Sósíalistaflokkurinn sækir vinstrafylgið fast og heggur í stöðu Vinstri grænna

Í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum fyrir tveimur árum sigr­aði Sós­í­alista­flokk­ur­inn bar­átt­una um vinstri væng­inn og fékk fleiri atkvæði en Vinstri græn. Skýrar vís­bend­ingar eru um að sú sókn í vinstra­fylgið getið haldið áfram í kom­andi þing­kosn­ingum.

Af vetrarfundi Sósíalistaflokks Íslands sem fór fram í Dósaverksmiðjunni í Borgartúni í janúar 2020.
Af vetr­ar­fundi Sós­í­alista­flokks Íslands sem fór fram í Dósa­verk­smiðj­unni í Borg­ar­túni í jan­úar 2020. Mynd: Facebook-síða Sósíalistaflokksins.

Enginn einn flokkur hefur tekið til sín meira nýtt fylgi það sem af er kjör­tíma­bili en sá flokkur í mæl­ingum MMR sem á ekki full­trúa á þingi, Sós­í­alista­flokkur Íslands. Meðaltal fylgis hans í síð­ustu tveimur könn­unum MMR er 4,3 pró­sent. Sá flokkur á Alþingi sem hefur bætt mestu við sig á kjör­tíma­bil­inu, Píratar, hefur náð í 3,4 ný pró­sentu­stig af fylgi.

[box]Það er eft­ir­tekt­ar­verður árangur hjá Sós­í­alista­flokknum í ljósi þess að ekk­ert liggur opin­ber­lega fyrir um hverjir verða í fram­boði fyrir hann haustið 2021. Eina sem liggur fyrir er skýr stjórn­mála­stefna og ákvörðun um að bjóða fram.

Í stefn­unni segir meðal ann­ars að mark­mið flokks­ins séu sam­fé­lag frelsis, jöfn­uðar, mann­helgi og sam­kenndar. „Þessi mark­mið nást ein­göngu með því að færa völdin í hendur fólks­ins í land­inu. Sós­í­alista­flokkur Íslands er flokkur launa­fólks og allra þeirra sem búa við skort, ósýni­leika og valda­leysi. And­stæð­ingar Sós­í­alista­flokks Íslands eru auð­valdið og hand­bendi þess. Vett­vangur Sós­í­alista­flokks Íslands er breið stétta­bar­átta sem hafnar mála­miðl­unum og falskri sam­ræðu.“

Sterkastur á höfuðborgarsvæðinu

Sós­í­a­lista­­flokk­­ur­inn var stofn­aður 1. maí 2017. Hvata­maður að stofnun hans var Gunnar Smári Egils­son, ­blaða­maður og fyrrum rit­stjóri.

Flokk­ur­inn bauð í fyrsta sinn fram í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018. Þar náði flokk­ur­inn 6,4 pró­­sent atkvæða í borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­unum í Reykja­vík og Sanna Magda­­lena Mört­u­dóttir tók í kjöl­farið sæti í borg­ar­stjórn fyrir hönd hans.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn var eini flokk­­ur­inn sem náði inn kjörnum full­­trúa sem er ekki með full­­trúa á Alþingi í dag, og hafði því ekki aðgengi að þeim hund­ruð millj­­óna sem hinir sjö flokk­­arnir sem náðu inn er skammtað af fjár­­lögum ár hvert.

Með­al­tals­fylgi Sós­í­alista­flokks­ins í síð­ustu tveimur könn­unum MMR var 4,3 pró­sent, sem er meira en Flokkur fólks­ins mælist með um þessar mundir. Hann nýtur mest fylgis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem hann myndi fá slétt fimm pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag, eða rétt aðeins minna en þau 5,9 pró­sent sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi fá í dag. Þá er heldur ekki langt í Mið­flokk­inn (7,1 pró­sent) og Vinstri græn (7,6 pró­sent) á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

[adspot]Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist líka með ágætis stuðn­ing á Norð­ur­landi, eða 4,1 pró­sent. Fylgi við flokk­inn er hins vegar hverf­andi á öðrum stöðum á land­inu.

Tekjur og menntun lykilbreytur

Menntun og tekjur eru breytur sem skipta máli þegar kemur að stuðn­ingi við Sós­í­alista­flokk­inn, enda skil­greinir flokk­ur­inn sig bein­línis sem málsvari verka­fólks í stétta­bar­áttu þess við auð­valdið. Hjá þeim sem hafa lokið skyldu­námi og engu öðru mælist stuðn­ingu við Sós­í­alista­flokk­inn 5,7 pró­sent. Stuðn­ingur við flokk­inn fer svo lækk­andi eftir því sem menntun eykst og mælist 3,1 pró­sent hjá þeim sem lokið hafa háskóla­námi.

Fylgi Sós­í­alista­flokks­ins er lang­mest hjá þeim lands­mönnum sem til­heyra lægsta tekju­hópum, þeim sem eru með undir 400 þús­und krónur í heim­il­is­tekjur á mán­uði. Þar segj­ast 8,6 pró­sent að þeir myndu kjósa flokk­inn. Stuðn­ing­ur­inn er líka yfir heild­ar­fylgi, alls fimm pró­sent, hjá þeim sem eru með 400-799 þús­und krónur á mán­uði í heim­il­is­tekjur en mjög lít­ill hjá tekju­hæstu hóp­unum tveimur (1,7-2,2 pró­sent).

Karlar (5,7 pró­sent) eru lík­legri til að styðja Sós­í­alista­flokk Íslands en konur (2,4 pró­sent) og flokk­ur­inn er mun vin­sælli hjá yngra fólki en því eldra. Raunar er það svo að í ald­urs­hópnum 18-29 ára mælist hann með sjö pró­sent fylgi og er fimmti stærsti flokkur lands­ins innan hans. Þar, líkt og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, mælist stuðn­ingur við Sós­í­alista­flokk­inn meiri en stuðn­ingur við Vinstri græn, þann flokk sem stað­setur sig næst lengst til vinstri.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn virð­ist ekki ná vel til eldri lands­manna en hjá 68 ára og eldri segj­ast ein­ungis 1,6 pró­sent styðja hann.

Taka frá Vinstri grænum

Vinstri græn hafa átt svæðið yst til vinstri á hinum hefð­bundna stjórn­mála­kvarða að mestu síð­ast­liðna rúmu tvo ára­tugi. Sós­í­alista­flokk­ur­inn sækir nú sitt fylgi í sama hólf. Í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum fyrir rúmum tveimur árum tókst sú sókn vel upp og flokk­ur­inn fékk meira fylgi en Vinstri græn, sem biðu afhroð og fengu ein­ungis 4,6 pró­sent atkvæða. Alls fengu Sós­í­alistar rúm­lega eitt þús­und fleiri atkvæði en hinn skil­greindi vinstri­flokk­ur­inn og, líkt og áður sagði, 6,4 pró­sent atkvæða.

Það sést vel að í þeim hópum sem Vinstri græn hafa tapað mörgum kjós­endum, þar gengur Sós­í­alistum best og því eðli­legt að draga þá ályktun að síð­ar­nefndi flokk­ur­inn sé að taka umtals­vert vinstra­fylgi af flokki for­sæt­is­ráð­herra.

Í yngsta kjós­enda­hópnum, þeim sem eru undir þrí­tugu, er Sós­í­alista­flokk­ur­inn (7,0 pró­sent) til að mynda með meira fylgi en Vinstri græn (5,4 pró­sent) og þar hefur síð­ar­nefndi flokk­ur­inn tapað 6,9 pró­sentu­stigum frá mæl­ingum í kringum síð­ustu kosn­ingar.

Þegar fylgi vinstri­flokk­anna tveggja er skoðað eftir mennt­un­ar­stigi er Sós­í­alista­flokk­ur­inn (5,7 pró­sent) líka stærri en Vinstri græn (3,8 pró­sent) hjá þeim sem lokið hafa grunn­skóla­menntun ein­vörð­ungu. Hjá þeim hópi hefur fylgi Vinstri grænna skroppið saman um 6,4 pró­sentu­stig frá 2017.

Að síð­ustu ber að nefna þá lands­menn sem eru með lægstu tekj­urnar, undir 400 þús­und krónur á mán­uði. Þar mæl­ast Sós­í­alista­flokk­ur­inn (8,6 pró­sent) og Vinstri græn (8,8 pró­sent) nán­ast jafn stór en stuðn­ingur við Vinstri græn í þeim hópi hefur minnkað um alls 6,9 pró­sentu­stig það sem af er kjör­tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár