama tíma á und­an­förnum árum. Rík­is­stjórn sem hann leiddi þurfti að boða til snemm­bú­inna kosn­inga 2016 og þáver­andi for­maður flokks­ins, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, að segja af sér sem for­sæt­is­ráð­herra vegna opin­ber­ana sem fram komu í Panama­skjöl­unum.

[box]Í kjöl­farið fylgdi hat­rammur for­manns­slagur í aðdrag­anda kosn­inga 2016 sem lauk með því að Sigurður Ingi Jóhanns­son sigr­aði Sigmund Davíð með litlum mun og þegar kosið var aftur árið síðar, haustið 2017, klauf Sig­mundur Davíð sig frá og stofn­aði Mið­flokk­inn. Sá fékk fleiri atkvæði en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í þeim kosn­ingum.

Framsókn vann þó ákveð­inn varn­ar­sigur fyrir rúmum þremur árum og náði í 10,7 pró­sent atkvæða, sem dugði til að skila flokknum í rík­is­stjórn. Það var samt sem áður versta nið­ur­staða Fram­sóknar í þing­kosn­ingum í Íslands­sög­unni.

Kannanir MMR fyrir og eftir síð­ustu kosn­ingar sýndi nákvæm­lega kjör­fylgið, 10,7 pró­sent. Þar mæld­ist fylgi Fram­sóknar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu átta pró­sent, sem er mjög í takt við nið­ur­stöðu kosn­ing­anna 2017 í Reykja­vík suður, þar sem von­ar­stjarnan og vara­for­mað­ur­inn Lilja Alfreðs­dóttir leiddi lista flokks­ins, og í Suð­vest­ur­kjör­dæmi nágranna­sveit­ar­fé­laga höf­uð­borg­ar­innar, þar sem Willum Þór Þórsson, for­maður fjár­laga­nefndar, var í fyrsta sæti.

Mikil ánægja með Lilju

Lilja hefur ítrekað mælst í hópi þeirra ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar sem mest ánægja er með. Í könnun sem Maskína gerði á vor­mán­uðum 2019 var Lilja í efsta sæti yfir þá ráð­herra sem mest ánægja var með, en alls sögð­ust tæp­lega 68 pró­sent aðspurðra vera ánægð með hennar störf. Þegar sú könnun var gerð var skammt um liðið frá því að Klaust­ur­málið svo­kall­aða átti sér stað. Lilja, sem var ein þeirra sem var til umræðu í niðr­andi og óvið­ur­kvæmi­legu tali nokk­urra þing­manna Mið­flokks og Flokks fólks­ins á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber 2018, hlaut mikið lof fyrir fram­göngu sína í kjöl­farið þar sem hún kall­aði fram­ferði fólks­ins „ofbeldi“. Í könnun Gallup frá því í maí 2020 sögð­ust 54 pró­sent aðspurðra vera ánægðir með störf hennar.

Ánægja er eitt, en traust er annað. Og það er líka mælt. Zenter og Frétta­blaðið hafa fram­kvæmt könnun á því hvaða ráð­herra lands­menn treystu best ann­ars vegar sum­arið 2019 og hins­vegar í byrjun októ­ber 2020. Í fyrri könn­un­inni mæld­ist Lilja sá ráð­herra sem flestir treystu best, en alls nefndu 20,5 pró­sent hana í fyrra­sumar. Það þýðir að hún naut meira trausts en for­sæt­is­ráð­herr­ann Katrín Jak­obs­dóttir.

Í síð­ari könn­un­inni, rúmu ári síðar, hafði traust á Lilju næstum helm­ing­ast og var farið niður í 10,7 pró­sent. Í sömu könnun sögð­ust 6,2 pró­sent lands­manna treysta Sigurði Inga Jóhanns­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Í baráttu fyrir tilveru á höfuðborgarsvæðinu

Í gögnum MMR sem sýna með­al­tals­stöðu Fram­sókn­ar­flokks­ins úr síð­ustu tveimur könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins eftir ýmsum bak­grunns­breytum kemur fram að heilt yfir virð­ist flokk­ur­inn á svip­uðum slóðum og í síð­ustu kosn­ingum. Fylgi við hann mælist 10,1 pró­sent og hann er sá stjórn­ar­flokkur sem hefur tapað minnstu fylgi á stjórn­ar­sam­starf­inu.

[adspot]Flokk­ur­inn hefur styrkt stöðu sína á Norð­ur­landi, Aust­ur­landi, Suð­ur­landi og á Suð­ur­nesj­unum.

Fylgið hefur hins vegar dalað á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum og á lang­fjöl­menn­asta svæði lands­ins, höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem tveir af hverjum þremur íbúum Íslands búa. Þar, í kjör­dæmum þar sem vara­for­mað­ur­inn og mennta­mála­ráð­herr­ann ann­ars vegar og for­maður fjár­laga­nefndar hins vegar, leiða lista flokks­ins mælist fylgi hans nú 5,9 pró­sent. Í könn­unum MMR fyrir og eftir síð­ustu kosn­ingar mæld­ist það átta pró­sent á svæð­inu sem er í takt við það fylgi sem Framsókn fékk í kosn­ing­unum 2017 í Kraganum ann­ars vegar og í Reykja­vík suður hins vegar, þar sem flokk­ur­inn náði inn þing­mönnum. Í Reykja­vík norður fékk flokk­ur­inn 5,3 pró­sent atkvæða og engan mann kos­inn.

Framsókn er í dag með minna fylgi en Mið­flokk­ur­inn og Vinstri græn og aðeins rétt meira fylgi en Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem hefur aldrei boðið fram til þing­kosn­inga og á eftir að kynna hverjir verða í fram­boði fyrir flokk­inn í næstu kosn­ingum, á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Ánægja og traust á Lilju er því ekki að skila sér í auknum fjölda lík­legra kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þorri þeirra sem eru ánægðir með störf hennar og treysta henni ætla sér alls ekki að kjósa þann flokk.

Lengi verið erfið staða í Reykjavík

Það er því raun­hæfur mögu­leiki að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn nái ekki inn manni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í næstu kosn­ingum. Erfið staða hans í Reykja­vík sér­stak­lega, þar sem flokk­ur­inn hefur nú einn þing­mann af 22 úr kjör­dæm­unum tveimur, hefur raunar legið fyrir í lengri tíma og birt­ist meðal ann­ars í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

[links]Þar fékk flokk­ur­inn 3,2 pró­sent atkvæða og náði ekki inn manni. Fyrir 14 árum síðan, í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2006, fékk flokk­ur­inn 6,1 pró­sent atkvæða. Í kjöl­farið ákvað þáver­andi for­maður flokks­ins, Halldór Ásgríms­son heit­inn, að draga sig í hlé úr stjórn­málum. Halldór sagði meðal ann­ars að hann væri að axla ábyrgð á lakri stöðu flokks­ins í þeim kosn­ingum með því að stiga til hliðar.

Aldur er ekki ráð­andi breyta á meðal stuðn­ings­manna Fram­sókn­ar­flokks og það er menntun eða tekjur ekki heldur. Karlar eru hins vegar hrifn­ari af flokknum en konur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár