Bjarni: Okkur hefur tekist stórkostlega að bæta lífskjörin á Íslandi

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir það kosta blóð, svita og tár að kom­ast til valda. Hann vill halda áfram að leiða flokk­inn enda ekk­ert merki­legra eða skemmti­legra en að móta fram­tíð lands og þjóðar.

Bjarni Bendiktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bendikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Við höfum verið að stór­auka lífs­kjör þeirra sem eru neðst í launa­stig­anum,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Silfrinu á RÚV í morgun. Hann hefur hug á því að halda áfram að leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn enda geti hann ekki ímyndað sér neitt merki­legra og skemmti­legra en að móta fram­tíð lands og þjóðar.

Bjarni sagði núver­andi verk­föll og þau sem eru yfir­vof­andi mikið áhyggju­efni. „Ég hefði ekki spáð því fyrir níu mán­uðum síðan að við værum í þess­ari stöðu. Lífs­kjara­samn­ing­arnir slógu tón sem ég batt mjög miklar vonir við að myndu smit­ast út í allar samn­inga­við­ræður í fram­hald­inu. Það kemur mér veru­lega mikið á óvart að við­ræður sem ganga út frá því að það merki sem lífs­kjara­samn­ing­arnir settu út í vinnu­mark­aðsum­hverfið skuli ekki hafa dugað til að leiða til nið­ur­stöðu.“

Bjarni nefndi að ríkið hefði náð miklum árangri í þeim kjara­við­ræðum sem átt hafa sér stað, t.d. hvað varðar kerf­is­breyt­ingu á vakta­fyr­ir­komu­lagi og stytt­ingu vinnu­vik­unnar. „Jafnvel þótt að ekk­ert annað gerð­ist en menn skrifi undir það sem ríkið hefur lagt á borðið í dag myndum við samt sem áður sjá algjöra tíma­móta­samn­inga.“

Nám metið til fjár

Egill Helgason, stjórn­andi Silf­urs­ins, sagði að deil­urnar snér­ust mikið um lág­launa­fólk og lág­launa­konur og að fara þyrfti í sér­stakar aðgerðir fyrir þá hópa.

„Við höfum verið að stór­auka lífs­kjör þeirra sem eru neðst í launa­stig­anum,“ sagði Bjarni og tók m.a. dæmi af skatt­kerf­is­breyt­ingum og breyt­ingum á barna­bóta- og fæð­ing­ar­or­lofs­kerf­inu. „En það eru ákveðin lög­mál sem er ekki hægt að horfa fram hjá. Það eru stéttir sem eru rétt fyrir ofan þá sem eru á lægstu laun­unum sem munu alltaf spyrja sig: Var það þess virði að fara í fimm ára háskóla­nám? Varð það þess virði að taka náms­lán?“

Hann sagði það háværa kröfu BHM síð­ustu ár að menntun sé metin til launa. „Þannig að það er ekki hægt að nálg­ast þessa umræðu þannig að það sé bara einn tónn, ein rödd sem að heyr­ist sem að það verði bara að hækka laun þeirra sem eru neðst í launa­stig­anum. Nei, við erum með miklu flókn­ara kerfi.“

Lífskjör eldri borgara og láglaunafólks batnað mest

Spurður hvort að ríkið hafi gengið að undan með vondu for­dæmi svar­aði Bjarni að „allt þetta tal um þróun launa þeirra sem heyra undir kjara­ráð og aðrar launa­breyt­ingar á opin­bera mark­aðnum, það reyndi á það við gerð lífs­kjara­samn­ings­ins. Og þrátt fyrir allt þá tók­ust þar samn­ingar. Við verðum auð­vitað líka að skoða hlut­ina í stærra sam­hengi. Hvernig hefur gengið að auka kaup­mátt á Íslandi?“

[links]Hann segir að „eitt það merki­leg­asta“ sem gerst hefði í þessum málum á und­an­förnum árum væri það að ríkið hefði „opnað bæk­urnar“ og gert vef­inn tekju­sagan.is, „þar sem við ein­fald­lega flettum hul­unni af því hvernig kjör hafa þró­ast á Íslandi frá árinu 1991.[...] Vefurinn dregur það fram að okkur hefur tek­ist stór­kost­lega að bæta lífs­kjörin á Íslandi og einna best við þá hópa sem helst eru í umræð­unni í dag; eldri borg­ara og þá sem eru neðst í launa­stig­anum.“

Eitt lengsta hagvaxtarskeið sögunnar

Bjarni var einnig spurður út í horfur í efna­hags­málum og sagði mik­il­vægt að hafa í huga að við stöndum núna á vissan hátt á kross­götum. „Við erum að ljúka ein­hverju lengsta, sam­fellda hag­vaxt­ar­skeiði Íslands­sög­unnar. Við höfum notið góðs af því með vax­andi kaup­mætti á und­an­förnum árum, við höfum verið að skila því í út í betri laun. Fólk hefur það almennt miklu betra heldur en fyrir upp­gangs­tím­ann.“

Rík­is­sjóður hefur styrkt stöðu sína, fyr­ir­tækin og heim­ilin sömu­leiðis. Nú hægi aðeins á en áfram verður sótt fram. „Við erum á mög góðum stað og höfum búið í hag­inn fyrir erf­ið­ari tíma.“

Blóð, sviti og tár

Haustið 2021 mun núver­andi rík­is­stjórn hafa setið í fjögur ár. Rætt hefur verið um hvort að kosn­ingum verði flýtt til vors­ins þar sem hefð er fyrir þing­kosn­ingum þá. Bjarni sagði að engin nið­ur­staða væri komin í það ennþá. „Ef ég á að segja hug minn allan þá segi ég; það kostar blóð, svita og tár að kom­ast til valda. Af hverju í ósköp­unum ætti maður að gefa það frá sér hálfu ári áður en að lög segja til um?“

Spurður hvort að hann ætl­aði sér að halda áfram að leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn svar­aði Bjarni að sér liði þannig að hann sé ekki búinn og að hann hafi stuðn­ing. „Mig langar til að halda áfram, hvað getur verið meira spenn­andi í líf­inu en að fást við það að móta fram­tíð lands og þjóðar og vera að leggja á borðið til­lögur? Ég get ekki séð neitt annað sem gæti verið merki­legra og skemmti­legra að gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár