Sjálfstæðisflokkur styrkir stöðu sína sem fyrsti valkostur elstu og tekjuhæstu kjósendanna

Stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins siglir nokkuð lygnan sjó sam­kvæmt könn­unum og hefur ekki tapað á rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu. Fylgi flokks­ins á Aust­ur­landi hefur hríð­lækkað og hann virð­ist aðal­lega vera að slást við Mið­flokk­inn um atkvæði.

Forystusveit Sjálfstæðisflokksins sem var kosin á landsfundi 2018.
For­ystu­sveit Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem var kosin á lands­fundi 2018. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn skil­greinir sig sem flokk stöð­ug­leika. Þótt hug­myndin á bak­við það sé fyrst og síð­ast sú að breyta kerfum hægt eða ekki og sýna íhalds­semi í rík­is­rekstri þá virð­ist hún einnig eiga við fylg­is­þróun flokks­ins.

[box]Þótt þeir dagar þar sem hann var að jafn­aði með 35-40 pró­sent fylgi séu löngu liðnir þá mælist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nær ætið stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins í gjör­breyttu lands­lagi síð­ustu ára og fylgi flokks­ins nú er nán­ast nákvæm­lega það sama og það mæld­ist fyrir rúmum þremur árum.

Stöð­ug­leik­inn birt­ist líka í því að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur nú setið á þingi í 17 ár og verið for­maður hans í næstum tólf. Ekkert bendir til ann­ars en að Bjarni ætli að leiða flokk­inn í gegnum næstu kosn­ingar en lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem átti að fara fram um liðna helgi, var frestað í sept­em­ber vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Hann mun fara fram á fyrri hluta næsta árs, í síð­asta lagi í apr­íl­mán­uði.

Bjarni sagði í Kast­ljós­við­tali 23. febr­úar síð­ast­lið­inn að sér liði þannig að hann væri ekki búinn og að hann hefði stuðn­ing. „Mig langar til að halda áfram, hvað getur verið meira ­spenn­andi í líf­inu en að fást við það að móta fram­tíð lands og þjóðar og ver­a að leggja á borðið til­lög­ur? Ég get ekki séð neitt annað sem gæti ver­ið ­merki­legra og skemmti­legra að ger­a.“

Síðan þá hefur reyndar skollið á heims­far­aldur kór­ónu­veiru og verk­efni stjórn­mál­anna breyst veru­lega. Í stað þess að takast á við mjúka lend­ingu í efna­hags­málum er Bjarni, sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að takast á við fjár­laga­halla sem er áætl­aður 533 millj­arðar króna sam­an­lagt á árunum 2020 og 2021.

Eldri kjósendur hryggjarstykkið í flokknum

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með aðeins minna fylgi en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Þá settu 25,3 pró­sent kjós­enda X við D en í síð­ustu tveimur könn­unum MMR hefur fylgið mælst 23,5 pró­sent. Líkt og svo oft áður þá reynd­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fá meira upp úr kjör­köss­unum en kann­anir bentu til, en í tveimur könn­unum í kringum kosn­ing­arnar 2017 – sem fram­kvæmdar voru ann­ars vegar rétt fyrir og hins vegar rétt eftir þær – var með­al­tals­fylgi flokks­ins 22,8 pró­sent.

[adspot]Munurinn á því fylgi og fylgi flokks­ins í dag er vel innan skekkju­marka. Því má segja að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi haldið sínu það sem af er kjör­tíma­bili og sé á mjög svip­uðu róli og flokk­ur­inn var haustið 2017.

Þegar fylgi Sjálf­stæð­is­flokks er skoðað eftir land­svæðum kemur í ljós að það er nokkuð stöðugt á þeim flestum, þegar miðað er við með­al­tal kann­anna frá 2017. Flokk­ur­inn er með aðeins sterk­ari stöðu nú en þá á Norð­ur­landi og Suð­ur­landi – þar sem fylgið mælist 24 pró­sent – og er á svip­uðu róli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem Sjálf­stæð­is­flokkur mælist allra flokka stærstur með 24,3 pró­sent fylgi.

Fylgið hefur lækkað aðeins á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum en mesta breyt­ingin hefur orðið á Aust­ur­landi, þar sem stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk hefur farið úr 24,1 pró­sent í kringum kosn­ing­arnar 2017 í 11,7 pró­sent að með­al­tali í síð­ustu tveimur könn­unum MMR.

Áfram sem áður er aldur ráð­andi breyta í stuðn­ingi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Því eldri sem við­kom­andi er, því lík­legri er hann til að kjósa flokk­inn. Fylgið er minnst hjá ald­urs­hópnum 18-29 ára, þar sem 18,3 pró­sent aðspurðra segj­ast styðja flokk­inn. Það er aðeins minna en haustið 2017. Fylgið hefur líka dreg­ist saman hjá kjós­endum á fer­tugs- og fimm­tugs­aldri en auk­ist umtals­vert hjá þeim sem eru á aldr­inum 50-67 ára, úr 22,5 í 27,6 pró­sent. Mestur er stuðn­ing­ur­inn hjá 68 ára og eldri þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í algjörum sér­flokki með 31,5 pró­sent fylgi.

Sú breyt­ing hefur orðið frá 2017 að nú nýtur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mestra vin­sælda hjá þeim sem lokið hafa háskóla­prófi en fyrir rúmum þremur árum var flokk­ur­inn stærstur hjá þeim hópi kjós­enda sem hafði fram­halds­skóla­próf sem æðstu menntun.

Langmest fylgi hjá tekjuhæsta hópnum

Árið 2017 sýndu kann­anir að því hærri sem tekjur kjós­enda voru, því lík­legri voru þeir til að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Sú staða hefur orðið enn ýkt­ari á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili.

Fyrir rúmum þremur árum var staðan þannig að 14,7 pró­sent kjós­enda sem voru með undir 400 þús­und krónur á mán­uði í heim­il­is­tekjur studdu flokk­inn. Stuðn­ing­ur­inn jókst síðan eftir því sem tekj­urnar hækk­uðu og náði hámarki hjá efsta tekju­hópnum – þeim sem er með meira en 1,2 millj­ónir króna í heim­il­is­tekjur – þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn naut stuðn­ings 29,7 pró­sent kjós­enda.

Í dag hefur stuðn­ing­ur­inn hjá lægsta tekju­hópnum dreg­ist saman og er ein­ungis 11,9 pró­sent. Bæði Píratar og Sam­fylk­ing mæl­ast með meira fylgi en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hjá þeim tekju­hóp og Mið­flokk­ur­inn er ekki langt undan. Fylgi flokks­ins dregst líka saman hjá þeim sem eru með 400-799 þús­und krónur á mán­uði í heim­il­is­tekjur en eykst hjá öðrum tekju­hópum, og nær hámarki hjá tekju­hæsta hópnum. Þar mælist fylgi Sjálf­stæð­is­flokks 34,2 pró­sent. Enginn annar flokkur kemst nálægt því að vera svo sterkur hjá efn­að­asta kjós­enda­hópnum. Raunar eru bara tveir aðrir flokkar, Sam­fylk­ing (18,6 pró­sent) og Viðreisn (12,5 pró­sent), sem mæl­ast með meira fylgi hjá tekju­hópnum sem er með meira en 1,2 milljón krónur á mán­uði en heild­ar­fylgi.

Þegar Miðflokkurinn lækkar, þá hækkar Sjálfstæðisflokkur

Í síð­ustu viku, þegar MMR greindi frá nið­ur­stöðu nýj­ustu könn­unar sinnar á fylgi stjórn­mála­flokka, vakti fyr­ir­tækið sér­staka athygli á því í til­kynn­ingu að stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn sveiflist í gagn­stæða átt við fylgi Mið­flokks­ins.

[links]Umtals­verð fylgni hefði verið þar á milli frá því að Mið­flokk­ur­inn var stofn­aður árið 2017 og fyr­ir­tækið hóf að mæla stuðn­ing við hann.

Í könnun sem MMR birti nið­ur­stöð­una úr 22. nóv­em­ber 2019, fyrir tæpu ári síðan, mæld­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn til að mynda með minnsta fylgi sem hann hefur nokkru sinni mælst með í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins, 18,1 pró­sent. Í sömu könnun mæld­ist Mið­flokk­ur­inn með mesta fylgi sem hann hefur nokkru sinni mælst með, eða 16,8 pró­sent. Sam­eig­in­legt fylgi flokk­anna var 34,9 pró­sent í þeirri könnun.

Í síð­ustu tveimur könn­unum MMR mæld­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 23,5 pró­sent fylgi, og hafði þar með bætt við sig 5,4 pró­sentu­stigum frá lág­punkt­inum fyrir ári síðan, og Mið­flokk­ur­inn með 10,3 pró­sent, og hafði tapað 6,5 pró­sentu­stigum. Sam­an­lagt fylgi flokk­anna nú er 33,8 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár