Lilja: „Þetta er algjört ofbeldi“

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra seg­ist „ofboðs­lega“ ósátt við það tal þing­manna sem náð­ist á upp­töku á Klaustur bar 20. nóv­em­ber.

Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, seg­ist hafa verið „ofboðs­lega“ ósátt við það tal þing­manna, sem gert var opin­bert með upp­tök­unum frá Klaustur bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. „Þetta er algjört ofbeldi,“ segir Lilja í við­tali við Einar Þor­steins­son, frétta­mann RÚV og Kast­ljóss, en hluti af við­tali, sem birt verður í Kast­ljósi í kvöld, hefur verið birtur á vef RÚV.

Hún seg­ist hafa bognað þegar allra gróf­ustu ummælin, um hana sjálfa, komu fram. „Ég svaf ekk­ert aðfar­arnótt þriðju­dags,“ segir Lilja, og segir rík­is­stjórn­ar­fund, sem fram fór á þriðju­dags­morgun, hafa verið erf­iðan.

Þing­menn­irnir sex sem ræddu saman á fund­inum á Klaustur bar, 20. nóv­em­ber, voru Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, Bergþór Ólason, Gunnar Bragi Sveins­son og Anna Kolbrún Árna­dóttir, allt þing­menn Mið­flokks­ins, og Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son. Þeir tveir síð­ast­nefndu hafa verið reknir úr Flokki fólks­ins, og Bergþór og Gunnar Bragi eru farnir í leyfi. Enginn þing­manna hefur sagt af sér, og eng­inn hefur það í hyggju.

Lilja var í sam­ræð­unum meðal ann­ars kölluð „hel­vítis tík“ af Gunnari Braga Sveins­syni, og fleiri niðr­andi orð féllu um hana.

Hún hefur sagt að trún­að­ar­brestur hafi átt sér stað á milli þing­mann­anna, þjóð­ar­innar og þings­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár